Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 73
DÆGRADVÖL 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Góðum viðskiptahugmyndum rignir
yfir þig. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Finnist þér þú vera komin/n í ógöngur
skaltu óhikað leita ráða hjá öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú vilt vita hvernig hlutirnir virka og
þess vegna áttu ýmsu ólokið. Leggðu þig
fram um að vera til staðar fyrir vini þína bæði
í sorg og gleði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Skilaboð sem þér berast kunna að
reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir
þeim. Þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga þegar þú hittir gamlan vin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til þess í dag að
hugsa um það hvert þú stefnir. Mundu að hól-
ið skilar betri árangri en ávítur. Ýmis teikn eru
á lofti í ástamálunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er orðið tímabært að þú dekrir svo-
lítið við sjálfa/n þig. Umhyggja þín gerir það
að verkum að fólk er þakklátt fyrir vináttu
þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Lykillinn að velgengni þinni á þessu ári
er jákvætt hugarfar. Einhver er með óhreint
mjöl í pokahorninu, reyndu að fá svör við því
hver það er.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt það svo sannarlega inni að líta
upp úr verkefnunum og gleðjast með vinum
og vandamönnum. Hikaðu ekki við að segja
öðrum hvernig þér líður.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver reynir að setja ykkur
stólinn fyrir dyrnar en þar sem þú ert ekki á
þeim buxunum að gefast upp tekst það ekki.
Þú stendur þig vel í uppeldinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft á styrk að halda og skalt
sækja hann til einhvers þér eldri sem býr yfir
mikilli reynslu. Samstarfsmenn þínir koma
þér á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt áhugi þinn á vinnunni sé mik-
ill er óþarfi að taka verkefnin með sér heim.
Gamalt rifrildi liggur á þér eins og mara.
Gerðu hreint fyrir þínum dyrum áður en það
verður of seint.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sérkennileg atburðarás kann að
leiða til þess að þú hljótir loks umbun erfiðis
þíns. Reyndu að komast í frí fljótlega. Ætl-
arðu ekki að nota ræktarkortið þitt?
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ættir að dusta rykið af gömlum
draumum. Heppnin eltir þig á röndum og það
er möguleiki að þú fáir óvæntan vinning fljót-
lega.
Víkverji hefur alltaf gaman af að fábréf en því miður hefur slíkum
gleðiefnum fækkað verulega eftir
því sem árin líða. Nú orðið skrifa
engir bréf, senda bara einhverskon-
ar tölvupóst og bankar og fyrirtæki
eru líka hætt að senda reikninga í
pósti. Eitt af því fáa, sem Víkverji
fær sent öðru hvoru núorðið, fyrir
utan dagblöðin auðvitað, er boðskort
í afmælisveislur – eða svo hélt hann.
x x x
Víkverji frétti nefnilega á skot-spónum um daginn að honum og
fjölskyldu hans yrði boðið í afmælis-
veislu fyrirtækis og að boðskort
væri á leiðinni til hans í pósti. Leið
nú og beið en bréfalúgan bærðist
ekki.
x x x
Afmælisdagurinn rann upp og Vík-verji ákvað með hálfum huga að
mæta þótt hið formlega boðsbréf
hefði ekki borist. Hann varð ekki var
við annað en honum væri vel tekið
og skemmti sér hið besta í sam-
kvæminu.
x x x
Viku síðar þegar Víkverji komheim, lá umslag á dyramottunni.
Víkverji opnaði það spenntur og viti
menn: þarna var boðskortið komið
en samkvæmt póststimplinum hafði
það verið póstlagt þremur vikum
fyrr. Víkverji hefur ekki upplýsingar
um hvað á daga boðsbréfsins hafði
drifið þessar vikur en ferðalagið með
Póstinum hefur vonandi verið
skemmtilegt, nógu var það langt.
x x x
Til samanburðar getur Víkverjisagt frá því að eftir að hafa séð
börnin sín kaupa bílfarma af fötum
frá útlöndum gegnum netið ákvað
hann að fjárfesta í jakka sem hann
sá á lista frá verslun í Hollandi.
Jakkinn var pantaður og borgaður á
þriðjudagskvöldi og á föstudags-
morgni hringdi ung kona frá flutn-
ingafyrirtækinu UPS í Víkverja,
sagðist vera með sendingu til hans
og spurði hvort hann væri ekki
heima! Það tók því aðeins tæpa þrjá
sólarhringa að senda klæðisplaggið
yfir Atlantshafið vikverji@mbl.is
Víkverji
En mín gæði eru það að vera nálægt
Guði, ég gerði Drottin að athvarfi
mínu og segi frá öllum verkum þínum.
(Sálm: 73.28)
Pétur Stefánsson yrkir á Boðnar-miði:
Þegar á líf mitt er litið,
ljóðin og daglega stritið,
þá greinist það strax
frá degi til dags
hversu stórlega stíg ég í vitið.
Alltaf er nærtækt að fletta upp í
Hávamálum:
Meðalsnotur
skyli manna hver,
æva til snotur sé
því að snoturs manns hjarta
verður sjaldan glatt
ef sá er alsnotur er á.
Magnús Halldórsson yrkir:
Mjög lengi var ókátur Arinbjörn,
því úrkoman fannst’onum leiðigjörn.
Á þessu gekk,
uns kallinn fékk
regnföt og sett’á þau sólarvörn.
Þórður Vilberg Oddsson orti
undir kvöld á mánudag á Boðnar-
miði:
Af borgarstjóra fylgi flett,
um flokkinn kaldur blástur.
Með Viðreisn er á sárið sett
Samfylkingarplástur.
Hið ólíklega getur gerst –
Magnús Halldórsson hélt áfram að
spinna:
Er að færast allt í lag,
ætli hann sér snúi?
Síðan ljómi sól í dag,
sem ég varla trúi?
Það er alltaf líf á Tjörninni.
Anton Helgi Jónsson yrkir:
Oná tjörn nú áðan var
allt á fullu spani;
ljótir andarungar þar
eltu hvíta svani.
„Þessa stundina sést til sólar með
smá golu,“ sagði Ingólfur Ómar á
mánudag:
Góða veðrið léttir lund
lifnar allt að nýju.
Sólarbjarmi signir grund
suðrið andar hlýju.
Hins vegar yrkir Magnús Hall-
dórsson um „langtímaáhrif
óþurrka“:
Veðursukk og svínarí,
sumu af manni léttir,
ég hættur er að horf’á ský
og hlust’á veðurfréttir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af mannviti, pólitík
og óþurrkum