Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 80

Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Víkingamálmsveitin Skálmöld birti í vikunni dularfulla mynd í borða Facebook-síðu sinnar með dagsetn- ingunum 24. og 25. ágúst 2018 og hafa eflaust margir aðdáendur reytt hár sitt og jafnvel skegg yfir því að vita ekki hvað til stendur. Nú hefur svar fengist við þeirri spurningu, Skálmöld mun þá daga halda stór- tónleika í Eldborgarsal Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Karla- kór Reykjavíkur, kammerkórnum Hymnodiu og barnakór Kársnes- skóla, líkt og hún gerði svo eftir- minnilega í nóvemberlok árið 2013. Tónleikarnir voru þá þrennir og málmvísindamaður Morgunblaðsins, Orri Páll Ormarsson, lýsti þeim er hann sat sem „málmmessu áratug- arins“. Plöturnar orðnar fjórar Snæbjörn Ragnarsson, bassaleik- ari og textasmiður Skálmaldar, segir tónleikana verða með svipuðu sniði þar sem sömu kórar syngi með sveit- inni og Sinfóníuhljómsveit Íslands en hins vegar verði efnisskráin ekki sú sama. „Við erum enn að setja saman efnisskrána en við erum búnir að gefa út tvær plötur frá því við gerð- um þetta síðast og núna eru plöt- urnar því orðnar fjórar. Við fengum Harald V. Sveinbjörnsson aftur til að útsetja – maður skyldi ekki breyta því sem er frábært – og ætli það verði ekki álíka mörg lög af hverri plötu,“ segir Snæbjörn. Um helm- ingur efnisskrárinnar verði með lög- um sem flutt voru í Eldborg fyrir fimm árum og hinn helmingurinn af plötunum tveimur sem bæst hafa við frá þeim tíma. Á leið í hljóðver Og Snæbjörn lumar á fleiri frétt- um. „Við erum að fara í stúdíó um helgina að taka upp nýja plötu,“ seg- ir hann og að mögulega muni því lög af henni bætast við efnisskrá tón- leikanna í ágúst. – Hvert verður efni þeirrar plötu? Snæbjörn hlær og virðist lítið geta sagt á þessu stigi máls. „Ég veit það ekki nógu vel sjálfur,“ segir hann sposkur og að lagatextarnir séu enn ósamdir. „Þeir eru alltaf síðastir,“ Skálmöld snýr aftur í Eldborg  Tónleikar með SÍ og ný plata frekar ólík flestum fyrri uppfærsl- um, þessi sýning er miklu viðameiri því Rocky Horror-söngleikurinn er yfirleitt settur upp á frekar einfald- an hátt,“ segir leikstjórinn Marta og spyr leikmyndahönnuðinn, Ilmi, hvort hún taki ekki undir það. Jú, Ilmur gerir það. Marta segir uppfærslur á Rocky Horror oftast frekar pönkaðar og einfaldar en að sú sem er í Borgar- leikhúsinu verði mun flóknari, leik- myndin umfangsmikil og mikið um skiptingar. Ilmur bætir við að stuðið sé auk þess miklu meira. „Það er bú- ið að þenja sýninguna miklu meira út, heim hennar,“ útskýrir Marta. Rocky Horror hafi upphaflega verið jaðarsýning. „Richard O’Brien fékk ekki hlut- verk í Jesus Christ Superstar, fór heim í fýlu og skrifaði Rocky Horr- or,“ rifjar Ilmur upp. „Þetta er hans persónulega saga og það er það sem gerir hana að því sem hún er. Þetta flæddi út úr honum.“ Upphafning Frank-N-Furters „Leikmyndin er mjög innblásin af Páli Óskari og auðvitað alls konar vísunum, úr B-hryllingsmyndum og alls konar gömlum dívum eins og Gretu Garbo og Marlene Dietrich, í raun því sem er draumur Páls Ósk- ars,“ segir Ilmur. – Og kannski um leið draumur leikmyndahönnuðarins? „Já, já, minn draumur og í raun einhvers konar upphafning. Frank- N-Furter sér sig, að einhverju leyti, sem eins konar guð og það verður honum að falli að lokum. Leik- myndin er mjög innblásin af þessu, upphafningu og allt gert til að upp- hefja Frank-N-Further.“ Marta segir Pál Óskar hafa haft mikil áhrif á uppfærsluna. „Samtalið við hann hafði mikil áhrif og veitti okkur öllum innblástur. Rocky Horror stendur honum mjög nærri á svo margan hátt þannig að hans til- lögur voru mjög mikilvægar. Hann er mikill listamaður og það er mjög merkingarþrungið að hann sé Frank-N-Furter í þessari sýningu.