Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 66
66 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
✝ Ragnar GeirdalIngólfsson
fæddist í Reykjavík
18. júní 1943. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 28.
apríl 2018.
Foreldrar hans
voru Ingólfur G.
Geirdal, f. á Ísafirði
29. apríl 1915, d. í
Hafnarfirði 13.
mars 2006, kennari
og síðar húsvörður í Háskóla Ís-
lands, og Svanhildur Vigfús-
dóttir, f. á Reykjanesi, Hafnahr.,
Gull. 26. júní 1918, d. í Reykjavík
14. mars 2002, húsfreyja og hús-
vörður í Reykjavík.
Systkini Ragnars eru: 1) Vig-
fús Geirdal, f. í Reykjavík 24.
janúar 1948, d. í Kópavogi 14.
desember 2016, sagnfræðingur,
kennari og starfaði m.a. við
Ragnarsdóttir, f. í Reykjavík 20.
janúar 1970. 3) Sigurður Geirdal
Ragnarsson, f. í Hafnarfirði 3.
apríl 1973. Maki hans er Ólöf
Erla Einarsdóttir, f. 8. apríl
1974.
Barnabörnin eru: a) Anetta
Sigdís Kristinsdóttir, f. 30. mars
1993, b) Ragnar Ingvi Kristins-
son, f. 19. september 1995, c)
Katrín Jenný Ingólfsdóttir f. 17.
maí 2008.
Barnabarnabörn eru: Sig-
urdís Eva Maríuszardóttir, f. 27.
júlí 2013, og Kristinn Þór Geir-
dal Jóhannesson, f. 21. desember
2016.
Ragnar var menntaður bif-
vélavirki og bílasmiður og vann
hjá Landsvirkjun á árunum 1975
til 1987 m.a. sem línumaður.
Hann vann einnig á skrifstofu
Dagsbrúnar á árunum 1980 til
1982. Frá 1987 var Ragnar sjálf-
stæður verktaki við bíla-
viðgerðir, m.a. fyrir Lands-
virkjun, en frá 1993 og fram á
síðasta dag vann hann við að
gera upp fornbíla.
Útför Ragnars fór fram 18.
maí 2018.
kennslu, löggæslu,
þýðingar og út-
varpsstörf. Eigin-
kona hans var Sig-
rún Ágústsdóttir, f.
19. apríl 1951. 2)
Sjöfn Ingólfsdóttir
Geirdal, f. í Reykja-
vík 2. maí 1953.
Eiginmaður hennar
er Ásbjörn Ásgeirs-
son, f. 28. janúar
1954. 3) Guðbjörg
María Ingólfsdóttir, f. í Reykja-
vík 14. ágúst 1961. Eiginmaður
hennar er Ásgeir Sverrisson, f.
15. nóvember 1952.
Eiginkona Ragnars er Jenný
Hjördís Sigurðardóttir, f. í
Reykjavík 26. maí 1948. Þau
giftust 17. ágúst 1968. Börn
þeirra eru: 1) Ingólfur Hjálmar
Ragnarsson Geirdal, f. í Reykja-
vík 9. maí 1968. 2) Kolbrún Svala
Flest fólk sem maður kynnist á
lífsleiðinni er bara svona einhvern
veginn venjulegt, ef þannig má að
orði komast og með fullri virð-
ingu. Svo eru þeir sem hafa eitt-
hvað svolítið auka við sig og í
þann flokk fer Ragnar Geirdal
svo sannarlega. Ég held og vona
að allir viti hvað ég á við og reyni
að tileinka sér þá góðu kosti.
Ragnari kynntist ég fyrst á
tjaldstæðinu á Kirkjubæjar-
klaustri í hringferð fornbíla-
klúbbsins sumarið 93. Það bar
þannig við að Volkswagninn minn
var eitthvað dyntóttur og þurfti
hvatningu, mér var bent á að tala
við „kommúnistann“ eins og það
var orðað, auðvitað vissi ég að það
hlyti að vera sá á rússajeppanum,
en hver það var og hvernig hann
leit út vissi ég hinsvegar ekki, því
ég hafði ekki veitt honum neina
sérstaka athygli og Rússinn svo
sannarlega ekki neitt gróðurhús.
Fljótlega kom þó Ragnar til mín
og veitti mér og mínum þá hvatn-
ingu sem við þurftum fyrir ferð-
ina.
