Læknablaðið - 01.04.2018, Page 44
204 LÆKNAblaðið 2018/104
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Hugrún, félag háskólanema um geðheil-
brigði, var stofnað fyrir tveimur árum
og hefur vaxið og dafnað síðan; vakið
verðskulda athygli og viðurkenningu
fyrir starf sitt að geðfræðslu í framhalds-
skólum landsins og nú á dögunum var
hleypt af stokkunum fræðsluherferð um
geðsjúkdóma með viðtölum við ungt fólk
sem glímt hefur við geðsjúkdóma og náð
góðri geðheilsu á nýjan leik. Viðtölin eru
birt á nýrri heimasíðu Hugrúnar
gedfraedsla.is, bæði sem texti og mynd-
bönd og hafa einnig verið sett út á
aðra miðla eins og Facebook, Twitter,
Instagram og Snapchat. Viðtökur hafa
farið langt fram úr vonum að sögn
Elísabetar Brynjarsdóttur sem verið hef-
ur formaður Hugrúnar undanfarið ár og
útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur
frá HÍ 2017 og er nú nýtekin við embætti
formanns Stúdentaráðs HÍ.
„Ég tók þátt í að stofna Hugrúnu og
sat í stjórn fyrsta árið sem fulltrúi hjúkr-
unarnema og tók svo við formannsemb-
ættinu í fyrra“, segir Elísabet í upphafi
samtals okkar. „Strax haustið 2016 opnuð-
um við heimasíðu sem innihélt flest efni
sem er inni á nýju heimasíðunni fyrir utan
myndböndin og viðtölin, en viðmót síð-
unnar var ekki eins notendavænt og nýja
síðan en við höfðum frétt af því að læknar,
sálfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk
væri að vísa fólki á síðuna og þá fannst
okkur mikilvægt að síðan væri aðgengileg
og vel upp sett. Við leggjum mikið upp úr
því að fræðslan á síðunni sé á mannamáli,
en að sjálfsögðu byggð á gagnreyndum
fræðum. Okkar markhópur eru ungmenni
og því viljum við hafa þetta eins aðgengi-
legt og hægt er fyrir þau. Nýja síðan er
notendavæn í farsímum og öðrum snjall-
tækjum. Þarna er auðvelt að nálgast upp-
lýsingar um geðsjúkdóma, hvaða úrræði
eru í boði og hvað Hugrún stendur fyrir.“
Byggja alfarið á sjálfboðaliðastarfi
Hugrún byggir alfarið á sjálfboðaliðastarfi
en þó verður ekki hjá því komist að standa
straum af ýmsum kostnaði af starfinu sem
hefur vaxið gríðarlega á þessum tveim-
ur árum. „Við höfum efnt til fjáraflana
sjálf eins og með áheitum á hlaupara í
Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. Við feng-
um styrki frá samtökunum Allir gráta,
Velferðarráðuneytinu, Lýðheilsusjóði og
Landsbankanum til að kosta gerð nýju
heimasíðunnar og einnig höfum við notið
styrkja til að kosta ferðir fræðaranna okk-
ar út á land því við leggjum áherslu á að
allir framhaldsskólar landsins geti pantað
fyrirlestra frá okkur án þess að því fylgi
kostnaður fyrir þá. Við leggjum mikla
áherslu á að fræðslan sé gjaldfrjáls fyrir
alla. Þetta hefur gengið ágætlega en það
er bundið í lög félagsins að allt fjármagn
renni til að kynna markmið félagsins og
að enginn þiggi laun fyrir vinnu sína á
vegum Hugrúnar. Þetta eru sjálfboðaliða-
samtök,“ segir Elísabet ákveðin og svarar
síðan þeirri spurningu hvort starfið sé
komið á þann stað að launa þurfi störfin.
„Nei, ég held að það sé ekki komið að
því. Þrátt fyrir að starfið hafi vaxið mjög
og eftirspurnin eftir fræðslunni hafi auk-
ist verulega er ennþá mjög mikill áhugi
meðal stúdenta HÍ að taka þátt í starfinu
og ég tel að við eigum ennþá mjög mikið
inni áður en kemur að því að gera sam-
starfssamninga við opinbera aðila. Til þess
þarf líka að breyta lögum félagsins og er
að mínu mati ekki tímabært,“ segir hún.
„Mér finnst líka vera mjög sterkt að ímynd
Hugrúnar sé að þetta eru sjálfstæð sjálf-
boðaliðasamtök og engum háð.“
Stefna á fræðslu í efstu
bekkjum grunnskólanna
„Fræðslan hefur verið miðuð við fyrstu
tvo árganga framhaldsskólanna og í vetur
lögðum við upp með það markmið að fara
í alla framhaldsskóla landsins með fyr-
irlestra fyrir fyrsta árið. Samhliða þessu
hefur komið í ljós að þörfin fyrir fræðslu á
efstu stigum grunnskólans er mikil og við
viljum gjarnan geta boðið upp á það. Það
hefur sýnt sig að forvarnagildi fræðslunn-
ar er mikið og með því að fara í grunn-
skólana náum við líka til unglinga sem
fara ekki í framhaldsskóla en þurfa ekki
síður á fræðslunni að halda. Umræðan um
geðheilbrigði hefur líka orðið til þess að
kvíði og depurð hjá unglingum er ekkert
leyndarmál lengur og mikilvægt að mæta
því. Grunnskólarnir og félagsmiðstöðv-
arnar hafa kallað eftir fræðslu frá okkur
og við höfum verið í samstarfi við Félags-
miðstöðvar í Kópavogi þar sem við erum
að þróa fyrirlestur fyrir nemendur í 8.-10.
bekk grunnskólans.“
Elísabet leggur áherslu á að allt
fræðsluefnið sem notað er sé unnið í
samráði við fagaaðila, geðlækna og sál-
fræðinga og þeir hafa allir gefið sína
vinnu. „Engilbert Sigurðsson prófessor í
geðlækningum og deildarforseti lækna-
deildar hefur verið okkur mjög innan
handar frá upphafi og það er í rauninni
ótrúlegt hvað við höfum mætt miklum
áhuga og velvilja allra sem við höfum
leitað til.
„Allir eru með
geðheilsu“
– segir Elísabet Brynjarsdóttir formaður Hugrúnar
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson