Læknablaðið - 01.04.2018, Blaðsíða 50
210 LÆKNAblaðið 2018/104
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Kristján Oddsson
læknir
Læknastöðinni Hlíðasmára 9
oddsson@hotmail.com
Skimun fyrir brjóstakrabbameini
Mikið vantar upp á að skipulag, stjórn og
framkvæmd skimunar fyrir brjóstakrabba-
meini sé í samræmi við evrópskar leið-
beiningar um skipulega lýðgrundaða
skimun fyrir brjóstakrabbameini.
Hér á landi hófst skimun fyrir brjósta-
krabbameini árið 1988. Þátttaka í skimun
fyrir brjóstakrabbameini hefur minnk-
að úr 68% árið 1990 í 55% árið 2016.1 Í
stefnumörkun leitarsviðs Krabbameinsfé-
lags Íslands (KÍ) er miðað við að þátttaka
sé minnst 65%, en því markmiði hefur
ekki verið náð síðan 1992. Í evrópskum
leiðbeiningum er talið ásættanlegt ef þátt-
taka er ekki minni en 70% en æskilegt að
hún sé meiri en 75%.2
Skimun fyrir leghálskrabbameini
Nýleg úttekt bendir til að íslenskar konur
greinist nú tölfræðilega marktækt yngri og
með alvarlegra stig leghálskrabbameins en
áður. Það minnkar lífslíkur og hefur áhrif
á frjósemi og barneignir. Í sömu rannsókn
kemur einnig fram að greining og meðferð
er á við það sem best þekkist erlendis.
Það bendir til að breyta þurfi skipulagi og
stjórn skimunar.
Í evrópskum leiðbeiningum er miðað
við að þátttaka sé viðunandi ef hún er yfir
70% en æskilegt að hún sé meiri en 85%.3
Í stefnumörkun leitarsviðs KÍ er miðað
við að þátttaka sé minnst 75% en því
markmiði hefur ekki verið náð síðan 2009;
þátttaka hefur minnkað úr 82% árið 1992
í 67% árið 2016. Afleiðingar af minnkaðri
þátttöku síðastliðin 25 ár eru ekki síst þær
að forstigsbreytingar leghálskrabbameins
í konum án einkenna ná að þróast í leg-
hálskrabbamein á misalvarlegu stigi.
Stjórn skimunar
Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er varðandi
minnkandi áhuga kvenna á að þiggja boð
um skipulega skimun fyrir leghálskrabba-
meini er brýnt að fyrirkomulagið um
boðun í skipulega skimun verði endur-
skoðað. Efla þarf skipulag varðandi boðun
og tryggja betur að konur sjái sér hag í því
að mæta reglulega í skipulega skimun fyr-
ir leghálskrabbameini. Til að tryggja fag-
lega starfsemi og koma í veg fyrir fjárhags-
lega hagsmunaárekstra sem geta skapast
þegar sami aðili sér um boðun í skipulega
skimun og rekstur heilbrigðisþjónustunn-
ar vegna skimunar er nauðsynlegt að allt
utanumhald um boðun og tölulegt upp-
gjör um árangur úr leitarstarfi sé aðskilið
frá framkvæmd heilbrigðisþjónustunnar.
Í minnisblaði Embættis landlæknis
til heilbrigðisráðherra frá því í desember
2016 er lagt til að stjórn skimunar verði
komið fyrir á stjórnsýslustigi og er það í
samræmi við evrópskar leiðbeiningar um
stjórn skimunar. Í þeim kemur skýrt fram
að henni skuli komið fyrir á stjórnsýslu-
stigi með skimunarráði, stýrihópum og
faghópum til ráðgjafar.
Velferðarráðuneytið hefur sett fram
svipaðar tillögur í skjalinu „Markmið
og aðgerðir í tillögu að íslenskri krabba-
meinsáætlun til ársins 2020”, sem það gaf
út í júlí 2017.4
Framkvæmd skimunar fyrir
leghálskrabbameini
Undangengin ár hafa um 40% frumusýna
frá leghálsi verið tekin af ljósmæðrum sem
starfa sem verktakar (samsvarar 2,5 stöðu-
gildum) á leitarsviði KÍ, um 40% sýna hafa
verið tekin hjá sjálfstætt starfandi kven-
sjúkdómalæknum og 20% af ljósmæðrum
á heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni
en það fyrirkomulag var innleitt árið 2014
en læknar tóku þau sýni áður. Stjórnunar-
leg og fagleg reynsla af þeirri breytingu
hefur verið mjög góð og hefur mælst vel
fyrir meðal kvenna sem hafa tekið þátt
í skipulegri skimun á landsbyggðinni.
Dæmi eru um að þátttaka í þeim hópi
hafi aukist yfir 20% eftir þá skipulags-
breytingu.1
Í Svíþjóð fá konur boð um skimun á
fyrirfram gefnum tíma hjá ljósmóður á
heilsugæslustöð og er hún gjaldfrjáls.
Þar er heildarþátttaka í skimun fyrir
leghálskrabbameini 82% (92% í aldurs-
hópnum 23-25 ára), sú mesta í heimi, en
sambærileg þátttaka hér á landi er 67% og
57%.1,5
Í Krabbameinsáætlun, sem velferð-
arráðuneytið gaf út í júlí 2017, er gert ráð
fyrir mikilvægu hlutverki heilsugæsl-
unnar í skimun og hafa forráðamenn
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskað
eftir viðræðum við heilbrigðisráðherra um
að taka að sér framkvæmd skimunar fyrir
leghálskrabbameini líkt og heilsugæslu-
stöðvar á landsbyggðinni hafa gert.
Þannig gætu allar konur sótt þessa fyrir-
byggjandi heilsuvernd til heilsugæslunnar
eins og þær gera varðandi mæðra- og
ungbarnavernd. Með breyttri stjórn og
skipulagi væri hægt að veita gjaldfrjálsa
skimun fyrir leghálskrabbameini líkt
og mæðra- og ungbarnavernd án þess
að veita þyrfti meira fjármagni til mála-
flokksins.
HPV frumskimun
Mikilvægt er að HPV-frumskimun
(HPV primary screening) verði innleidd
hér á landi en rannsóknir hafa sýnt að
HPV-frumskimun lækkar nýgengi og
dánartíðni meira en skimun með hefð-
bundinni frumuskoðun (Pap-próf) og er
auk þess ódýrari skimunaraðferð.6 HPV-
frumskimun var innleidd í Svíþjóð og
Staða skimunar fyrir brjóst- og
leghálskrabbameini á Íslandi