Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 62
Þorbjörg Marinósdóttir tobba@mbl.is „Að þessu sinni ákváðum við vin- konurnar að grilla T-bone-steikur og risarækjur. Surf & Turf- matseðillinn varð vinsæll í Banda- ríkjunum upp úr 1960, um er að ræða matseðil með bæði fisk- og kjötmeti.“ T-bone-steik: Sirka 200 g á mann. „Það er ekk- ert stórkostlegra en að komast yfir flottar og þykkar T-bone-steikur, en það er lund og fillet á beini, mjög bragðmikil steik.“ Steikurnar voru teknar úr ísskáp 3 klst. fyrir eldun og leyft að ná stofuhita, penslaðar klst. fyrir eldun með trufflu marineringu frá kjöt- búðinni á Grensási og grillaðar við háan hita í 2,5 mínútur og síðan snúið í 90 gráður til að fá krossgrill- röndina og áfram í 2,5 mínútur og endurtekið á hinni hliðinni sem gerði 55° kjarnhita eða medium rare. Að því loknu voru steikurnar teknar af grillinu, álpappír settur yfir og þær látnar standa í 15 mín- útur. Athugið að grilltíminn ræðst nokkuð af því hversu heitt grillið verður, hversu þykkar steikurnar eru og hvernig þið viljið þær steikt- ar. Marineraðar risarækjur, grænmeti og salat: 20-30 risarækjur 2 hausar Romain-salat, gróft skorið (hægt að nota hvaða salat sem er) 20 litlir tómatar, skornir til helminga 1 appelsínugul paprika, gróft skorin 1 rauðlaukur, gróft skorinn 5 gulrætur, gróft skornar 10 stk. aspas, gróft skorinn Marinering: 3 dl. kryddjurtaolía (eða hvaða olía sem er) ½ lime, safinn 1 dl. ferskt oregano, smátt saxað 1 msk. hunang 2 tsk. grillkrydd frá Krydd- og tehús- inu salt og pipar Bæði rækjur og grænmeti er marinerað í klukkutíma. Grænmetið, allt nema salatið er eldað í ofni í ca. 15 mínútur og svo látið kólna. Rækjurnar eru eldaðar í ofni í ca. 5-8 mínútur og svo látnar kólna. Öllu er blandað vel saman í stóra skál og afganginum af marineringu helt yfir eftir smekk Chimichurri-sósa – Salsa frá Argentínu og Uruguay. Lausleg þýðing: „a mixture of seve- ral things in no particular order“ Margir setja allt í mixer og blanda þannig öllum hráefnunum saman.. Það gerir maður ekki með Chimich- urri. Allt hráefnið í Chimichurri er saxað smátt niður með beittum hníf með ást og umhyggju, sett í skál, hrært saman og látið standa við stofuhita – það er þá sem töfrarnir gerast. Surf & Turf með vinkonunum Matarvefurinn fékk kryddsérfræðinginn hana Auði Rafnsdóttur til að deila einni af sinni uppáhaldsgrillupp- skriftum sem hún eldar gjarnan eftir handa vin- konunum. Sumarlegt Eftir að rækjurnar og græn- metið hefur kólnað er því blandað saman. Morgunblaðið/Hari Grillandi snilld Þessar steikur keypti Auður í Melabúðinni en hún heldur mikið upp á T-bone. Guðdómlegt Hér er maturinn tilbúinn, steik, argentínsk grill- sósa og rækjusalatið. Chimichurri fyrir 2-4 1 búnt steinselja – skera af mest af stönglinum 4-8 greinar ferskt oregano – hreinsa blöðin af stönglinum 4-8 hvítlauksgeirar ¾ bollar ólívuolía ¼ bolli rauðvínsedik 1 sítróna, safinn 1-2 msk. skalottlaukur eða rauðlauk- ur 1 tsk. þurrkað oregano 1 tsk. svartur pipar ½ tsk. maldon-salt ½-1 msk. hunang eða agave-síróp eftir smekk ½ til 1 tsk. mulinn chilli – lítill þurrk- aður chilli sem keyptur er í Asíubúð, settur heill í matvinnsluvél og sax- aður í smátt – þá færðu alvöru eld á varirnar (annað er ekki chilli). Chimichurri þarf að standa í alla- vega 8 klukkutíma til að brotna nið- ur. Það má smakka sig áfram, dash af salti, svörtum pipar eða sætu. Ef hún stendur yfir nótt að láta hana þá standa í ísskáp. 62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.