Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Bir
tm
eð
fr
irv
ar
au
m
re
ntv
illu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
9. október í 13 nætur
Frá kr.
429.895
595 1000 . heimsferdir.is
SRI LANKA
Leyndardómar
Innifalið: Flug, skattar, innrituð 30 kg taska, gisting í 11 nætur á 3*+ og 4*
hótelum með morgun- og kvöldverði á hótelunum ásamt 5 hádegisverðum.
Kynnisferðir skv. ferðatilhögun. Aðgangseyrir þar sem við á. Ferðmannaáritun
og íslensk fararstjórn.
Fararstjóri:
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, fjölmiðlakona
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Það eru allir samstiga“
Formlegar viðræður Viðreisnar og gamla meirihlutans í Reykjavík hefjast í dag
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Formlegar meirihlutaviðræður Samfylkingar, Við-
reisnar, Pírata og Vinstri grænna í borgarstjórn
Reykjavíkur hefjast í dag. Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir, oddviti Viðreisnar, greindi frá þessu í frétta-
tilkynningu undir kvöld í gær.
Tveir fulltrúar frá hverjum flokki munu sitja við
samningaborðið. Fyrsti fundur nýrrar borgar-
stjórnar verður 19. júní og stefna flokkarnir fjórir
að því að samstarfssáttmáli nýs meirihluta liggi fyr-
ir nokkru fyrr.
„Við erum ekki að koma í stað Bjartrar fram-
tíðar. Við erum að fara að hefja viðræður um mynd-
un nýs meirihluta. Forsendur eru breyttar og við
lítum ekki á okkur sem staðgengil neins,“ sagði
Þórdís Lóa í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld.
Hún segir að ekki hafi enn verið rætt um hver
setjist í stól borgarstjóra. Eins og kunnugt er hafa
verið kenningar á lofti þess efnis að Viðreisn myndi
krefjast þess að Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam-
fylkingar, yrði ekki áfram borgarstjóri.
„Við setjum ekki neina úrslitakosti í þessum við-
ræðum. Við förum beint inn í þetta og látum mál-
efnin varða leiðina. Það eru allir samstiga. Hlutverk
og verkaskipting verða ákveðin í lokin.“
Þið hafið lagt áherslu á málefni tengd atvinnulíf-
inu. Munuð þið taka þær áherslur með ykkur í við-
ræðurnar?
„Já, ásamt áherslum okkar til dæmis í mennta-
og velferðarmálum. En já, við höfum sagt að það
verði að huga að litlum og meðalstórum fyrirtækj-
um til að við getum hugað að fólki. Eins að atvinnu-
lífið sé úti um alla borg, ekki bara í vesturbyggð
borgarinnar.“
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins,
sagði við Morgunblaðið að kjósendur hefðu ekki
kallað eftir þessum meirihluta. „Niðurstaða kosn-
inganna var skýr. Hún var ákall um breytingar.
Ekki að sömu flokkar héldu áfram og nú með stuðn-
ingi Viðreisnar.“
Eyþór kveðst hafa átt marga ágæta fundi með
Viðreisn. Hann kveðst ekki hafa ástæðu til að ætla
annað en að heilindi hafi verið að baki viðræðunum.
„Af því sem við máttum sjá var einlægur áhugi á að
starfa með okkur. Ef þetta var leikrit – þá var það
vel leikið.“
Á stjórnarfundi Hörpu í gær kynnti
forstjórinn, Svanhildur Konráðs-
dóttir, stjórn félagsins þá ákvörðun
sína að greiða þjónustufulltrúum
tímakaup sem tekur í meginatriðum
mið af samningum sem voru í gildi á
síðasta ári, skv. tilkynningu.
Einnig var á fundinum samþykkt
tillaga stjórnarformanns um að falla
frá átta prósenta hækkun stjórnar-
launa. Laun stjórnarmanna haldist
því óbreytt frá árinu 2013.
