Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2018, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.04.2018, Blaðsíða 44
204 LÆKNAblaðið 2018/104 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Hugrún, félag háskólanema um geðheil- brigði, var stofnað fyrir tveimur árum og hefur vaxið og dafnað síðan; vakið verðskulda athygli og viðurkenningu fyrir starf sitt að geðfræðslu í framhalds- skólum landsins og nú á dögunum var hleypt af stokkunum fræðsluherferð um geðsjúkdóma með viðtölum við ungt fólk sem glímt hefur við geðsjúkdóma og náð góðri geðheilsu á nýjan leik. Viðtölin eru birt á nýrri heimasíðu Hugrúnar gedfraedsla.is, bæði sem texti og mynd- bönd og hafa einnig verið sett út á aðra miðla eins og Facebook, Twitter, Instagram og Snapchat. Viðtökur hafa farið langt fram úr vonum að sögn Elísabetar Brynjarsdóttur sem verið hef- ur formaður Hugrúnar undanfarið ár og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ 2017 og er nú nýtekin við embætti formanns Stúdentaráðs HÍ. „Ég tók þátt í að stofna Hugrúnu og sat í stjórn fyrsta árið sem fulltrúi hjúkr- unarnema og tók svo við formannsemb- ættinu í fyrra“, segir Elísabet í upphafi samtals okkar. „Strax haustið 2016 opnuð- um við heimasíðu sem innihélt flest efni sem er inni á nýju heimasíðunni fyrir utan myndböndin og viðtölin, en viðmót síð- unnar var ekki eins notendavænt og nýja síðan en við höfðum frétt af því að læknar, sálfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk væri að vísa fólki á síðuna og þá fannst okkur mikilvægt að síðan væri aðgengileg og vel upp sett. Við leggjum mikið upp úr því að fræðslan á síðunni sé á mannamáli, en að sjálfsögðu byggð á gagnreyndum fræðum. Okkar markhópur eru ungmenni og því viljum við hafa þetta eins aðgengi- legt og hægt er fyrir þau. Nýja síðan er notendavæn í farsímum og öðrum snjall- tækjum. Þarna er auðvelt að nálgast upp- lýsingar um geðsjúkdóma, hvaða úrræði eru í boði og hvað Hugrún stendur fyrir.“ Byggja alfarið á sjálfboðaliðastarfi Hugrún byggir alfarið á sjálfboðaliðastarfi en þó verður ekki hjá því komist að standa straum af ýmsum kostnaði af starfinu sem hefur vaxið gríðarlega á þessum tveim- ur árum. „Við höfum efnt til fjáraflana sjálf eins og með áheitum á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. Við feng- um styrki frá samtökunum Allir gráta, Velferðarráðuneytinu, Lýðheilsusjóði og Landsbankanum til að kosta gerð nýju heimasíðunnar og einnig höfum við notið styrkja til að kosta ferðir fræðaranna okk- ar út á land því við leggjum áherslu á að allir framhaldsskólar landsins geti pantað fyrirlestra frá okkur án þess að því fylgi kostnaður fyrir þá. Við leggjum mikla áherslu á að fræðslan sé gjaldfrjáls fyrir alla. Þetta hefur gengið ágætlega en það er bundið í lög félagsins að allt fjármagn renni til að kynna markmið félagsins og að enginn þiggi laun fyrir vinnu sína á vegum Hugrúnar. Þetta eru sjálfboðaliða- samtök,“ segir Elísabet ákveðin og svarar síðan þeirri spurningu hvort starfið sé komið á þann stað að launa þurfi störfin. „Nei, ég held að það sé ekki komið að því. Þrátt fyrir að starfið hafi vaxið mjög og eftirspurnin eftir fræðslunni hafi auk- ist verulega er ennþá mjög mikill áhugi meðal stúdenta HÍ að taka þátt í starfinu og ég tel að við eigum ennþá mjög mikið inni áður en kemur að því að gera sam- starfssamninga við opinbera aðila. Til þess þarf líka að breyta lögum félagsins og er að mínu mati ekki tímabært,“ segir hún. „Mér finnst líka vera mjög sterkt að ímynd Hugrúnar sé að þetta eru sjálfstæð sjálf- boðaliðasamtök og engum háð.“ Stefna á fræðslu í efstu bekkjum grunnskólanna „Fræðslan hefur verið miðuð við fyrstu tvo árganga framhaldsskólanna og í vetur lögðum við upp með það markmið að fara í alla framhaldsskóla landsins með fyr- irlestra fyrir fyrsta árið. Samhliða þessu hefur komið í ljós að þörfin fyrir fræðslu á efstu stigum grunnskólans er mikil og við viljum gjarnan geta boðið upp á það. Það hefur sýnt sig að forvarnagildi fræðslunn- ar er mikið og með því að fara í grunn- skólana náum við líka til unglinga sem fara ekki í framhaldsskóla en þurfa ekki síður á fræðslunni að halda. Umræðan um geðheilbrigði hefur líka orðið til þess að kvíði og depurð hjá unglingum er ekkert leyndarmál lengur og mikilvægt að mæta því. Grunnskólarnir og félagsmiðstöðv- arnar hafa kallað eftir fræðslu frá okkur og við höfum verið í samstarfi við Félags- miðstöðvar í Kópavogi þar sem við erum að þróa fyrirlestur fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans.“ Elísabet leggur áherslu á að allt fræðsluefnið sem notað er sé unnið í samráði við fagaaðila, geðlækna og sál- fræðinga og þeir hafa allir gefið sína vinnu. „Engilbert Sigurðsson prófessor í geðlækningum og deildarforseti lækna- deildar hefur verið okkur mjög innan handar frá upphafi og það er í rauninni ótrúlegt hvað við höfum mætt miklum áhuga og velvilja allra sem við höfum leitað til. „Allir eru með geðheilsu“ – segir Elísabet Brynjarsdóttir formaður Hugrúnar ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.