Víkurfréttir - 17.12.1981, Qupperneq 59
VÍKUR-ffréttir
JÓLABLAÐ
Fimmtudagur 17. desember 1981
LÍFEYRISSJÓÐUR VERKALÝÐSFÉLAGA
Á SUÐURNESJUM
Ýmsar upplýsingar um sjóðinn
Um stofnun sjóðsins
í samningum Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands 1969, var gert samkomulag um að stofn-
aðir yrðu lífeyrissjóðir félaga Alþýðusambandsins. Samkvæmt því hófst starfsemi Lífeyrissjóðs verkalýðsfélaga áSuð-
urnesjum í ársbyrjun 1970. Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, eftirlátnum mökum þeirra og börnum lífeyri
samkvæmt ákvæðum reglugerðar sjóðsins.
Eftirfarandi stéttarfélög á Suðurnesjum standa að sjóðnum: Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágr., Verka-
kvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps, Verkalýðs- og sjómannafélag
Gerðahrepps, Iðnsveinafélag Suðurnesja, Bifreiðastjórafélagið Keilir og Vélstjórafélag Suðurnesja.
Stjórn sjóðsinserskipuðfjórum mönnum, ofangreindstéttarfélög kjósa2stjórnarmenn og Vinnuveitendafélag Suður-
nesja 2.
Um lífeyri:
Ellilífeyrir er greiddur þeim, sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins í 5 almanaksár eða lengur, öðlast hefur a.m.k. 3 stig og
orðinn er fullra 70 ára að aldri. Þó geta sjóðfélagar fengið lífeyri þegar eftir 67 ára aldur, en þá er lífeyririnn M>% lægri
fyrir hvern mánuðsem vantar á 70 ára aldur. Einnig getasjóðfélagarfrestaðtöku lífeyris allttil 75áraaldursog hækkar
þá llfeyririnn um '/2% fyrir hvern mánuð, sem töku hans er frestað.
Örorkulífeyrir er greiddur þeim sem eru a.m.k. 40% öryrkjar, greitt hafa iðgjöld til sjóðsins undanfarin 3 almanaksár og
a.m.k. 6 mánuði á undanfarandi 12 mánuðum.
Makalífeyrir er greiddur maka sjóðfélaga, sem naut elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum eða greitt hafi iðgjöld til hans
а. m.k. 6 mánuði á undanfarandi 12 mánuðum.
Barnalífeyrir er greiddur vegna barna örorkulífeyrisþega og látins sjóðsfélaga. Barnalífeyrir er greiddur til 18 ára
aldurs. Kjörbörn, fósturbörn og stjúpbörn eiga einnig rétt á barnalífeyri.
Athygli skal vakin á þvi, að hér er aðeins um útdrátt úr reglugerðum sjóðsins að ræða.
Lifeyrissjóðurinn greiðir verðtryggðan lifeyri, sem svarar til allt að 30stiga lifeyrisréttinda og hækka lifeyrisgreiðslur
samkvæmt því á þriggja mánaða fresti samkvæmt hækkun vísitölu.
Um lánareglur:
Alltfráárinu 1972hefursjóðurinnnotfærtsérheimildíreglugerðsjóðsinstilaðlánasjóðfélögumsínum. Alls hafa verið
veitt um 2400 lán.
1. Rétt til hámarksláns eiga þeir sjóðfélagar, sem greitt hafa til sjóðsins í 5 ár og öðlast a.m.k. 5 stig.
2. Þeirsem öðlast hafafærri en 5 stig fá hlutfallslega minna. T.d. gefa4stig rétt á80%af hámarksláni, 3 stig 60%o.s.frv.
3. Þrjú ár verða að líða á milli lánveitinga. Viðbótarlán er þáskert miðað við fyrri lán, sem reiknuð eru sem %af grund-
vallarlaunum ársins margfaldar með 2. Þannig var lán að upphæð kr. 12.000, sem veittvar 197837%afgrundvallar-
launum ársins margfölduð með 2, viðbótarlán 1981 yrði því 63% af hámarksláni.
Hámarkslán 1981 er kr. 50.000.
5. öll lán eru veitt verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu og með2.5%ársvöxtum. Lánstími er20ár. Lántökugjald 1%.
б. öll lán eru undantekningarlaust veitt gegn veði ífasteign og verðaáhvílandi lán að vera innan við50%af brunabóta-
mati.
Sjóðfélagi verður að vera greiðandi í sjóðinn, þegar sótt er um lán. Hafi sjóðfélagi greitt íaðrasjóði, er þeim réttind-
um bætt við réttindi hans í þessum sjóði, þegar lánsupphæð hans er reiknuð út. Þáer einnig tekiðtillittil lána íöðr-
um sjóðum eins og um lán úr þessum sjóði væri að ræða, samanber 3. lið.
4.
7.
Stjórn sjóðsins er nú þannig skipuð:
Fró stéttarfélögum: María G. Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson.
Frá vinnuveitendum: Jón Ægir Ólafsson, Margeir Jónsson, formaður.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Daníel Arason.
Skrifstofa sjóðsins er að Suðurgötu 7, Keflavík. - Opin frá kl. 9-16 mánudaga til föstudags.