Breytingarnar hafa verið kynntar
þjónustufulltrúum og taka gildi 1.
júní nk. Verður tímakaup 26,1% yfir
taxta stéttarfélags eða að meðaltali
2.935 kr. á klst. í eftirvinnu, en 85%
vinnustunda þjónustufulltrúa eru á
kvöldin og um helgar.
Stjórnin samþykkti tillögu for-
stjórans um að utanaðkomandi fag-
aðili gerði markaðslaunagreiningu á
kjörum þjónustufulltrúa Hörpu sem
starfa í hlutastarfi. Kjör þeirra verði
m.a. borin saman við sambærileg
störf annars staðar. Leitað hefur
verið til ráðgjafarfyrirtækisins At-
tentus mannauður og ráðgjöf ehf.
um að annast verkið. Í samráði við
starfsmenn verður hafinn undirbún-
ingur að gerð starfsmats og mark-
aðslaunagreiningar fyrir öll störf hjá
Hörpu og jafnlaunavottun.
Í frétt frá stjórninni segir að
mikilvægt sé að byggja á árangri
sem náðst hefur og tryggja stöðug-
leika í starfsumhverfi Hörpu. Sér-
stök stefnumótunarvinna fari nú
fram innan Hörpu með þátttöku
helstu hagsmunaaðila og muni
niðurstaða vinnunnar móta starf-
semina á næstu árum. Stjórn Hörpu
vilji stuðla að víðtækri sátt og sam-
stöðu um starfsemina í húsinu.
Fá gamla
kaupið
aftur
Forstjóri Hörpu
gefur eftir
Morgunblaðið/Júlíus
Harpa Hart hefur verið deilt um
launamál innanhúss undanfarið.
„Ég vil bara hvetja niðurrignda
Reykvíkinga til að láta sjá sig í góða
veðrinu hérna í Ásbyrgi,“ segir Guð-
mundur Ögmundsson landvörður í
samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur nýlokið við að slá
tjaldsvæðið og umhverfis Gljúfra-
stofu í Ásbyrgi, en það hefur ekki
verið gert áður fyrr en í júní.
Hitamet, 24,3 gráður, mældist í
Ásbyrgi í fyrradag og útlit er fyrir
áframhaldandi sunnan- og vestan-
áttir, sem eru hagstæðar fyrir
svæðið. „Hér er allt komið á fullt,
gróðurinn, dýrin og ferðamennirn-
ir,“ segir Guðmundur, ekki sé að sjá
fækkun ferðalanga frá sama tíma í
fyrra. Ásbyrgi sé vinsæll áfangastað-
ur bæði íslenskra og erlendra gesta.
Aðstaða á svæðinu sé góð og verði
enn bætt í sumar.
Tjaldsvæðið í Ásbyrgi
slegið og hitametið einnig
Ferðamenn í glaðasólskini Hitinn mældist 24,3 gráður
Ljósmynd/Guðmundur Ögmundsson
Heyskapur í Ásbyrgi Ferðamenn fylgjast með Guðmundi Ögmundssyni
landverði raka saman heyi í sólskini og brakandi þurrki í fyrradag.
Hestamennirnir Sigurbjörn Magnússon og nafni
hans Bárðarson komu ríðandi í höfuðstöðvar Ár-
vakurs í Hádegismóum í gærmorgun. Tilefni
reiðtúrsins var Landsmót hestamanna sem hald-
ið verður í Reykjavík 1.-8. júlí næstkomandi. Í
viðtali í morgunþættinum Ísland vaknar á K100
greindu þeir félagar frá því að mikið yrði um
dýrðir á Landsmótinu sem er hið 23. í röðinni.
Ókeypis verður inn fyrsta dag mótsins. »58
Hestamenn í Hádegismóum
Morgunblaðið/Arnþór
Hitað upp fyrir 23. Landsmót hestamanna