Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
og sandgildru áður en það er veitt
í viðtaka.
50 manns að störfum
ÍAV og svissneska fyrirtækið
Marti, sem saman standa að Ósafli
sf., eru aðalverktakar við ganga-
gerðina. Á þess vegum og undir-
verktaka eru um 50 manns að
störfum nú. Í þeim hópi eru meðal
annars starfsmenn Rafmanna á
Akureyri sem annast alla raf-
magnsvinnu í göngunum. Núna
eru þeir að smíða og forrita ýmsan
tækjabúnað, svo sem lýsingu, blás-
ara og öryggisbúnað sem meðal
annars verður í tæknirýmum
ganganna sem verða alls fjögur.
Inn af þeim eru svo hvelfingar eða
neyðarrými þar sem fólk á að geta
hafst við ef til dæmis kemur upp
eldsvoði eða önnur hætta, en þetta
eru fyrstu jarðgöngin á Íslandi
sem eru þannig útibúin. Í gegnum
göngin öll verða svo sérstakir
neyðarskápar með slökkvitækjum
og síma, sem eru tengdir beint við
Neyðarlínuna.
Mesta tækniverkið viðvíkjandi
jarðgöngunum er sennilega gjald-
heimtukerfið, sem nú er verið að
forrita og hanna. Fyrirkomulagið
verður þannig að myndavélar lesa
af númeraplötum allra bíla sem
fara í gegn. Bílar sem eru í áskrift
og eru skráðir inn í tölvukerfið
geta ekið beint í gegn og vega-
gjaldið gjaldfærast þá sjálfkrafa af
reikningi sem bílnum tilheyrir. Þá
er áætlunin að ökumenn, til dæmis
bílaleigubíla, geti keypt stakar
ferðir með því að fara inn á heima-
síðu og greiða þar. Ef ekki, verður
mögulegt að aka beint í gegn en
þá berst reikningur fyrir gang-
aferðina í heimabanka eða
greiðsluseðill á kennitölu skráðs
eiganda viðkomandi bíls.
Færeysk fyrirmynd
í gjaldheimtu
„Þessi útfærsla á gjaldheimtu er
orðin mjög algeng í dag. Svona er
þetta til dæmis í Færeyjum en það
er fyrirmynd okkar í gjaldheimt-
unni. Innheimta vegtolla í mönn-
uðu gjaldskýli, eins og í Hvalfjarð-
argöngum, er barn síns tíma,“
segir Valgeir sem segir enn ekki
ákveðið hvert vegagjaldið í Vaðla-
heiðargöngum verður.
„Gjaldskráin á að verða einföld
og gegnsæ. Sennilega verða meg-
ingjaldflokkarnir aðeins tveir, það
er bílar undir og yfir 3,5 tonnum
og svo afsláttarkjör í samræmi við
fjölda ferða. Allt afgreitt í gegnum
netið og innheimtan þar með sjálf-
bær þáttur í rekstri ganganna.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fnjóskadalur Er komið er í gegnum göngin austanmegin blasir þetta við.
Sval-
barðs-
eyri
HÚSAVÍK
Laugar
Vaðlaheiðargöng
AKUREYRI
Grenivík
Goðafoss
VAÐLA-
HEIÐAR-
GÖNG
Hlífar og undirföt
Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á
þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu
og hlýjum án þess að valda kláða.
Hlífarnar eru tilvaldar til hvers kyns útivista og
eins og hjólreiða, útihlaupa eða í golfið.
Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki
Y L F A
ANGÓRA
Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is
n þess að
m þurrum
íþrótta,
„Vaðlaheiðargöngin verða mikil samgöngubót og
gagnrýnisraddir á hve dýr þessi framkvæmd er verða
mjög fljótar að fjara út,“ segir Jón Helgi Björnsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
„Greiðar samgöngur eru mikið öryggismál og nú
verða fáar fyrirstöður þegar fólk þarf að sækja til
dæmis á Akureyri, þar sem er fullkomið sjúkrahús og
ýmis miðlæg starfsemi heilbrigðisþjónustu á norðan-
verðu landinu svo sem fæðingar- og slysadeildir.
Jarðgöng munu sömuleiðis gera Eyjafjörð og Þing-
eyjarsýslurnar að einu atvinnusvæði og að þessu
leyti er þessi framkvæmd mjög öflug byggðaaðgerð.
Að henni afstaðinni bíða svo mörg fleiri verkefni í samgöngumálum
hér á Norðurlandi og þar hlýtur bygging nýrra brúa yfir Jökulsá á Fjöll-
um og Skjálfandafljót að vera ofarlega á blaði og svo síðasti áfanginn
við Dettifossveginn.“
Þetta er öflug byggðaaðgerð
MIKIÐ ÖRYGGISMÁL OG GAGNRÝNI FJARAR ÚT
Jón Helgi
Björnsson
„Ég þekki vel af æskuslóðum mínum fyrir vestan
hvað allar samgöngubætur eru fljótar að sanna gildi
sitt og breyta miklu. Vestfjarðagöng voru opnuð ár-
ið 1996 og þar með fengu byggðarlög sem bjuggu
við einangrun öruggar samgöngur árið um kring. Á
sama hátt trúi ég því að jarðgöngin undir Vaðla-
heiði verði fljótlega eftir opnun talin hafa sannað
gildi sitt,“ segir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,
þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi.
Albertína segir að meðal þingmanna kjördæmis-
ins hafi verið samstaða um að tryggja framgang
þessa verkefnis enda skipti það miklu fyrir Norður-
og Austurland og mannlíf þar um slóðir. „Þetta stækkar atvinnu-
svæðin. Sveitarstjórnarfólk sér líka ýmis tækifæri felast í þessu, til
dæmis um aukna samvinnu og útfærslu þeirra margvíslegu verkefna
sem unnið er að. Svo fylgir þessu að Akureyringar fá öruggari vatns-
veitu og í skoðun er að nýta heita vatnið sem fellur fram úr göng-
unum.“
Samgöngubætur sanna sig
SAMSTAÐA MEÐAL ÞINGMANNA Á SVÆÐINU
Albertína Frið-
björg Elíasdóttir