Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 82

Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 82
VIÐTAL Hildur Loftsdóttir Árni Sæberg „Við nálgumst þetta allt frá opnu formi djassspunans og frelsislög- málum djassins þannig að hver flutn- ingur er einstakur. Þetta er mjög in- tens því hver einasta upptaka þarf að virka,“ segir Jóel Pálsson saxófón- leikari þar sem við fengum að heim- sækja hann í Sundlaugina í Álafoss- kvosinni meðan á upptökum nýjustu plötu hans stóð. Við læðumst inn úr sólinni og göngum varlega eftir bökkum laugarinnar á meðan tónlist- armennirnir pæla í hvort þeir eigi að enda lagið á átta töktum í es-moll. Fyrsta platan með söngvara „Það er gott að vinna hér, en það eru ekki mörg stúdíó sem koma til greina til að taka upp lifandi tónlist. Við þurfum allir að vera eins ein- angraðir og við getum, svo það leki sem minnst á milli hljóðfæranna. Þá hefur hljóðmaðurinn betri stjórn á hverju og einu hljóðfæri, þannig að það verður auðveldara að hljóð- blanda eftir á,“ útskýrir Jóel sem fékk með sér á plötuna Eyþór Gunn- arsson á hljómborð, Valdimar Kol- bein Sigurjónsson á bassa og Einar Scheving á slagverk; menn sem hann hefur unnið ótal sinnum með áður. Þetta er sjöunda platan sem Jóel gefur út með sínum eigin lögum, en hann er nú í fyrsta skipti að vinna með texta og söng. Hann fékk tón- listarmanninn Valdimar Guðmunds- son til að syngja fyrir sig ljóð eftir skáldin Þórarin Eldjárn, Gerði Kristnýju, Gyrði Elíasson, Sigur- björgu Þrastardóttur og Braga Ólafsson. „Þetta kom til mín óvænt. Ég sat við píanóið heima og var að spila hugsunarlaust. Síminn minn var á nótnapúltinu og þá kom Þórarinn upp á facebook þar sem hann var með ljóðaviðrun; var að viðra eftir sig gamalt ljóð. Þarna birtist ljóðið „Geigun“ á skjánum hjá mér. Mér fannst það flott og spilaði með og lag- ið varð eiginlega til á sama tíma og ég las ljóðið,“ segir Jóel. „Mér fannst þetta eitthvað grun- samlega auðvelt, hahaha, og vildi „Kom til mín óvænt“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Í hljóðverinu Sund- lauginni hugsa menn um „triplet feel“ og landið sitt sem út- breidda banasæng í sömu andránni. Jóel Pálsson og djassfélagar hans tóku upp plötuna Dagar koma, og kemur hún út í dag. Í fyrsta sinn Sjöunda plat- an sem Jóel sendir frá sér með eigin tónsmíðum, er sú fyrsta með textum og söng. 82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.