Læknablaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2018/104 409
Fastanefnd lækna hjá Evrópusambandinu, Comité
Permanent des Médecins Européens (CPME)
Læknafélag Íslands varð aðili að fastanefnd lækna í hjá Evrópu-
sambandinu í Brussel (Comité Permanent des Médecins
Européens, CPME) um miðjan 10. áratug síðustu aldar. CPME eru
Evrópusamtök læknafélaga og stéttarfélög lækna í aðildarríkjum
Evrópusambandsins eiga aðild að því. Stofnun CPME má rekja
til ársins 1959 um það leyti sem Rómarsáttmálinn, stofnsáttmáli
Evrópusambandsins, var gerður. Skrifstofa CPME hefur verið
í Brussel frá 1992. CPME er helsti þrýstihópur lækna gagnvart
framkvæmdastjórninni í Brussel. Samtökin móta sér pólitíska
stefnu í málefnum lækna í Evrópu svo sem um lagaumhverfi
og vinnumarkaðsmál. CPME hefur áhrif á stefnumótun í heil-
brigðismálum innan ESB en slíkar ákvarðanir teygja anga sína til
Íslands vegna EES-samningsins. Katrín Fjeldsted heimilislæknir
hefur verið ötull fulltrúi LÍ í samtökunum frá 1999. Hún var
innri endurskoðandi samtakanna árin 2005-2006, einn af fjórum
varaformönnum 2006-2009, gjaldkeri 2010-2012 og loks formaður
samtakanna 2013-2015. Katrín er fyrsta konan sem gegnt hefur
embætti forseta fastanefndarinnar.
Evrópusamtök sérgreinalækna,
Union Européenne des Médicins Spécialistes (UEMS)
Læknafélög frá 40 þjóðum eiga aðild að samtökunum. Læknafé-
lag Íslands ákvað árið 2017 að sækjast á ný eftir aðild að UEMS,
en þá hafði verið hlé á þátttöku LÍ frá 2008.
Friðbjörn Sigurðsson er tilnefndur af LÍ í fulltrúaráð UEMS.
Innan UEMS eru 43 sérgreinafélög lækna, sem beita sér fyrir
hagsmunum sérgreinanna, og 15 samstarfsnefndir þar sem fleiri
en ein sérgrein vinna saman að málum. Sum íslensk sérgreina-
félög eru virk innan sérgreinafélaganna og má þar nefna að
Anna Björg Jónsdóttir er ritari öldrunarlækningaeiningar UEMS
og Runólfur Pálsson er varaforseti lyflækningaeiningar UEMS.
Meginverkefni samtakanna er að efla símenntun lækna, sérfræði-
nám lækna og gæði heilbrigðisþjónustu.
Sameiginleg yfirlýsing læknasamtaka í Evrópu:
Áhersla á lykilhlutverk lækna í sjúkdómsgreiningu,
meðferð og þverfaglegri umönnun sjúklinga
Hágæðaheilbrigðisþjónusta er veitt af flóknum teymum heil-
brigðisstarfsmanna sem hvert um sig leggur fram sinn sérstaka
skerf til að sinna megi hverjum sjúklingi eins og best verður á
kosið. Kjarni þessa starfs er samband læknis og sjúklings. Ná-
kvæm sjúkdómsgreining og samskipti við einstaka sjúklinga sem
afleiðing af henni skipta meginmáli við umsinnu þeirra. Lækna-
nám leggur lækni til þekkingu og færni í verkum og samskipt-
um sem nauðsynleg eru til að fyrirbyggja, greina og meðhöndla
sjúkdóma. Þau verklegu störf og skref sem stíga þarf til þess
að nálgast nákvæma greiningu og meðferð má leggja í öruggar
hendur annarra heilbrigðisstétta innan þess ramma sem settur er
hverri stétt. Það er hins vegar einungis læknismenntun sem veitir
þá yfirsýn sem til þarf þegar hafa á yfirumsjón með samþættingu
starfa hinna ýmsu heilbrigðisstétta.
Undirrituð samtök evrópskra lækna leggja af tveimur ástæð-
um áherslu á lykilhlutverk lækna við að stýra þverfaglegri með-
ferð:
Viðurkennt er að best fari á því að sjúkdómsgreining og
meðferð fari fram í þvegfaglegu umönnunarteymi sem leitt er
og samræmt af lækni. Umönnun sem veitt er án þess að til hafi
komið sjúkdómsgreining og stofnað hafi verið til viðeigandi
meðferðar af hálfu læknis er ógnun við gæði og öryggi heilbrigð-
isþjónustu.
Í öllum Evrópulöndum eru læknar uppstaðan í læknisþjónustu
þrátt fyrir að heilbrigðisstofnanir, atvinnurekendur og stuðnings-
þjónusta beri einnig ábyrgð á því að nægu fjármagni sé veitt til
þjónustunnar og rétt skilyrði sköpuð. Án læknis sem uppistöðu í
þverfaglegri þjónustu verður óljóst hver ber ábyrgð á sjúkdóms-
greiningu og meðferð.
Við treystum því að ríki Evrópusambandsins og evrópskra
stofnana haldi áfram að tryggja að skipulag heilbrigðisþjónustu
byggi áfram á því klíníska fyrirkomulagi sem þróað hefur verið
út frá lykilhlutverki lækna.
Eftirtalin læknasamtök í Evrópu standa að yfirlýsingunni:
European Association of Senior Hospital Doctors (AEMH), European Council of Medical Orders (CEOM), Standing Committee of European Doctors
(CPME), European Working Group of Practitioners and Specialists in Free Practice (EANA), European Junior Doctors Permanent Working Group
(EJD), European Medical Students’ Association (EMSA), European Federation of Salaried Doctors (FEMS), European Union of General Practitioners/
Family Physicians (UEMO), og European Union of Medical Specialists (UEMS),