Læknablaðið - 01.04.2018, Blaðsíða 4
171
Hafdís Lilja Guðbjörnsdóttir, Árún K. Sigurðardóttir
Sykursýki er áskorun. Tíu ára eftirfylgd
einstaklinga með sykursýki
Sykursýki er einn algengasti langvinni sjúkdómurinn í heiminum í dag og samkvæmt
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni árið 2016 er hlutfall einstaklinga með sykursýki hærra
á Íslandi (7,1%) en í Danmörku (6,1%), Svíþjóð (6,9%) og Noregi (6,6%). Rannsóknin
var afturskyggn ferlirannsókn yfir 10 ára tímabil, þar sem ákveðin líkamleg mæligildi
einstaklinga með sykursýki voru greind og borin saman við alþjóðastaðla. Ein mæl-
ing var greind hjá hverjum þátttakenda árin 2005, 2010 og 2015.
177
Guðrún Arna Jóhannsdóttir, Ólafur Pálsson, Helgi Jónsson, Björn Guðbjörnsson
Þvagsýrugigt - læknanleg liðbólga
Þvagsýrugigt er liðbólgusjúkdómur sem í flestum tilfellum er læknanlegur og fer
algengi hans á heimsvísu vaxandi. Án meðferðar getur sjúkdómurinn valdið varan-
legum liðskemmdum en þrátt fyrir það benda rannsóknir til að vanmeðhöndlun sjúk-
dómsins sé mikil. Tengsl við lífsstílssjúkdóma á borð við efnaskiptavillu eru ótvíræð
en sjúkdómurinn getur einnig verið fylgikvilli lífshættulegra sjúkdóma og meðferðar
við þeim. Nú liggja fyrir nýlegar leiðbeiningar frá Bandaríkjunum og Evrópu varðandi
greiningu og meðferð þvagsýrugigtar, bæði við bráðum liðbólgum og langtímameð-
ferð. Aukin áhersla er lögð á meðferð til að fyrirbyggja sjúkdóminn, bæði með lífs-
stílsbreytingum og lyfjameðferð.
164 LÆKNAblaðið 2018/104
F R Æ Ð I G R E I N A R
4. tölublað ● 104. árgangur ● 2018
167
Elísabet Benedikz
Öryggi sjúklinga og
flækjustig nútíma
heilbrigðisþjónustu
Á sama tíma og við ráðum
inn nemana í stórum stíl, út-
skrifast tugir íslenskra lækna
úr erlendum háskólum. Hvað
verður um þetta fólk? Hví
getum við ekki ráðið það?
Gætum við ekki gert betur í
að rækta tengslin við þessa
kollega okkar?
169
Janus Guðlaugsson
Leiðin til lýðheilsu:
forvarnir og heilsu-
efling
Í Evrópu fara tæplega 3%
útgjalda til heilbrigðismála
í forvarnir en á Íslandi er
hlutfallið nær helmingi lægra,
eða um 1,6%. Heilbrigðis-
kerfið er fyrst og fremst
byggt upp til að meðhöndla
sjúkdóma og sinna bráðatil-
fellum; leggja plástur á sárin,
í stað þess að fyrirbyggja
þessa þætti.
L E I Ð A R A R
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS 100 ÁRA
188
Þórólfur Guðnason
Árangur og mikilvægi bólusetninga – sögulegt samhengi
Upphaf bólusetninga barna hér var árið 1802 þegar byrjað var að bólusetja með
kúabólu gegn bólusótt og var Ísland eitt af fyrstu löndum heims til að hefja al-
menna
notkun á því bóluefni.