Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 74

Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 74
74 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. LOK Á POTTA HEITIRPOTTAR.IS HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 Video upptökuvél Glæný og ónotuð Canon EOS C100 Mark II. Framl: Japan. Upphaf- legt verð (479.900). Selst á 330.000. Vídeó upptökuvél Canon XA 35. Stór rafhlaða. Upphaflegt verð (319.900). Selst á 200.000. Keyptar í Nýherja / Origo í Borgartúni 37. Eru með 2 ára ábyrgð. Uppl. í síma: 833-6255 og 899 8325 Til sölu Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Byggingavörur Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur ÍSTEX hf verður haldinn miðvikudaginn 4. apríl 2018, kl. 20:00 í húsnæði félagsins í Mosfellsbæ. Dagskrá 1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykkta félagsins. 2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn til kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Þróunarmál - Aukin söluverðmæti ullar (grófleiki og ný flokkun). 4. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofunni í Mosfellsbæ viku fyrir aðal- fund hluthöfum til sýnis. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á fundardag. Mosfellsbæ, mars 2018. Stjórn ÍSTEX hf. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og gönguhópurinn leggur af stað kl. 10.50. Myndlist kl. 13 og söngfuglarnir mæta til okkar kl. 13 og æfa í matsalnum fram að kaffi. Bókmenntaklúbburinn mætir í hús kl. 13.15, kaffið á sínum stað kl. 14.30 og allir velkomnir í brauð og kökur. Árskógar Smíðastofan er lokuð. Leikfimi með Maríu kl. 9. Helgistund Seljakirkju kl. 10.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Myndlist með Elsu kl. 13-17. Stiklur kl. 14. Opið fyrir innipútt. Hádegis- matur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir vel- komnir. S. 535-2700. Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Vítamín í Valsheimilinu kl. 9.30-11.30. Bókband kl. 13-16. Bóka- bíllinn kemur kl. 14.30. Kvikmyndasýning kl. 13, allir hjartanlega vel- komnir. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Dalbraut18-20 Söngstund með Sigrúnu Erlu kl. 14. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 9. Vítamín í Valsheimili kl. 9.30. Postulínsmálun kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opin handavinna frá kl. 9-12, bókband kl. 9-13, Vítamín í Valsheimili kl. 10-11.15, fjölbreytt og skemmtileg hreyfing fyrir alla. Rúta til og frá Valsheimili fer frá Vitatorgi kl. 9.45. Ókeypis og öllum opið. Boðið upp á kaffi í lokin. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Bíó; Sigla Himinfley, seinni hluti kl. 12.45, handavinnuhópur kl. 13.30- 16, kaffiveitingar kl. 14.30-15.:30. Velkomin á Vitatorg, s. 411-9450. Flatahrauni 3 Vorgleði og dans verður í Hraunseli Flatahrauni 3, Hafnarfirði, föstudaginn 16. mars. Dansbandið leikur fyrir dansi frá kl. 20. Miðaverð 1500 kr. Allir hjartanlega velkomnir. Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15. Qi gong Sjá- landi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Karlaleikfimi í Sjálandi kl. 11. Stólaleikfimi í Sjálandi kl. 11.50. Botsía í Sjálandi kl. 12.10. Handvinnuhorn í Jónshúsi kl. 13. Málun í Kirkju- hvoli kl. 13. Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 13, vöfflukaffi í Jónshúsi. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Leikfimi Maríu kl. 10- 10.45. Perlusaumur kl. 13-16. Bútasaumur kl. 13-16. Myndlist kl. 13-16. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 leikfimi, kl. 10.50 jóga, kl. 13 bók- band, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 14 Gjábakkagleðin, sam- söngur við undirspil, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 16.10 myndlist. Gullsmári Handavinna kl. 9. Jóga kl. 9.30. Ganga kl. 10. Handavinna / brids kl. 13. Línudans kl. 16.30. Jóga kl. 18. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Jóga kl. 10.10-11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Ættir og örnefni kl. 13, spjallhópur sem ræðir ættir og æskuslóðir, allir velkomnir að vera með. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, opin vinnustofa frá kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting 517-3005. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Kl. 12 í dag, eldri borgarar koma saman og eiga notalega stund. Súpa og brauð, söngur, hugvekja og notalegt samfélag. Allir eldri borgarar eru innilega velkomnir. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Málað á steina með Júllu kl. 9-12, leikfimi með Guðnýju kl. 10-10.45, Listasmiðjan er öllum opin frá kl. 12.30, hádegis- matur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs). Sönghópur Hæðar- garðs kl. 13.30-14.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, línudans með Ingu kl. 15-16. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari upp. í s. 411-2790. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 í Grafarvogsundlaug, tölvuráðgjöf kl. 9 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll styrktar og jafnvægis- æfingar kl. 11 í dag, allir velkomnir. Skákhópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum í dag, tréútskurður á Korpúlfsstöðum frá kl. 13 í dag, botsía kl. 16 í dag í Borgum. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10.30-11, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og snjall- tækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Botsía kl. 13.15 á sléttum vikum. Allir eru hjart- anlega velkomnir í Selið. Nánari uppl. hjá Maríu Helenu í s. 568-2586. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.15. Bókband Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 12. ,,Óvissuferð", leggjum af stað frá Skólabraut kl. 13.30. Landhelgisgæslan, fræðsla og skoðun. Kaffi á Satt á eftir. Uppl. 8939800. Stangarhylur 4 Zumba kl. 10.30 undir stjórn Tanyu. Fyrsti fyrirlestur í dag kl. 14-16. Húllumhæ í Stangarhyl í dag fimmtudag, tónlistar- menn munu koma fram og syngja íslensk dægurlög í bland við nýja tóna ásamt því að danspar ársins 2017 kemur og sýnir dansatriði. Kaffi og meðlæti. Að kvöldi 24. febrúar barst okkur sú harmafregn að Walter Ketel, mág- ur og svili, hefði orð- ið bráðkvaddur á heimili sínu 65 ára að aldri. Með honum er geng- inn mikill öðlingur og drengskap- armaður. Walter var matreiðslu- maður að mennt og var það ævistarf hans. Fékk stórfjöl- skyldan oftsinnis að njóta hæfi- leika hans á því sviði og margar veislurnar sá hann um og skipu- lagði; alltaf með bros á vör og ekkert að þakka. Margs er að minnast og það fyrst brúðkaup hans og Kristjönu eiginkonu hans. Þau giftu sig í Norðfjarðar- kirkju á gamlársdag 1974. Hátíð- leg athöfn og látlaus, svo var einn- ig um veisluna á ættarsetrinu Hámundarstöðum. Allt á lág- stemmdum nótum og ekki annað viðeigandi, en um þær mundir var byggðarlagið í sorgarferli vegna snjóflóðanna. Lengst af bjuggu þau hjónin í Hafnarfirði og þar ól- ust börnin þeirra þrjú upp við mikið ástríki. Walter var af jap- önskum og þýskum ættum, fædd- ur og uppalinn í Japan en fluttist ungur til Þýskalands til náms og starfa. Tungumál þessara þjóða