Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 127. tölublað 106. árgangur
SÉRBLAÐ UM
SJÓMANNA-
DAGINN
MARIACHI-BLANDA
SNÁKAR OG ÖNNUR
SKRIÐDÝR Í SÉR-
STÖKU UPPÁHALDI
RÓMANSKIR TÓNAR FRÁ NEW YORK 38 STARFAR Í LONDON ZOO 12HÁTÍÐISDAGUR
Morgunblaðið/Hanna
Kringlan Reitir eiga Kringluna.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita,
segir nýtt fasteignamat fyrir 2019
munu að óbreyttu auka kostnað við
fasteignir. Það geti aftur birst í leigu-
verði á atvinnuhúsnæði.
Guðjón segir fasteignamatið á
eignasafni Reita hækka um 17% milli
ára. Það sé umfram væntingar stjórn-
enda félagsins. Reitir eru stærsta
fasteignafélag landsins og er Kringl-
an hluti af eignasafninu.
„Það er augljóst að rekstrarkostn-
aður fasteigna verður meiri vegna
þessa. Að öllum líkindum smitast það
út í verðlag. Okkur þykir það mjög
miður fyrir viðskiptavini okkar. Hluti
leigusamninga okkar er með ákvæði
um að ef það verða verulegar hækk-
anir á fasteignagjöldum getum við
breytt leiguverði. Eldri samningar
eru ekki með slíkt ákvæði en allir
nýrri samningar eru með það.“
Skattahækkanir á fyrirtæki
Guðjón segir Reiti áður hafa gagn-
rýnt „að breytt aðferðafræði við fast-
eignamat skuli skila sér beint út í
skattahækkanir á atvinnulífið“.
Sveitarfélögin hafi lítið hreyft við
skattprósentunni.
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Arion
banka, segir að ef fasteignaskattar
verði óbreyttir sé hætt við að nýtt
fasteignamat hækki verðlag og ýti
þar með undir verðbólgu. Hærri gjöld
muni m.a. auka kostnað hótela og
leigufélaga. Á þessu stigi hagsveifl-
unnar sé slæmt að leiguverð skuli
hækka umfram laun og verðlag.
baldura@mbl.is »6
Fasteigna-
mat ýtir
upp leigu
Reitir gagnrýna
nýtt fasteignamat
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Coripharma og hópur fjárfesta
keyptu í gær lyfjaverksmiðju Acta-
vis í Hafnarfirði og húsnæði fyrir-
tækisins við Reykjavíkurveg 76 af
Teva Pharmaceutical Industries.
Skrifað var undir samninginn í gær.
Ákveðinn hópur fyrrverandi lykil-
starfsmanna og stjórnenda Actavis
hefur undanfarin tvö ár unnið að því
að fá fjárfesta að borðinu til þess að
gera kaupin möguleg og hefja
rekstur lyfjaverksmiðjunnar á ný.
Bjarni K. Þorvarðarson rafmagns-
verkfræðingur verður forstjóri
Coripharma, sem þegar hefur ráðið
10 manns til starfa. Bjarni segir í
samtali við Morgunblaðið í dag að
innan þriggja mánaða verði starfs-
menn orðnir 40 talsins og fyrirtækið
stefni að því að innan tveggja ára
verði starfsmannafjöldi orðinn 300
manns.
Stærstu fjárfestarnir í Cori-
pharma eru Framtakssjóður, í stýr-
ingu Íslenskra verðbréfa, Bjarni,
VÍS, Hof og tveir fyrrverandi for-
stjórar Actavis og Delta. Auk þess
fjárfesta áðurnefndir lykilstarfs-
menn í félaginu. Kaupverðið er
trúnaðarmál.
Torfi Rafn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
Coripharma, segir að í upphafi verði
aðaláherslan lögð á að framleiða
samheitalyf undir merkjum annarra
lyfjafyrirtækja – svokölluð verk-
takaframleiðsla – og viðræður séu
þegar hafnar við nokkur fyrirtæki.
Stefnt verði að því að afgreiða
fyrstu lyfin frá Coripharma á fyrsta
ársfjórðungi 2019. Torfi segir mikil
tækifæri á verktökumarkaðnum
sem Coripharma byrji á, en hann
velti 5 milljörðum bandaríkjadala og
sé spáð 50% vexti á nokkrum árum.