Áhugi minn á gömlum bílum
var kannski geirnegldur einmitt í
þessari ferð og með árunum hafa
sjónir mínar beinst æ meir austur
yfir múrinn mikla sem skipti Evr-
ópu í tvennt í tæpa hálfa öld,
framgang stríðsins og þróun mála
þar eystra og ekki síst sam-
gangna. Ég hef verið þeirrar
gæfu aðnjótandi síðastliðin ár að
eiga þess kost að ferðast og skoða
þó nokkur söfn og sýningar bæði í
Lettlandi og Litháen og var svo
heppinn að hafa einmitt töluvert
af myndum í símanum mínum frá
einni slíkri ferð þegar ég hitti
Ragnar nokkuð óvænt á Selfossi
nú í haust. Þvílíkur hafsjór af
fróðleik um svo margt og kom því
líka vel, skilmerkilega og
skemmtilega frá sér. Þetta varð
því miður í síðasta sinn sem ég
hitti þennan eftirminnilega og
góða mann og langar mig að
þakka honum fyrir allt.
Fjölskylda og vinir eiga samúð
mína alla.
Eggert Sæmundur Rútsson.
Ekkert líf án dauða. Enginn
dauði án lífs.
Þannig er það hjá okkur öllum,
þótt erfitt sé að sætta sig við það.
Raggi gerði sér grein fyrir því
að nýtt ferðalag væri handan við
hornið. Þegar Raggi hringdi í mig
til að segja mér frá stöðu mála lét
hann fylgja með að hann ætlaði að
ganga þessi síðustu spor sín eins
og Auður frænka, móðir mín, þ.e.
með fullkomnu æðruleysi og það
gerði hann.
Vinskapur minn við Ragga
frænda var alltof stuttur en góð
voru þau ár.
Það má segja um Ragga að
hann var ekki allra og allir voru
ekki hans en þeir sem komust inn
fyrir hrjúfan múrinn fundu fyrir
mikilli manngæsku og tryggð,
sem við sem eftir stöndum mun-
um sakna og eiga sem góða minn-
ingu um hann.
Það var eins og hann fengi smá
vítamínssprautu við það að fá að
vita um stöðu mála. Nú skyldi
klára sem mest af því sem ógert
var í skúrnum, t.d. Volguna henn-
ar Jennýjar o.fl. Við ræddum um
að nú skyldi fara í Ystafell til
Sverris, því það voru nákvæm-
lega 10 ár síðan við frændurnir
fórum síðast saman norður.
Þangað fór Raggi oft til að hjálpa
Sverri vini sínum. Við ræddum oft
um þessa komandi ferð, þó svo að
hann væri kominn á síðustu metr-
ana. „Við verðum að taka Jennýju
með,“ sagði hann við mig.
Raggi var tryggur meðlimur í
Fornbílaklúbbnum og hjálpaði
hann mörgum félagsmönnum þar
við bílaviðgerðir.
Ég hef oft sagt það að þeir sem
fara á undan okkur séu að undir-
búa okkur fyrir komandi ferð.
Raggi minn, þakka þér fyrir
allt og allt.
Ég votta Jennýju og börnun-
um þeirra Ingólfi Hjálmari, Kol-
brúnu, Sigurði og systrum
Ragga, Sjöfn og Guðbjörgu, sam-
úð mína.
Það er vel við hæfi kveðja
Ragga með Æðruleysisbæninni:
Guð, gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt,
kjark til að breyta því sem ég get
breytt
og visku til að greina þar á milli.
(Reinhold Niebuhr)
Vignir J. Jónasson.
Ragnar Geirdal
Ingólfsson
Elsku besti pabbi,
það er svo óraun-
verulegt að skrifa
um þig minningar-
grein þrátt fyrir að
hafa vitað að hverju stefndi. Ég er
svo glöð að hafa komið til landsins
í tæka tíð til að vera með þér síð-
ustu dagana, spjalla, þegja, gráta,
hlæja og kveðjast.
Þú varst skemmtilegur og góð-
ur pabbi, alltaf hress og sást sjald-
an reiður. Orkumikill og áttir þér
mörg áhugamál sem ég fékk að
taka þátt í. Frá því ég var ung var
ég dregin á skíði og fór með ykkur
í Kerlingarfjöll strax á fyrsta
aldursári. Skíðaferðirnar urðu
margar, bæði innanlands og utan,
en Skálafellið var alltaf í sérstöku
uppáhaldi. Við fórum í vélsleða-
Steinar Petersen
✝ Steinar Peter-sen fæddist 18.
nóvember 1946.
