Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 76

Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 76
76 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri Áltaks, á 60 ára afmæli ídag. Hann stofnaði fyrirtækið árið 1997 og er 21 starfsmaðurhjá fyrirtækinu. „Við erum leiðandi í formi klæðninga á byggingamarkaðnum ásamt fullt af öðrum byggingalausnum. Við höf- um séð um klæðningar hjá meira og minna öllu sem ÞG verk og Bygg hafa verið að byggja, eins og Bryggjuhverfinu. Við sáum einnig um klæðningar á álverinu á Grundartanga, Straumsvík og eins hinu hálf- kláraða álveri í Helguvíkinni.“ Magnús rekur ásamt konu sinni Icegolf Travel sem sérhæfir sig í lúxusgolfferðum. „Við leitum fyrst og fremst eftir því að bjóða upp á staði sem hafa meiri sérstöðu og lúxus en aðrar ferðaskrifstofur hafa upp á að bjóða, betri golfvelli, flottari hótel og betri mat. Við erum að leita að því sem Spánn hefur ekki upp á að bjóða. Við erum næst með ferðir til Mazagan í Marokkó, það verður ein ferð í vor og þrjár í haust. Ég hef sjálfur ekki farið þangað en konan mín hefur verið þar.“ Eins og þetta sé ekki nóg þá er Magnús að byggja hótel í Land- borgum ásamt félögum sínum. Það verður með 69 herbergjum og er stefnt á að það verði klárt í maí 2019. Magnús ætlar ekki að gera neitt sérstakt í dag í tilefni dagsins. „Ég fer í uppskurð á morgun, er að láta skipta um mjöðm, svo afmælis- veislan verður að bíða aðeins.“ Eiginkona Magnúsar er Dýrleif Arna Guðmundsdóttir verkfræð- ingur og vinnur hún einnig hjá Áltaki. Dóttir þeirra er Erla María, en fyrir á Magnús soninn Sigurberg og dóttir Dýrleifar er Íris Lóa Eskin. Feðginin Magnús og Erla María á golfvellinum La Sella á Alicante. Afmælisveislan verður að bíða aðeins Magnús Ólafsson er sextugur í dag Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða Verð frá 17.900,- BOURGIE Borðlampi Verð frá 34.900,- BATTERY Borðlampi Verð frá 19.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 36.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- GHOST BUSTER Náttborð Verð 47.900,- stk. TAKE Borðlampi Verð 10.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi Verð 54.900,- S igurður Þorkell Árnason fæddist í Reykjavík 15.3. 1928 og ólst þar upp í foreldrahúsum við Framnesveginn í Vest- urbænum. Sigurður var í Miðbæjarbarna- skólanum, lauk prófi á mótoronám- skeiði Fiskifélags Íslands 1947, fiskimannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1951, farmannaprófi frá sama skóla 1953 og skipstjóraprófi frá varðskipa- deild sama skóla 1955. Sigurður var 14 ára er hann fór fyrst til sjós: „Ég reri þá tvær ver- tíðir hjá Metúsalem Jónssyni, út- vegsbónda á Stafnnesi, á trillu sem gekk fyrir bensínvél úr bifreið, en við vorum á færi og línuveiðum.“ Sigurður var síðan háseti á varð- skipum ríkisins og síðan á gamla Drangajökli til 1953, var annar og fyrsti stýrimaður á varðskipunum Maríu Júlíu, Ægi I, Þór III og Sæ- björgu á árunum 1953-59. Sigurður varð skipherra á Óðni II árið 1959 og varð síðan skipherra á öllum helstu varðskipum land- helgisgæslunnar og starfaði við all- ar deildir Gæslunnar. Þá var hann á flestum flugvélum og þyrlum Gæsl- unnar. Hann er auk þess eini núlif- andi skipherra Landhelgisgæsl- unnar sem tók þátt í að verja útfærslu landhelginnar í fjórar míl- ur 1952, í 12 mílur 1959, í 50 mílur 1971 og í 200 mílur árið 1974. Hann var því skipherra í öllum þorska- stríðunum, 1959, 1971 og 1974. Var þetta ekki svolítið tauga- strekkjandi að vera að klippa und- an breskum togurum undir vernd breskra herskipa? Sigurður Þ. Árnason, fyrrv. skipsherra hjá Gæslunni – 90 ára Fjölskyldan Sigurður og Halldóra Edda með börnum sínum, Magnúsi Viðari, Steinunni Erlu og Jóni Viðari. Var þátttakandi í fjórum þorskastríðum „Jú, minnstu ekki á það. Her- skipin reyndu að smala togurunum í hópa og gæta síðan hjarðarinnar en þá tókum við auka hring, kom- umst oft inn á milli og náðum að klippa á togvírana. Herskipin gengu meira en íslensku varðskipin en við vorum yfirleitt mun liprari. Klippurnar urðu mikilvægt vopn sem reyndi á þolrif þeirra bresku. Reyndar man ég ekki hvað við klipptum á marga togara, en þetta virkaði í baráttunni.“ Sigurður var sæmdur ensku OBE-orðunni fyrir björgun skips- hafnar af enska togaranum Nott County 1974, sem strandaði við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi í febrúar 1968, en þá var Sigurður skipherra á Óðni. Hann var sæmd- ur orðu frá bandaríska sjóhernum, er riddari af den Kongelige Norske Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.