Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Fram að þessu hafa einungis verið
til þrjár súkkulaðitegundir í heim-
inum; mjólkur-, dökkt og hvítt
súkkulaði, en 80 ár eru síðan hvíta
súkkulaðið leit dagsins ljós.
Ruby-súkkulaðið er að sögn fram-
leiðandans náttúruleg afurð þar sem
engin litar- eða bragðefni eru notuð
við framleiðsluna.
Liturinn kemur frá ruby-kakó-
bauninni en að sögn framleiðandans
tók mörg ár að leysa eiginleika
baunarinnar úr læðingi með háþró-
uðum aðferðum. Ruby-súkkulaðið
þykir bæði bragðmikið auk þess
sem litur þess er mjög afgerandi
þrátt fyrir að vera algjörlega nátt-
úrulegur.
Ruby-súkkulaði er sagt afar
óvenjulegt á bragðið en afskaplega
bragðgott. Það sé bæði súrt og sætt
með margslungið eftirbragð. Bragð-
ið ber keim af ávöxtum, sítrus og
berjum, í bland við hefðbundið
súkkulaði. Matgæðingar og súkku-
laðispekúlantar um heim allan hafa
mikið velt þessu fyrir sér og greini-
legt er að tíðindin um að komið sé
fram „fjórða“ súkkulaðið eru í huga
margra ígildi þess að nýtt sólkerfi
hafi verið uppgötvað.
Slagsmál um Evrópu
Það er svissneski súkkulaðifram-
leiðandinn Barry Callebaut sem
framleiðir súkkulaðið en fyrirtækið
hefur verið að þróa bleiku kakó-
baunina og nýja súkkulaðið í 13 ár.
Nú er súkkulaðið komið á markað
úti í heimi því hið víðfræga fyrir-
tæki Nestlé fékk fyrst allra að fram-
leiða úr því. Var fyrsta afurðin,
bleikt KitKat, sett á markað í Kóreu
og Japan í byrjun árs og kostar eitt
stykki (sem er ein „stöng“) tæpar
400 krónur. Til stóð að Nestlé
myndi einnig ná að verða fyrsta
fyrirtækið til að selja ruby-súkku-
laðið í Evrópu en lúxusvörufram-
leiðandinn Fortnum & Mason náði
að vera þremur dögum á undan.
Þessir æsispennandi atburðir áttu
sér stað í apríl á þessu ári en enn er
ekki vitað hvaða fyrirtæki fær næst
að framleiða úr bleiku baununum
þar sem enn er afar takmarkað
magn til af þeim.
Mikil eftirvænting ríkir því í
súkkulaðiheiminum yfir því hvar
ruby-súkkulaðið birtist næst en í
Evrópu hafa áhugasamir verið að
panta það frá Kóreu og Japan og
því ljóst að menn eru tilbúnir að
greiða háar fjárhæðir fyrir bita af
eftirsóttasta súkkulaði heims.
Eftirsóttasta súkkulaði heims
Ljósmynd/Barry Callebaut
Bleikt og fagurt Svona lítur hin goðsagnakennda ruby-súkkulaðibaun út og hér má jafnframt sjá súkkulaðið sjálft.
Stórtíðindi bárust úr
sælgætisheiminum fyrr
á þessu ári þegar sviss-
neski súkkulaðiframleið-
andinn Barry Callebaut
frumsýndi það sem kall-
að hefur verið „fjórða“
súkkulaðið og hlotið
nafnið Ruby.
Ljósmynd/Nestlé
Selst eins og heitar lummur Svona lítur KitKat-súkkulaðið úr ruby-
súkkulaðinu út. Hvert stykki kostar tæpar 400 krónur.
Sú var tíðin að aspas var eingöngu
borðaður niðursoðinn hér á landi en
nú er tíðin aldeilis önnur og töluvert
úrval af þessu sælgæti til í versl-
unum.
Hér gefur að líta sérlega huggu-
legan partírétt sem ætti að slá í
gegn í hvaða boði sem er. Aspasinn
er hér með bæði brie-osti og smjör-
deigi og má færa nokkuð sannfær-
andi rök fyrir því að gott boð verði
enn betra með kræsingum sem
þessum.
1 pakki frosið smjördeig
1½-2 búnt lítill aspas
1½ brie
2 msk. olía
salt og pipar
1 egg
2 msk. hunang
1 tsk. vatn
1 tsk. timían
Aðferð:
Þíðið smjördeigið og skerið það í
helminga svo hvor hluti verður að
jafnhliða ferhyrningi. Kveikið á ofn-
inum og stillið á 190 °C. Skerið brie-
ostinn í sneiðar (ca ½ cm þykkar)
og leggið ofan á smjördeigið á ská.
Veltið aspasnum upp úr olíu, saltið
og piprið, skiptið honum svo á milli
deighlutanna og leggið ofan á brie-
inn. Vefjið endum smjördeigsins ut-
an um aspasinn og klípið deigið vel
saman.
Hrærið eggið og penslið því á
smjördeigið. Bakið stykkin í ofni í
um það bil 20 mínútur eða þar til
smjördeigið er orðið vel loftkennt
og farið að dökkna fallega.
Hrærið örlítið vatn saman við hun-
angið til þess að gera auðveldara að
smyrja með því, hrærið timían sam-
an við og smyrjið því á heit stykkin.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gullmoli Allt verður betra með góðum aspas.
Unaðsleg aspasstykki
Myndin er ekki af tilboðsdemanti
Carat
Color
Clarity
Cut
Polish
Symmetry
Certificate
1.42
J
SI1
Very good
Good
Good
Shape Round brilliant
GIA
Tilboð á lausum steini:
899.000 kr.*
*Tilboðið gildir í tvær vikur
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910
demantar@jonogoskar.is I www.jonogoskar.is
SÉRFRÆÐINGAR
Í DEMÖNTUM
Við útvegum allar stærðir og mismunandi
slípanir demanta í mörgum gæðaflokkum,
veitum ráðgjöf og gefum tilboð í sérsmíði.