Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS Dallas Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinnings­hafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum. E inmitt, gott fólk. Þið þekkið lagið, og þið þekkið fólkið og mögulega líka landslagið. Þegar þið heyrið nafnið „Dallas“ myndast ójsálfrátt þanka- strik beint í sjónvarpsþættina vin- sælu sem báru nafn borgarinnar og sýndir voru á RÚV fyrir um 35 ár- um, um Ewing-fjölskylduna, veg- semd hennar og vandræði á víxl, ol- íuauðæfi, ástir, afbrýði og afbrot. En það er langt um liðið, þætt- irnir löngu hættir og borgin hefur á sér annan blæ en í þá daga, enda er það svo að tímarnir breytast og borgirnar með. Dallas: Meira en mætir auganu Hugrenningatengslin við hina víð- frægu sjónvarpsþætti eru í hæsta máta skiljanleg en kannski ekki al- veg makleg, þegar haft er í huga hvað borgin býður upp á. Hverjum hefði til að mynda dottið í hug að í Dallas væri að finna stærsta sam- ansafn veraldar af art deco- byggingum? Það er engu að síður staðreynd, nánar tiltekið í Fair Park, um þrjá og hálfan kílómetra austur af miðborginni. Á rúmlega eins ferkílómetra svæði er þar ekki bara sægur af fallegum byggingum í art deco-stíl heldur líka fjölmargar byggingar í hinum ómótsæðilega móderníska stíl frá miðri síðustu öld. Auk þess sem er hægt að skoða í Fair Park skartar miðborg Dallas vitaskuld tilkomumiklu safni af myndarlegum skýjakljúfum og borgarmyndin þykir ein sú fegursta í gervöllum Bandaríkjunum. Ekki verður sagt skilið við Fair Park án þess að nefna hina árlegu fylkishátíð sem þar fer fram á haustin. Hátíðin hefur verið haldin síðan árið 1886 og þar er öllu hamp- að sem talist getur „texanskt“, ekki síst í mat og drykk. Sýningin verður haldin á þessu ári frá 28. september til 21. október. Matur er Dallas megin Þrátt fyrir vinalegt viðmótið þá gantast íbúar Dallas ekki með mat- inn – þvert á móti taka þeir mat og matargerð alvarlega og gestir njóta góðs af. Ótal þekktir veitingastaðir eru úti um alla borg og þar á meðal eru nokkrir sem vert er að benda sérstaklega á. The Rustic í Uptown-hluta borg- arinnar er bræðingur af veit- ingastað og tónleikastað, þar sem bragðmikill matur og lifandi tónlist er á matseðlinum sjö daga vikunnar. Rauði þráðurinn er það sem kalla mætti heimilismat að hætti Dallas með bragðmiklum tex-mex blæ. 40 mismunandi bjórtegundir eru á krana, allar frá Dallas-svæðinu. Í hinu litríka og listræna hverfi Deep Ellum er að finna veitinga- staðinn Pecan Lodge þar sem bragð- laukarnir taka kipp yfir nautarifjum með kryddblöndu sem seint gleym- ist, jalapeno-cheddar pylsum með dýfu og eldgrillaðar nautabringur (e. brisket) sem dregur að fólk hvað- anæva frá Bandaríkjunum og er eins og annað allt gert frá grunni. Þá verður að nefna Restaur- ants on Lamar, sem er eins og nafnið gefur til kynna ekki bara einn heldur sjö veitinga- staðir af öllu tagi, hver við hlið þess næsta, staðsettir á 555 Lamar stræti. Bjór- garður, sushi-staður, steikarstaður, ítalskur, eld- bakaðar pits- ur, mexíkósk- ur matur og einn flottasti sportbar í allri Dallas. Loks er einn skemmtileg- asti sælkera- kosturinn að slást í hópinn þegar mat- argangan „Uptown Foodie Walk“ fer af stað, en hún er í boði fyrir áhugasama flesta daga vikunnar. Mælt er með því að þátttakendur mæti svangir til leiks þar sem af nógu er að taka þegar smakkið er annars vegar, í bland við fróðleik og mat- artengda sagnfræði frá svæðinu. Því er ekki að neita að Dallas er stór borg: það er hreint ekki út í bláinn að hún er kölluð „The Big D.