Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
skattur.is
Álagningar- og innheimtuseðlar
einstaklinga 2018
eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra
rsk.is og skattur.is.
Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna
álagningar verður greidd út 1. júní.
Upplýsingar um greiðslustöðu veita
tollstjóri og sýslumenn.
Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra
dagana 31. maí til 14. júní 2018, að báðum dögum meðtöldum.
Kærufresti lýkur 31. ágúst 2018.
442 1000
rsk@rsk.is
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Álagningu skatta á
einstaklinga er lokið
2018
Icelandair hefur á ný hafið flug til
Baltimore eftir um áratugar hlé, en
borgin var í leiðakerfi Icelandair
um árabil. Flogið er fjórum sinnum
í viku fram í miðjan október.
Baltimore er meðal fimm borga í
Norður-Ameríku sem Icelandair
bætir við leiðakerfi sitt í vor. Hinar
eru Kansas, Cleveland, Dallas og
San Francisco. Alls flýgur Iceland-
air til 23 áfangastaða í Norður-
Ameríku á þessu ári.
Með fluginu til Baltimore (BWI-
flugvallar) eykur Icelandair fram-
boð sitt inn á hið fjölmenna Wash-
ington/Baltimore-svæði, en Ice-
landair flýgur nú þegar á
Dulles-flugvöllinn í Washington.
Um 70 kílómetrar eru á milli flug-
vallanna. „Á þessu markaðssvæði
búa um 10 milljónir íbúa og höf-
uðborgin er að sjálfsögðu mikil
miðstöð stjórnsýslu og viðskipta í
Bandaríkjunum,“ segir í frétt frá
Icelandair.
Þetta er fjórða stórborgarsvæðið
sem Icelandair þjónar með flugi á
tvo flugvelli. Nú þegar er boðið upp
á flug til New York, London og
Parísar. sisi@mbl.is
Icelandair hefur að
nýju flug til Baltimore
Ljósmynd/Icelandair
Móttaka Við komuna til Baltimore var fyrsta fluginu fagnað með hefðbundnum hætti af slökkviliði vallarins.
Mennta- og menningarmálaráð-
herra hefur samþykkt tillögu
stjórnar Hljóðritasjóðs um fyrri út-
hlutun úr sjóðnum 2018. Umsókn-
arfrestur rann út 15. mars sl., 89
umsóknir bárust og sótt var um ríf-
lega 72 milljónir. Samþykkt var að
veita 58 styrki, samtals að upphæð
17.650.000.
Styrkt verkefni eru af ýmsum
toga og styrkupphæðir eru á bilinu
100.000-1.000.000. Gott samræmi
reyndist í úrvali tónlistartegunda
umsækjenda og þeirra sem hljóta
styrk, segir í fréttatilkynningu.
Sömu sögu má segja um kynjahlut-
fall umsækjenda og styrkþega.
Hlutverk Hljóðritasjóðs er að
efla íslenska hljóðritagerð í tónlist
með fjárhagslegum stuðningi við
útgáfu hljóðrita. Íslensk hljóðrit
eru annaðhvort unnin og kostuð af
íslenskum aðilum eða í erlendu
samstarfi.
Styrkjum úthlutað
úr Hljóðritasjóði
Erlendir sérfræðingar munu gera
grein fyrir ráðgjöf sinni til stjórn-
valda á ráðstefnu um framtíð ís-
lenskrar peningastefnu sem haldin
verður á Grand hótel á miðvikudag-
inn í næstu viku.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra mun opna fundinn en að því
búnu mun Ásgeir Jónsson, formað-
ur nefndar um endurskoðun á
ramma peningastefnu, kynna
niðurstöður nefndarinnar. Þá taka
til máls prófessorarnir Kristin J.
Forbes, Sebastian Edwards Fredik
Andersson og Lars Jonung auk Pat-
rik Honohan, fyrrverandi seðla-
bankastjóra Írlands.
Ræða framtíð
peningastefnunnar
Morgunblaðið/Þórður
Endurskoðun Ásgeir Jónsson formaður.
Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga vegna sérþarfa fatlaðra
nemenda á grunnskólaaldri nema
tæpum 2,3 milljörðum króna í ár.
Þar af fær Reykjavíkurborg 1,3
milljarða, Kópavogur 137,5 millj-
ónir króna, Hafnarfjörður 107,2
milljónir, Akureyri 82 milljónir,
Mosfellsbær 77 milljónir og Reykja-
nesbær 75 milljónir króna. Sextán
sveitarfélög fá engin fjárframlög
vegna þessa málaflokks en fimmtán
sveitarfélög fá 1.350.000 krónur
hvert.
Framlögin eru veitt á grundvelli
umsókna sveitarfélaga vegna sér-
þarfa fatlaðra nemenda sem eiga
lögheimili í sveitarfélaginu, að því
er fram kemur á vef Stjórnarráðs-
ins, óháð því hvar þeir fá kennslu.
2,3 milljarðar vegna
sérþarfa fatlaðra