Morgunblaðið - 31.05.2018, Síða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis gerði at-
hugasemdir við hvernig sölu
brauðs var háttað í fimm versl-
unum Krónunnar. Þetta var nið-
urstaða reglubundinnar skoðunar
eftirlitsins frá því í mars síðast-
liðnum í Krónunni Hamraborg,
Hvaleyrarbraut, Vallakór, Flata-
hrauni og Skógarlind.
Morgunblaðið hefur áður fjallað
um deilu forsvarsmanna Krón-
unnar við heilbrigðiseftirlitið um
sölu brauðs á svokölluðum brauð-
bar.
Athugasemdir eftirlitsins nú
sneru að umhverfi sem brauðið er
selt í, framkvæmd þrifa, fram-
kvæmd þjálfunar starfsfólks og
verklagi um vörn gegn mengun.
„Körfur undir brauðmeti eru úr
basti. Þær er ekki hægt að þrífa,
einungis er brauðmylsna hrist úr
körfunum. Bein snerting matvæla
er ekki heimil við þessar körfur,“
segir í athugasemdum.
„Sérstök afmörkuð aðstaða ekki
til staðar þar sem hægt er að þrífa
áhöld og ílát. Ekki til staðar upp-
þvottavél til þrifa á áhöldum,“
segir þar enn fremur. Þá segir að
ekki séu til staðar umgengisreglur
fyrir viðskiptavini, áhöld/tangir séu
ekki föst við sjálfsafgreiðslubarinn
heldur liggi ofan á brauðkössum og
ekki hafi verið til staðar áhöld fyr-
ir hverja tegund brauðmetis til að
lágmarka hættu á krossmengun.
Að sögn Guðmundar H. Einars-
sonar, framkvæmdastjóra Heil-
brigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis, var samþykkt að
veita fyrirtækinu frest til að skila
andmælum og úrbótaáætlun.
„Fyrirtækið hefur kynnt úrbætur
sem taldar eru fullnægjandi,“ segir
Guðmundur.
Jón Björnsson, forstjóri Festis
sem rekur verslanir Krónunnar,
segir að komið hafi verið til móts
við athugasemdir Heilbrigðiseft-
irlitsins. Hann segir að gerð hafi
verið krafa um sérstaka upp-
þvottavél í verslanir og breytt fyr-
irkomulag afhendingu brauða til
verslunarinnar.
„Við verðum að þvo tangirnar
sem notaðar eru á brauðbörunum í
sérstakri uppþvottavél inni í sér-
herbergi. Þá voru athugasemdir
varðandi afhendingu bakarísins á
brauðunum til okkar. Það er búið
að gera ráðstafanir í því líka og
þær kalla á meiri plastnotkun. Við
hins vegar andmælum enn því að
við þurfum að selja brauðin í svo-
kölluðum lokuðum plastkössum. Ís-
land virðist vera eina landið í Evr-
ópu þar sem farið er fram á það að
allt brauð sé lokað ofan í plastköss-
um með loki ofan á. Við höfum
reynt að fá heilbrigðiseftirlitið í lið
með okkur en án árangurs. Við
skiljum þetta ekki.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Krónan Heilbrigðiseftirlit gerði athugasemdir við það hvernig sölu brauðs
var háttað í fimm verslunum í mars. Úrbætur hafa síðan þá verið gerðar.
Krónan og heilbrigðiseft-
irlit deila um brauðsölu
Forstjóri segir heilbrigðiskröfur kalla á meiri plastnotkun
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég vil líta á þetta sem einn við-
burð á Listahátíð. Það bara
gleymdist að setja hann á dag-
skrána,“ segir Ólafur Örn Ólafsson
veitingamaður.
Ólafur hefur skipulagt forvitni-
lega veitingasölu sem verður í
Hafnarhúsinu á Listahátíð í
Reykjavík. Hátíðin sjálf verður sett
á morgun en Ólafur og hans fólk
hefur framreiðslu á laugardag.
Veitingasalan er í raun tvíþætt.
„Annars vegar á neðri hæðinni á
Klúbbi Listahátíðar. Þar verður
hellingsdagskrá meðan hátíðin
stendur og við verðum með einfald-
ar veitingar sem verða í boði allan
daginn. Þær verða framreiddar úr
Skúrnum sem fær þarna enn eitt
hlutverkið,“ segir veitingamaður-
inn.