“ Hér er að finna rúm- lega fjóra og hálfa milljón manns, meira en 80 þúsund gisti- staði af öllum stærðum og gerð- um og um það bil 12 þúsund matsölustaði. Stærðin skyldi þar af leiðandi skoðast sem eitt stórt tækifæri því Dallas er í stakk búin til að taka á móti gestum sínum, og rúmlega það. Það sem gerir Dallas ekki síst áhugaverða er fjölbreytileikinn frá einu hverfi til annars. Á meðan Up- town-kjarninn er einn sá elsti með 125 ára byggingum þá er Deep Ell- um, þar sem ungt fólk býr, metn- aðarfull, veggjalist blasir hvarvetna við og rekstrareiningarnar eru oftar en ekki hönnunarbúðir, fataversl- anir og húðflúrstofur. Eitt eiga öll hverfin sameiginlegt og það er ótrú- legt framboð af hvers konar afþrey- ingu og áhugaverðum viðkomustöð- um. Eins og framar greindi er borg- arlandslag Dallas býsna til- komumikið, þökk sé ekki síst gljá- fægðum skýjakljúfum miðbæjarins. Til að skoða borgina frá besta mögulega útsýnispunktinum verður að benda áhugasömum á að heim- sækja Reunion Tower, en þar er að finna útsýnispallinn GeO-Deck sem gefur kost á óviðjafnanlegu útsýni yfir borgina og nærsveitir úr 150 metra hæð. Í kjölfarið getur öll fjöl- skyldan skemmt sér konunglega í Dallas World Aquarium, hinu stór- fenglega sædýrasafni borgarinnar, þar sem reyndar má líka finna margskonar landdýr og fugla. Standi hugurinn til að tengja við gríðarlegan íþróttaáhuga borg- arinnar verður ekki hjá því komist að skella sér á leik þegar keppn- istímabil stendur yfir, annaðhvort á hinum gríðarmikla AT&T leikvangi þar sem ruðningshetjurnar í Dallas Cowboys tækla mann og annan, ell- egar þá í American Airlines Center þar sem körfuboltalið Dallas Maver- icks leikur listir sínar. Sagnfræðinördar mega ekki fyrir nokkurn mun sleppa því að heim- sækja Sixth Floor Museum við Dea- ley-torg, sem heitir svo af því það er á 6. hæð húss sem áður var náms- gagnastofnun Dallas-borgar. Ein- mitt þar kom maður að nafni Lee Harvey Oswald sér fyrir, vopnaður langdrægum riffli, og réði John F. Kennedy Bandaríkjaforseta af dög- um hinn 22. nóvember 1963 … eða svo segir alltént hin opinbera útgáfa stjórnvalda um atburðinn. Á sjöttu hæðinni er hægt að sökkva sér í þetta umtalaðasta sakamál 20. ald- arinnar í Bandaríkjunum og skoða atburðarás þessa örlagaríka dags skref fyrir skref. Hvert sem hugurinn kann annars að standa má bóka að viðmót heima- fólks er hlýlegt og kumpánlegt; þó Dallas sé stór og mikil þá er stutt í heimilislegt viðmót hjá þeim sem verða á vegi manns, rétt eins og borgin sé ennþá lítill smábær. Svo má alltaf kíkja til Southfork! Ekki verður hjá því komist að svara spurningunni sem brennur ef- laust á mörgum lesendum þegar hér er komið sögu. Og svarið er já, það er enn hægt að heimsækja Sout- hfork, búgarðinn sem var heim- kynni Ewing-fjölskyldunnar í sjón- varpsþáttunum Dallas. Southfork er um 45 mínútna akstur í norðaustur frá borginni og þar er hægt að fá leiðsögn um svæðið og rifja upp gamla daga þegar Jock, Ellie, J.R., Bobby og hin í fjölskyldunni áttu þar sitt heimaland. Nema Ray karl- inn Krebbs; hann fékk að hírast í litlu húsræksni í garðshorninu, sælla minninga. Í ár er einmitt lag að heilsa upp á mannskapinn því nú er 40 ára afmælisárið með ýmiss konar húllumhæi á „Suðurgaffli“. Eruð þið ekki þegar byrjuð að humma lagið? Stóri D: hinn risastóri smábær Dallas er um margt sérstæð borg, þar sem skýjakljúfar úr speglagleri og stáli fara saman við vinalegt andrúmsloft smábæjar í Texas. Þegar að er gáð reynist borgin talsvert meira en heimaborg eins rómaðasta sjónvarpsóþokka sögunnar, J.R. Ewing. Ljósaborg Borgarmynd Dallas þykir með þeim fallegri í Bandaríkjunum. Stuð Jazzinn í Dallas varð til í Deep Ellum hverfinu. Karfa Dirk hjá Dallas Mavericks skorar. Suðurgaffall Enn í dag sækir fólk stíft að komast í heimsókn á Southfork, heimavöll Dallas- þáttanna. AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.