voru honum jafn töm og má segja að bæði hafi þau verið móðurmál hans og talaði þau reiprennandi. Þegar japönsku túnfiskskipin voru að veiðum í norðurhöfum áttu þau gjarnan erindi inn á ís- lenskar hafnir og var Walter lengi túlkur fyrir áhafnirnar. Walter var prúðmenni og lagði ekki illt til nokkurs manns. Vinátta og kær- leikur er það besta í fari manns og þær dyggðir tileinkaði Walter sér. Hann var hreinskiptinn og hlýr og ávann sér vinsældir hvar sem hann fór. Þessara eiginleika nutu börn hans og barnabörn í ríkum mæli og söknuðurinn er því sár við fráfall föður og afa. Að leiðarlokum þökkum við Walter áratuga vináttu og góð og gefandi samskipti. Kidda mín, sendum þér og fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls góðs manns sem auðgaði líf allra sem honum kynntust. Hann var drengur góður. Blessuð sé minn- ing hans. Ólöf Steinunn og Gísli. Kæri vinur okkar, Walter-san. Þú kvaddir þennan heim svo skyndilega. Það er eins og sólin hafi snögglega sest. Allt varð dimmt og kalt í kringum okkur og inni í okkur, því þú varst eins og sól sem gaf birtu og yl í lífi okkar. Walter Ketel ✝ Walter Ketelfæddist 11. júlí 1952. Hann lést 24. febrúar 2018. Útför Walters fór fram 12. mars 2018. Þú heilsaðir okk- ur með handabandi eða faðmlagi sem er ekki okkar siður en í gegnum stóru og skjólgóðu hendurn- ar þínar streymdi hlýja frá hjartarót- um þínum. Hendur þínar voru töfra- hendur. Þú mat- reiddir góðan mat fyrir marga í veit- ingahúsi, í bankanum og síðast í Sjálfsbjargarhúsinu. Sumt fólk þurfti sérfæði, sem þú útbjóst. Árlega á nýárshátíð Japana og fjölskyldna í byrjun hvers árs komstu með fallegan og bragð- góðan mat á stórum diski. Þú varst listakokkur. Það skipti þig máli að vita hvernig okkur og fjöl- skyldum okkar, smáum og stórum, liði. Þú varst umhyggju- samur og alltaf að hugsa um aðra. Þú áttir svo auðvelt með að kynn- ast öllum kynslóðahópum með þinni einstöku nálgun og vænt- umþykju. Þú varst elskaður og dáður af ungum sem fullorðnum. Okkur leið vel í nærveru þinni. Þú varst brosmildur, hjartahlýr, bjartsýnn, traustur, skapgóður, umhyggjusamur, spaugsamur og hjálpsamur. Þú talaðir okkar tungumál hjartanlega og vina- lega. Japönsku, þýsku, íslensku og ensku talaðir þú. Faðir þinn var þýskur og móðir þín var japönsk. Þú kynntist Kittý þinni í Þýska- landi þegar þið voruð bæði að vinna. Síðan bjugguð þið um tíma í Sviss, á Íslandi og í Japan. Þú sjálfur taldir þig ekki eiga móð- urmál þótt þú talaðir japönsku og þýsku reiprennandi. Þess vegna lagðir þú áherslu á að börnin þín eignuðust sitt eigið móðurmál, ís- lenskuna, þ.e. mál sem þau gætu talað, skrifað, lesið og skilið full- komlega. Þess vegna vildir þú búa á Íslandi. Þú hugsaðir vel um fjöl- skyldu þína sem er þinn fjár- sjóður, Kittý, börnin þrjú, Andy, Róbert og Hugrún og barnabörn- in. þú hélst áfram að rækta ætt- artengslin við fólkið þitt í Japan, Þýskalandi og í Sviss. Það er sárt að kveðja þig. Þú varst eins og sól. Það verður dimmt þegar sólin sest. Þökk sé þér fyrir allt, Walter- san. Frá vinum þínum, Iura, Maki, Mayumi, Miyako, Mizuho, Sari, Toma, Yamagata, Yayoi, Yoko og fjölskyldum. Elsku vinur, þú hefur kvatt okkur. Ég sit hér og reyni að finna út hvernig hægt er að skrifa minn- ingu um svila minn sem lést langt um aldur fram. Allar minningarnar um þig eru góðar. Þegar maður hugsar um þau 45 ár sem við áttum saman með fjölskyldum okkar, öll ferða- lögin erlendis og hér heima sem við fórum hvort það var tjaldútil- eiga eða sumarbústaðaferð. Þú hafðir svo gaman af því að ferðast um landið og