Hann lést 18. maí
2018.
Útför Steinars
fór fram 24. maí.
ferðir upp á jökla
landsins, endalausar
jeppaferðir og úti-
legur. Mér finnst í
minningunni eins og
við höfum nánast bú-
ið í tjaldi á sumrin og
það er mér dýrmæt
minning í dag. Við
ferðuðumst mikið
erlendis og ég fékk
ung að standa á eigin
fótum og fékk t.d. í
gegnum samstarfsfélaga þína er-
lendis vinnu í hrognunum í Sví-
þjóð eins og þú hafðir gert sem
unglingur.
Badminton var stór hluti af
þínu lífi og byrjaði ég snemma að
fara með þér í TBR. Við spiluðum
saman einu sinni í viku í mörg ár
og þú kenndir mér margt sem ég
nýtti mér síðar á vellinum. Þú
varst duglegur að fylgjast með
mér í badmintoninu og eftir að ég
hætti að keppa tóku barnabörnin
við og þú fylgdist með af sama
áhuga og metnaði. Ég var heppin
að fá að spila með þér á mótum og
þar er mér efst í huga ferðirnar
norður á Pro Kennex. Mótin voru
fín en það er ekki síður félagslegi
hlutinn sem ég man svo vel eftir.
Mér þótti alltaf svo gaman að
dansa við þig í og „á“ Sjallanum
þar sem þú kunnir sko aldeilis að
sveifla mér og stjórna í „swingi“
og mér finnst þú ennþá bestur í
„swingi“. Það að vilja helst dansa
við pabba sinn sem unglingur er
líklega ekki mjög algengt en
þannig var staðan hjá mér. Pabbi
kúl!
Þrátt fyrir að skipta sjaldan
skapi varst þú strangur, pabbi, en
nú þegar ég á börn á unglingsaldri
sjálf fatta ég að kannski varstu
ekkert strangur.
Þú varst alltaf til í að lána okk-
ur bíla, tjöld og annað, þótt bílarn-
ir yrðu fyrir hnjaski og tjöldum
væri skilað í misjöfnu ásigkomu-
lagi eftir útihátíðir var það aldrei
mál. Þú varst bara feginn að ung-
lingurinn kom heill heim.
Á mínum fullorðinsárum hef ég
búið erlendis og þú talaðir oft um
að erfitt væri að missa frumburð-
inn úr landi, en varst feginn því að
ég fór ekki lengra en til Noregs
því þangað væri ekki svo langt að
fara í heimsókn. Við fjölskyldan
vorum alltaf velkomin til ykkar í
Goðheimana og þið mamma voruð
dugleg að heimsækja okkur í
Sandefjord.
Barnabörnin dýrkuðu þig og
það var gaman að finna hvað þú
varst stoltur af þeim og fylgdist
vel með afrekum þeirra í íþrótt-
unum, skólanum og öðru. Þið Ken
náðuð líka vel saman og þú sagðist
skilja mig vel að hafa ílengst í
Noregi, sem var mikilvægt fyrir
mig að finna.
Elsku pabbi minn, ég veit að þú
hefur það gott þar sem þú ert nú.
Langamma, amma Munda, afi
Gunni, afi Binni og Dimma hafa
pottþétt tekið vel á móti þér.
Ég á eftir að sakna þín mikið,
elsku pabbi.
Þín
Birna.
Elsku pabbi.
Það virðist svo stutt síðan þú
fórst með bænirnar og klóraðir
mér á bakinu fyrir svefninn;
hjálpaðir mér að klára fiskinn af
diskinum mínum þegar mamma
leit undan; fórst yfir ritgerðirnar
mínar, að við fórum saman í bad-
minton og ég renndi mér á eftir
þér á skíðum og reyndi að fylgja
förunum þínum.
Þú varst mér fyrirmynd á
margan hátt.
Þú áttir fjölbreytt áhugamál,
varst vinmargur og kunnir að
njóta lífsins. Minningarnar eru
óteljandi. Síðustu tvö ár eru mér
afar dýrmæt, við fengum auka-
tíma.
Í stað þess að sýna uppgjöf
þegar þú veiktist ákvaðstu að fá
allt út úr lífinu sem þú mögulega
gast og nýttir tímann vel.