Umræddur Skúr er hugarfóstur
myndlistarmannsins Finns Arnars
Arnarsonar og hefur hann verið
kallaður fjölnota menningarhús.
Finnur Arnar kom Skúrnum á
laggirnar á Grenimel síðla árs 2012
og náðu fimm listamenn að sýna
þar áður en fjarlægja þurfti skúr-
inn. Síðan þá hefur hann farið víða,
til að mynda til Stykkishólms. Nú
verður hann notaður til að selja
súpur og grillaðar samlokur á
Listahátíð.
Á efri hæð Hafnarhússins verður
hins vegar settur upp vínbar sem
kallast mun Partí & kjaftæði, með
vísan í lag með rapparanum Biggie
Smalls. „Blessuð sé minning hans,“
segir Ólafur en þema umrædds vín-
bars er náttúruvín, náttúrumatur
og 90’s-hipphopp.
„Þarna er samankomið í þemanu
allt það sem mér finnst skemmti-
legt. Náttúruvín er vinsælt núna,
maturinn verður allskonar en gerð-
ur úr náttúrulegu og lókal hráefni.
Við römmum þetta svo inn með
tónlist frá gullaldartímabili hipp-
hopptónlistar. Hún verður meira og
minna spiluð af vínyl svo þetta mun
hljóma sjúklega vel. Það er ekkert
sem getur klikkað þarna,“ segir
veitingamaðurinn.
Ólafur vinnur þetta í samstarfi
við Kjartan Óla Guðmundsson.
„Hann er pop up-meistari Reykja-
víkur, er með fyrirtæki sem heitir
Borðhald og hefur staðið fyrir alls-
konar viðburðum,“ segir Ólafur en
þeir hafa síðustu daga verið að
leggja lokahönd á matseðilinn. Þá
hafa þeir haft alla anga úti við að
útbúa vínseðil. Stefnan er sett á að
geta boðið upp á allar þær tegundir
náttúruvíns sem fást hér á landi.
„Mér sýnist þetta stefna í vínseðil
með um 100 titlum.“
Náttúruvín hefur notið sívaxandi
vinsælda hér á landi að undan-
förnu, sér í lagi meðal háværs hóps
úr listageiranum sem notar hvert
tækifæri á samfélagsmiðlum til að
tala vínið upp. Fer þar sennilega
fremstur í flokki Halldór Laxness
Halldórsson, betur þekktur sem
Dóri DNA.
Engar reglur um náttúruvín
Ólafur kveðst fyrst hafa smakkað
náttúruvín á veitingastaðnum Dill,
sem hann tók þátt í að setja á stofn
fyrir um 7-8 árum. Síðan þá hefur
orðið til hreyfing úti í heimi um
náttúruvín og sú hreyfing er að
ryðja sér til rúms hér.
„Ég vil auðvitað opna augu fleira
fólks fyrir þessari tegund víns sem
kallast náttúruvín. Þetta er samt
opið heiti, það eru engar reglur til
um gerð náttúruvíns. Þetta er svo-
lítil pönk-víngerð. En þetta er þó
gjarnan vín sem búið er til á sama
hátt og vín var búið til fyrir mörg
hundruð árum, í því er ekkert
auka-ger, ekkert súlfít og í sumum
tilvikum er það ekki síað. Margar
tegundir þess eru með mjög sér-
kennilegum blæ. Mig langar ekki
síst að fá eitthvert samtal um þetta
vín. Ég hef sjálfur smakkað vont
náttúruvín en það dregur ekki úr
forvitninni að smakka fleiri teg-
undir.“
100 gerðir náttúruvíns í Hafnarhúsi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Partí & kjaftæði Veitingamennirnir Kjartan Óli Guðmundsson og Ólafur Örn Ólafsson munu reiða fram náttúruvín og
náttúrumat á efri hæð Hafnarhússins á Listahátíð í Reykjavík. Á fóninum verður hipphopp frá tíunda áratugnum.
Veitingasala á Listahátíð í Reykjavík með hressilegu móti Vínbarinn Partí & kjaftæði í Hafnar-
húsinu Selur náttúruvín og náttúrumat undir hipphopptónlist frá tíunda áratug síðustu aldar
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR
ÞIG
PÍPARA?
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is