sofa úti undir beru himni. Margar slíkar minningar á ég frá þessum ferðum, þú þekktir landið það betur en ég. Við skírðum og fermdum börn- in okkar saman og þá sást þú um að veisluföngin væru glæsileg eins og allt sem þú tókst að þér. Við gerðum eiginlega allt saman. Ég man einu sinni þegar sonur minn átti afmæli og þú komst heim til mín með þessa líka stóru hnallþóru með einu kerti ofan á, en svona varst þú ávallt tilbúinn að hjálpa öðrum. Þú varst fjöl- skyldu minni hjálplegur og góður og viljum við hjónin þakka þér fyrir það. Svo þegar barnabörnin komu leið þér aldrei betur en þegar þau voru hjá þér, þú varst svo góður afi. Þú varst alltaf tilbúinn að veita hjálparhönd; nei var eiginlega ekki til hjá þér, hvort það var við vini eða samstarfsfélaga, enda varst þú elskaður og dáður af vinnufélögum. Elsku Walter minn, minning- arnar streyma um huga minn á þessari stundu og ég vil sérstak- lega minnast á Þýskalandsferðina og víðar sem við fórum síðastliðið sumar. Þar fórum við vítt og breitt um landið og skoðuðum okkur um. Þar áttum við góðar samræður sem ég mun minnast, við töluðum um hvað við ættum að fara að gera þegar við hættum að vinna á meðan systurnar voru í verslununum. Ég naut þess að vera með þér á þessum góðu stundum því þú þekktir landið svo vel. Nú er komið að kveðjustund. Ég þakka þér fyrir hverja sam- verustund með þér, minningin um þig gleymist ekki. Ég veit að þú ert kominn á góð- an stað, þér líður vel og allar þján- ingar eru horfnar. Ég kveð þig þá elsku vinur með söknuði og margar minningar í hjarta og ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar því nú verð ég að fara með þeim systrum í ferða- lögin og hlusta á þær í „steríó“ eins og þú sagðir alltaf. Ég er þakklátur fyrir tíma okk- ar saman, minningin um þig lifa með mér. Hvíldu í friði, elsku Walter minn, takk fyrir allt. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Kidda, Andreas, Róbert, Hug- rún og fjölskyldur, ég sendi ykkur mína dýpstu samúðarkveðjur. Þinn vinur og svili. Sigurbjörn Jónsson og Hugrún Ólafsdóttir (Sibbi og Rúna). Okkur langar með fáeinum orð- um að kveðja góð- an vin og sam- ferðamann, Ólaf Eyjólfsson. Við vorum með öðrum frum- byggjar sumarhúsabyggðar í landi Indriðastaða í Skorradal. Óli, eins og hann var jafnan kallaður, var sjálfkjörinn þegar stofnað var Félag sumarhúsa- Ólafur Garðar Eyjólfsson ✝ Ólafur GarðarEyjólfsson fæddist í Reykjavík 15. október 1936. Hann lést 22. febr- úar 2018. Útför Ólafs fór fram 2. mars 2018. eigenda í landi Indriðastaða og var hann betri en enginn við að setja félaginu lög og reglur enda vanur samningafundum sem skrifstofu- stjóri hjá stóru fyr- irtæki, þá var hann stjórnarmaður í fé- lagi um hitaveitu í Skorradal til margra ára. Samgangur hefur alla tíð verið mikill á milli bú- staðanna og oft verið glatt á hjalla og ef ekki voru gestir þá var grillað saman og söngur ómaði um dalinn. Oftar en ekki mætti Óli til okkar í morgunkaffi og voru málin rædd á léttu nótunum og verður það ekki tíundað hér heldur geymum við það í minn- ingunni. Ef einhverjar framkvæmdir voru á svæðinu lagði hann allt- af gott til málanna og boðinn og búinn að aðstoða á einhvern hátt. Það er sjónarsviptir að Óla og söknuður að sjá hann ekki á svæðinu eða vita af hon- um niðri við vatn, en minningin mun lifa. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (G.J.) Inga, Kristín, Rósa, Óli og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur og þakklæti fyrir allt. Lilja, Klemens, Andrés og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.