Þú varst vakandi yfir litlu hlut-
unum í kringum þig, náttúrunni
og tónlistinni og minntir mig oft á
hversu dásamlegt lífið væri. Þú
fórst í ferðalög og veiðiferðir, spil-
aðir golf, passaðir vel upp á fjöl-
skyldu og vini og hélst upp á sjö-
tugsafmælið þitt með stæl. Aldrei
kvartaðir þú, dofinn á fingrum og
fótum eftir lyfjagjafir bröltirðu
með mér niður árbakka og út í á til
að kenna mér réttu handtökin við
veiðina.
Það eru ekki allir sem fá tíma
og tækifæri til að kveðja ástvin
sinn en það hafði ég. Ég hugsaði
mikið um hvað mig langaði að
segja þér áður en þú kveddir eða
hvað mig langaði að heyra frá þér.
Ég man eftir augnabliki þar sem
ég sat á rúmstokknum við hliðina
á þér á líknardeildinni.
Ég hugsaði með mér að nú væri
rétta tækifærið og einhvern veg-
inn fannst mér eins og þú værir að
hugsa það sama. Við horfðumst í
augu og þögðum. Við vissum að
við elskuðum hvort annað, það var
nóg.
Takk fyrir allt, við sjáumst.
Þín pabbastelpa,
Eva.
Ástkær faðir minn, sonur minn og bróðir,
SIGURSTEINN SIGURÐSSON,
Flókagötu 54, 105 Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
þriðjudaginn 15. maí. Útför hans fer fram í
kyrrþey.
Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess.
Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð.
Alva L.A. Sigurdsson
Audrey Magnússon
Ingibjörg, Anna María, Snjólaug Elín, Hjördís og
fjölskyldur
Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn,
langömmubarn, frændi, mágur og vinur,
EINAR DARRI ÓSKARSSON,
Hagamel 1,
Hvalfjarðarsveit,
lést á heimili sínu föstudaginn 25. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju,
þriðjudaginn 5. júní klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Einars
Darra er bent á Styrktarsjóð Einars Darra fyrir ungmenni í
fíkniefnavanda, reiknnr. 0354-262322, kt. 160370-5999.
Óskar Vídalín Kristjánsson Bára Tómasdóttir
Andrea Ýr Arnarsdóttir
Aníta Rún Óskarsdóttir
Árni Kristján Rögnvaldsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
FILIPPÍA GUÐRÚN KRISTINSDÓTTIR,
lést mánudaginn 28. maí á Dvalarheimilinu
Lögmannshlíð, Akureyri. Útför hennar fer
fram frá Glerárkirkju mánudaginn 4. júní
klukkan 10.30.
Elín Dögg Gunnarsdóttir Valmar V. Väljaots
Kristdór Þór Gunnarsson Ásgerður Halldórsdóttir
Kristín Lind, Bóel Birna, Karen Tara
Sóley Sara og Gunnar Aron
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN VALDEMARSDÓTTIR,
Stigahlíð 32, Reykjavík,
lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn
laugardaginn 26. maí.
Útför auglýst síðar.
Ásta Ólafsdóttir Rene Jørgensen
Magnea Ólafsdóttir
Jón Baldvin Haraldsson Sjöfn Sigfúsdóttir
Kristján K. Haraldsson Margrét Einarsdóttir
Valdemar Örn Haraldsson Sigrún Guðný Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR,
Boðahlein 20, Garðabæ,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði
mánudaginn 28. maí.
Útför hennar verður gerð frá Garðakirkju þriðjudaginn 5. júní
klukkan 13.
Hjálmfríður Ragnheiður Sveinsdóttir
Þorgeir Magnússon Erla Guðjónsdóttir
Þorleifur Friðrik Magnússon Anna Björg Aradóttir
Viðar Magnússon Sigríður Elín Thorlacius
Snorri Magnússon Elín Steiney Kristmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN ÞORKELS EGGERTSSON
netagerðarmaður,
Keflavík,
lést laugardaginn 26. maí á
hjúkrunarheimilinu Hlévangi.
Útförin verður auglýst síðar.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Eggert Jónsson Una Hafdís Hauksdóttir
Ingimundur Jónsson
Aðalgeir Jónsson Þóra Lilja Ragnarsdóttir
og barnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi,
THOMAS M. LUDWIG,
lést á Landspítalanum mánudaginn 28. maí.
Útförin fer fram frá Lindakirkju
miðvikudaginn 6. júní klukkan 11.
Margrét Ludwig Björgvin Jósefsson
Brandur Thor Ludwig Anna Margrét Rögnvaldsdóttir
og barnabörn