Læknablaðið - 01.04.2018, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2018/104 213
Jón Snædal
öldrunarlæknir og forseti
ráðstefnunnar
Hann sat um skeið í stjórn
WMA og var
forseti samtakanna
fyrir Íslands hönd
jsn@mmedia.is
Í tengslum við aðalfund Alþjóðasamtaka
lækna (WMA) í Reykjavík í haust verður
haldin þriggja daga alþjóðleg ráðstefna
um læknisfræðilega siðfræði. Ráðstefnan
verður haldin í Hörpu og hefst á há-
degi þriðjudaginn 2. október og lýkur á
fimmtudaginn 4. október síðdegis.
Til umfjöllunar verða margvísleg
siðfræðileg málefni sem snúa að lækn-
Alþjóðleg ráðstefna um
læknisfræðilega siðfræði
WMA GENERAL ASSEMBLY
um í vinnu og rannsóknum. Má nefna
umfjöllun um alþjóðasiðareglur lækna
sem koma meðal annars fram í nútíma
Hippókratesar eiðnum með áorðnum
breytingum eins og þau birtast í Gen-
farheiti lækna, en síðustu breytingar
voru samþykktar fyrir ári og birtist ís-
lensk þýðing í janúarhefti Læknablaðsins.
Ítarlegri siðfræðiviðmið er að finna í yfir-
lýsingu sem heitir einfaldlega „Alþjóða-
siðareglur lækna“ (International Code of
Medical Ethics). Þessar reglur verða senn
endurskoðaðar af hálfu WMA og fer
upphafsumræðan fram á ráðstefnunni.
Best þekkta yfirlýsing WMA er kennd
við Helsinki og fjallar um siðfræðileg
viðmið við rannsóknir með þátttöku
manna, hvort sem er sjúklinga eða heil-
brigðra. Hún er endurskoðuð á 5-10 ára
fresti og er sú síðasta frá 2013 og tók þrjú
ár að ljúka henni. Það eru alltaf einhver
álitamál, svo sem hvernig nota megi lyf-
leysu og hver sé ábyrgð rannsakenda í
því samfélagi sem rannsóknin tekur til
og það þarf því töluverðar umræður
til að komast að endanlegri niður-
stöðu. Endurskoðun þessarar yfirlýs-
ingar er því alltaf umfangsmikil og
er með aðkomu margra. Senn fer að
koma að næstu endurskoðun.
Siðfræði erfðarannsókna verð-
ur að sjálfsögðu til umræðu og
einnig má nefna álitamál er
snúa að notkun mjög dýrrar
meðferðar og enn annað mál-
efni er hvernig staðið er að
fósturgreiningum og hvert
þær leiða. Með vaxandi tækni
má ekki aðeins greina sjúkdóma held-
ur einnig ýmis einkenni í fóstrum sem
getur svo leitt til þess að þungun verður
stöðvuð. Þetta er mikið álitamál og tekur
Norræna siðfræðinefndin það til umræðu
á tveimur málþingum sem eru hluti af
ráðstefnunni.
Þátttaka er frá öllum heimshornum en
innan WMA eru núna 115 félög frá jafn
mörgum löndum. Vonast er til að læknar
frá um helmingi félaganna mæti. Skrán-
ingargjald telst hóflegt miðað við alþjóð-
legar ráðstefnur, eða kr. 69.000. Búið er að
opna fyrir skráningu og móttöku ágripa
á síðunni icelandtravel.artegis.com/event/
wma2018 og þar er að finna frekari upp-
lýsingar. Síðan er uppfærð reglulega með
nýjum upplýsingum.
Þetta er í fyrsta sinn sem aðalfundur
WMA er haldinn hér á landi en Lækna-
félag Íslands var þó meðal 27 stofnfélaga
árið 1947 og má lesa frásögn af þeim
fundi í desemberhefti Læknablaðsins það
ár. Auðvelt er að nálgast þá frásögn á síð-
unni timarit.is Venjan er sú að hafa einn
dag fyrir umræður af þessu tagi en nú er
sú nýbreytni að auka þann tíma. Þetta er
tilraunaverkefni og mun WMA ákveða í
kjölfarið hvort þetta verður endurtekið.
Þótt ráðstefnan sé haldin í náinni sam-
vinnu við WMA ber Læknafélag Íslands
fjárhagslega ábyrgð og er meðal annars
af þeim sökum mikilvægt að sem flestir
skrái sig.