Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Veiðar á kolmunna í færeyskri lög-
sögu hafa gengið vel síðustu vikur.
Aflinn frá áramótum er kominn yfir
200 þúsund tonn, en aflaheimildir
ársins eru um 315 þúsund tonn að
meðtöldum sérstökum úthlutunum
og flutningi á milli ára.
Skipin tínast nú eitt af öðru til
hafnar, en í kringum sjómannadag
eiga öll skip að vera bundin við
bryggju í þrjá sólarhringa á tíma-
bilinu frá hádegi á föstudegi til há-
degis á þriðjudegi.
Skipin hafa verið að veiðum í fær-
eyskri lögsögu undanfarnar vikur,
en dregið hefur úr afla þar síðustu
daga. Kolmunnavertíðin byrjaði
fljótlega eftir áramót á alþjóðlegu
hafsvæði vestur af Írlandi og við
Færeyjar. Í febrúar veiddu íslensku
veiðiskipin tæplega 10 þúsund tonn,
tæp 20 þúsund í mars, 94 þúsund
tonn í apríl og tæplega 83 þúsund
tonn í maí. Ekki er ólíklegt að afli
mánaðarins fari yfir 90 þúsund tonn
þegar búið verður að landa í dag og á
morgun, en skipin koma öll inn fyrir
sjómannadag.
Á norðurleið í ætisleit
Í reglugerð um kolmunnaveiðar
sem gefin var út í byrjun febrúar er
kveðið á um að a.m.k. 25% af kol-
munnaveiði íslenskra skipa skuli
fara fram í íslenskri lögsögu eða á al-
þjóðahafsvæði. Af Færeyjamiðum er
búið að landa tæplega 180 þúsund
tonnum í ár, eða nálægt 90% af afl-
anum.
Innan íslenskrar lögsögu er búið
að veiða um þrjú þúsund tonn og
a.m.k. eitt skip reyndi fyrir sér inn-
an lögsögunnar í gær. Líklegt er að
útgerðir kanni möguleika á kol-
munnaveiðum í lögsögunni eftir
sjómannadag en kolmunni gengur
norður á bóginn í ætisleit að lokinni
hrygningu vestur af Bretlands-
eyjum.
Kolmunnaafli yfir 200 þúsund tonn
Morgunblaðið/Ómar
Hákon á leið til hafnar Uppsjávarskipin hafa undanfarið verið á kolmunnaveiðum við Færeyjar. Vegna sjómannadagsins eru skipin á leið til hafnar.
Hátíð sjómanna um helgina og skipin tínast hvert af öðru til hafnar
Ísfisktogarinn Ottó N. Þorláksson
RE kom til Reykjavíkur sl. sunnu-
dag með fullfermi. Þetta var síð-
asta veiðiferð þessa mikla afla-
skips fyrir HB Granda en í stað
þess kemur nýsmíðin Viðey RE,
segir í frétt á vef HB Granda.
Ottó N. Þorláksson var smíð-
aður í Stálvík í Garðabæ árið
1981. Skipstjóri hefur verið Jó-
hannes Ellert Eiríksson, en hann
tók við togaranum fyrir 24 árum.
Ottó N. Þorláksson er nú í slipp í
Reykjavík þar sem nýir eigendur
taka við honum í vikunni.
Viðey hefur eftir komuna frá
Tyrklandi í desember sl. verið á
Akranesi þar sem starfsmenn
Skagans 3X hafa unnið að upp-
setningu nýs, sjálfvirks lestar-
kerfis, aðgerðaraðstöðu á milli-
dekki og stillingu á ýmsum tölvu-
búnaði. Stefnt er að því að togar-
inn fari í reynslusiglingu fyrir
sjómannadag og svo á veiðar í
framhaldinu.
Otto kom með
fullfermi í sinni
síðustu veiðiferð
Ljósmynd/HB Grandi
Aflaskip Ottó hefur farið í síðustu veiði-
ferð sína fyrir HB Granda.