Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Manduca burðarpokinn er hannaður með
það markmið að leiðarljósi að barn geti
viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma.
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur
Merkivélarnar
frá Brother eru
frábær lausn
inná hvert
heimili og
fyrirtæki
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd-viti Viðreisnar í Reykjavík,
lagði mikla áherslu á það í fjöl-
miðlum í gær að Viðreisn væri ekki
að fara inn í gamla meirihlutann í
Reykjavík. Þetta
yrði sko nýr meiri-
hluti, ekki gamall.
„Við erum ný, við
köllum á breytingar
og við köllum á nýj-
an meirihluta,“
sagði Þórdís Lóa, á
hraðferð inn í
gamla meirihlutann
undir stjórn Dags B. Eggertssonar.
Við lítum nú ekki á að við séumað ganga inn í neitt gamalt.
Við erum bara að fara að stofna
nýjan meirihluta ef okkur gengur
og þá verður það nýr meirihluti,“
sagði Þórdís Lóa.
Nýi meirihlutinn verður semsagt nýr meirihluti, bara svo
að það sé á hreinu.
Og ástæðan fyrir því að oddvitiViðreisnar þarf að tönnlast
svona á því er auðvitað ekki að hún
viti betur og átti sig á að flokkurinn
sé í raun að ganga inn í gamla
meirihlutann og muni þar starfa
sem hækja Samfylkingar Dags.
Nei, ástæða þess að Þórdís Lóahamast við að tala um nýjan
meirihluta er að hann er alveg
óskyldur þeim sem setið hefur og
missti meirihlutann með risastóru
tapi. Og það var ekki bara vegna
þess að Björt framtíð bauð ekki
fram, það var líka vegna þess að
hinir flokkarnir þrír töpuðu átta
prósentustigum.
Og þessir þrír flokkar verða íglænýja meirihlutanum með
gömlu stefnuna sem hafnað var –
og eflaust gamla fallna borgarstjór-
ann að auki.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Nýtt, nýtt, nýtt og
aftur nýtt – gamalt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 31.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 12 heiðskírt
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 27 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 25 léttskýjað
Brussel 25 léttskýjað
Dublin 20 léttskýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 20 þoka
París 23 léttskýjað
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 26 léttskýjað
Berlín 30 léttskýjað
Vín 28 heiðskírt
Moskva 9 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 25 heiðskírt
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 17 alskýjað
Montreal 25 skýjað
New York 19 þoka
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:22 23:30
ÍSAFJÖRÐUR 2:40 24:22
SIGLUFJÖRÐUR 2:21 24:07
DJÚPIVOGUR 2:42 23:09
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Menn úr brúarvinnuflokki frá Vega-
gerðinni vinna um þessar mundir við
að breikka og endurforma brúna yfir
Miðfjarðará í Húnaþingi vestra. Út-
kantarnir á brúnni eru endur-
byggðir og bríkur mjókkaðar um 40
cm á hvorri akrein, þannig að ak-
brautin verður alls 7,80 metra breið.
Einnig er brúin meðal annars styrkt
með nýjum járnabindingum, steypt
er nýtt gólf og nýtt vegrið sett upp.
Eftir þessar framkvæmdir ætti
aðkoman að brúnni, sem er 96 metra
löng, að verða greiðari og öruggari.
Vatnavextir hafa truflað
„Þetta gengur allt samkvæmt
áætlun, en auðvitað hefur rysjótt
veðrátta með roki og rigningu ekki
verið til neinna bóta. Þá hafa vatna-
vextir í ánni svolítið truflað okkur,“
sagði Vilhjálmur Arnórsson brúar-
smiður í samtali við Morgunblaðið. Í
vinnuflokknum sem mætti á staðinn
26. mars eru 4 til 6 menn og áætlað
er að þeir ljúki verkinu í byrjun
ágúst. Nú þegar er búið að steypa
upp nýjan kant á brúna að norðan og
nú er unnið að broti á nyrðri akrein;
þannig er verkið unnið, skref af
skrefi.
Meðan á framkvæmdum stendur
er umferð yfir brúna, sem er á
hringveginum, stýrt með ljósum. Er
umferð úr norðri og suðri þá hleypt í
gegn sitt á hvað. „Sumir ökumenn
pirra sig á þessu, en almennt hefur
þetta gengið mjög greiðlega fyrir
sig,“ segir Vilhjálmur.
Mörg verkefni í gangi
Af öðrum verkefnum í brúargerð
á landinu má nefna breikkun ein-
breiðra brúa yfir Hólá og Stigá í
Öræfum og framkvæmdir þar eru í
fullum gangi. Þá er bygging nýrra
brúa yfir Hverfisfljót og Brunná á
Síðu í Skaftárhreppi og Kvíá í
Öræfasveitinni í undirbúningi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Miðfjarðará Vilhjálmur Arnórsson brúarsmiður á vettvangi. Að jafnaði 4 til
6 eru í vinnuflokknum sem sinnir smíði og viðgerðum á brúm víða um land.
Endurbæta brúna
yfir Miðfjarðará
Sumir ökumenn pirraðir vegna tafa
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framkvæmdir Kantur er breikk-
aður og mótum var slegið upp.
Atvinna