„Þegar við svo fullnýtum aðstöðuna
og förum í eigin þróun verðum við
með framleiðslugetu fyrir markað
sem er ennþá umfangsmeiri, eða um
50 sinnum stærri en verktökufram-
leiðslan,“ segir Torfi.
Kaupir Actavis á Íslandi
Coripharma ehf. ætlar að hefja lyfjaframleiðslu í verksmiðjunni í Hafnarfirði
Samningur undirritaður í gær Undirbúningur málsins hefur staðið lengi
MCoripharma kaupir Actavis »14
Morgunblaðið/Hari
Fræði Vísindamennirnir þrír að baki
rannsókninni sem kynnt var í gær.
Vísindamenn Íslenskrar erfðagrein-
ingar hafa raðgreint erfðamengi úr
tönnum 25 einstaklinga frá land-
námsöld. Niðurstöðurnar birtust í
vísindatímaritinu Science í gær. Þær
varpa nýju ljósi á fólkið sem nam
land á Íslandi fyrir meira en 1.100
árum.
Með samanburði við arfgerðir úr
núlifandi íbúum Íslands, Bretlands-
eyja, Skandinavíu og annarra Evr-
ópulanda var í fyrsta sinn hægt að
meta beint uppruna einstaklinga frá
landnámsöld. Niðurstöðurnar sýna
að í landnámshópnum voru sumir af
norrænum uppruna, aðrir af kelt-
neskum og enn aðrir af blönduðum
uppruna. Líklegt er að slík blöndun
hafi átt sér stað á Bretlandseyjum.
Alls var norrænn uppruni einstak-
linganna frá landnámsöld um 57%,
en er 70% í núlifandi Íslendingum.
Ein möguleg skýring á þessum mun
er að við upphaf Íslandsbyggðar hafi
fólk af keltneskum uppruna eignast
færri börn en fólk af norrænum upp-
runa, líklega vegna þrælahalds og
stéttaskiptingar. Einnig gæti blönd-
un við Dani á síðustu öldum haft
áhrif. »2
Greina uppruna Íslendinga
57% landnámsmanna Íslands voru af norrænum uppruna
Það hefur verið góð spretta á höfuðborgarsvæð-
inu eftir metrigningu í maí. Þessir vösku piltar
munduðu orfin af einbeitingu við fyrsta slátt
sumarsins við Eyjaslóð úti á Granda. Útlit er
fyrir að þurrt verði að mestu í Reykjavík um
helgina og tilvalið veður til grassláttar.
Einbeittir við fyrsta slátt sumarsins
Morgunblaðið/Eggert
Sigríður Vilhjálmsdóttir er efst á
lista yfir þá sem greiddu hæsta
skatta á Íslandi í fyrra. Ríkisskatt-
stjóri birti í gær lista yfir 40 hæstu
skattgreiðendur landsins. Sigríður
er stór hluthafi í Fiskveiðihlutafélag-
inu Venus hf., sem er stærsti hluthafi
Hvals hf., rétt eins og systkinin
Kristján Loftsson og Birna Lofts-
dóttir sem skipa sjötta og sjöunda
sæti listans.
Á umræddum lista er að finna
nokkra einstaklinga sem hagnast
hafa á sölu sjávarútvegsfyrirtækja,
útgerðarinnar Soffaníasar Cecils-
sonar í Grundarfirði og Glófaxa í
Vestmannaeyjum, auk fleiri sem
tengjast sjávarútvegi. Þá er þar að
finna forstjóra á borð við Liv Berg-
þórsdóttur hjá Nova og Róbert
Wessman hjá Alvogen, Grím Sæ-
mundsen hjá Bláa lóninu og Tómas
Má Sigurðsson, forstjóra framleiðslu
Alcoa á heimsvísu.
Alls voru 297.674 framteljendur á
skattskrá og hafa aldrei verið fleiri.
Framteljendum fjölgaði um 3,8% frá
fyrra ári. Þeim hefur ekki fjölgað
jafnmikið síðan árið 2007, en þá
fjölgaði þeim um 10.855. »16
Greiddi 426 milljónir
króna í skatt í fyrra