“ – Svo tengist verkið jaðarhópum, m.a. samkynhneigðum og transfólki? „Já og á sínum tíma var þetta líka uppreisn gegn ákveðnum gildum, þeim gildum að við hegðum okkur öll á ákveðinn hátt, eigum maka af gagnstæðu kyni, giftum okkur og kaupum hús og bíl. Þetta eru mót- mæli gegn því og að einhverju leyti er barátta samkynhneigðra líka bar- átta gegn þessum viðteknu gildum. Að því leyti til hefur verkið mjög mikla merkingu og Páll Óskar hefur rutt stóra og mikla braut og því hangir þetta í raun saman. Og hann hefur sagt ótrúlega skemmtilegar sögur af því þegar hann sá Rocky Horror í fyrsta skipti, að ég held 13 ára og það var ákveðin uppreisn hjá honum í því að taka þá mynd úti á vídeóleigu í stað þess að leigja sér hasarmynd. Það var hans uppreisn,“ segir Ilmur og brosir. Á enn brýnt erindi Marta segir verkið ádeilu á kassa- fólkið og að það setji spurningar- merki við þau gildi sem enn sé lifað eftir. Á tímum hægrisveiflu, Trump- isma og fordóma, m.a. gagnvart samkynhneigðum og transfólki, eigi verkið sannarlega enn brýnt erindi. Ilmur bætir við að fólk virðist búa yfir hjarðeðli og í óöryggi sínu og ótta leiti það í einhvers konar festu, vilji hafa hlutina á hreinu og að aðrir fari sömu leið. Talið berst aftur að leikmyndinni og Ilmur er spurð að því hver sé helsta áskorunin við gerð hennar. Kannski sú að breyta kastala í geim- skip? Ilmur hlær. „Það er allt hægt á sviði, þetta er svo afstætt og ab- strakt sem er svo æðislegt. Það sem er á sviðinu í því tilfelli er bara kast- ali, hann er inni og úti á sama tíma,“ svarar hún. Helsta áskorunin sé að leikmyndin hafi nógu mikla reisn til að hæfa dívunni, Páli Óskari í hlut- verki Frank-N-Furter. – Er Páll Óskar alltaf að skipta um búninga? Ilmur og Marta hlæja báðar. „Já, já, mjög mikið verið að skipta um búninga og allir eru að skipta mjög mikið um búninga. Það eru margir búningar og mikið af öllu,“ segir Marta brosandi. „Þeir eru svo rosa- lega efnislitlir að það getur verið snúið að komast í þá,“ segir hún kím- in. Einn sé svo götóttur að Páll Ósk- ar þurfi aðstoð við að komast í hann. „Ég held að við séum öll svolítið mikið að leika okkur, okkur finnst þetta ótrúlega gaman,“ segir Ilmur um sýninguna. „Maður finnur fyrir erindi verksins þegar maður er að vinna þessa sýningu og ákveðnu Draumur Páls Óskars Ljósmynd/Grímur Bjarnason Fjör Páll Óskar með heiminn í höndum sér í söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur annað kvöld.  Söngleikurinn Rocky Horror sýndur í Borgarleikhúsinu  Páll Óskar leikur Frank-N-Furter og veitti öllum sem koma að sýningunni mikinn innblástur  Hugvíkkandi verk, segir leikstjórinn VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rocky Horror, hinn sívinsæli söng- leikur Richard O’Brien, verður frumsýndur í nýrri uppfærslu Borg- arleikhússins annað kvöld í leik- stjórn Mörtu Nordal. Páll Óskar Hjálmtýsson snýr aftur í hlutverki klæðskiptingsins, vísindamannsins og geimverunnar Frank-N-Furter sem hann lék fyrir 27 árum í upp- færslu Menntaskólans við Hamra- hlíð á verkinu, eins og frægt er, og í öðrum hlutverkum eru Arnar Dan Kristjánsson, Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þor- geirsdóttir, Vala Kristín Eiríksdótt- ir, Valdimar Guðmundsson, Valur Freyr Einarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmynd, Filippía Elísdóttir búninga og gervi, um þýðingu verks- ins sá Bragi Valdimar Skúlason og danshöfundur er Lee Proud. Jón Ólafsson leiðir svo fimm manna hljómsveit sem er allan tímann á sviði og má geta þess að tónlistar- konan Lay Low plokkar bassann. Umfangsmikil uppfærsla Í söngleiknum segir af kærustu- parinu Brad og Janet sem þurfa að leita skjóls í skuggalegum kastala úti í sveit í vonskuveðri eftir að springur á bílnum þeirra. Þar kynn- ast þau vægast sagt einkennilegum hópi fólks; Furter fyrrnefndum, þjónustuliði hans og hinu guðdóm- lega vöðvatrölli Rocky sem er sköp- unarverk Furter. Brad og Janet eru sakleysið uppmálað í fyrstu en glata því þegar fjör færist í leikinn. Söngleikurinn var frumsýndur í Royal Court-leikhúsinu í London ár- ið 1973 og tveimur árum síðar var frumsýnd kvikmyndin gerð eftir honum og hafa bæði söngleikurinn og kvikmyndin notið mikilla vinsæla allar götur síðan. „Ég held að þessi uppfærsla sé mánudaginn 19. mars, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is fimmtudag og föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16 og mánudag 10–17 Karólína Lárusdóttir Listmunauppboð nr. 109 Forsýning á verkunum fimmtudag til mánudags Karólína Lárusdóttir Þo rv al du rS kú la so n
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.