Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
nari upp singar áwww.geosilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum íslenskum
jarðhitakísil og magnesíum í hreinu
íslensku vatni.
Varan inniheldur engin aukaefni.
Recover er sérstaklega hannað og þróað
af geoSilica til að stuðla að eðlilegri
vöðva- og taugastarfsem
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Hjónin Jóna Arnórsdóttir og Gunnar
Malmquist Gunnarsson á Akureyri
hafa í nógu að snúast um þessar
mundir. Yngri sonur þeirra, Aron
Einar, er landsliðsfyrirliði í fótbolta
og Arnór Þór, sá eldri, landsliðs-
maður í handbolta. Þau fara að sjálf-
sögðu á HM í Rússlandi en skreppa
fyrst um helgina til Þýskalands til að
sjá síðasta leik vetrarins hjá Arnóri
og fagna því að lið hans, Bergischer,
vann sér sæti í efstu deild á ný.
„Við gerum að sjálfsögðu ekki upp
á milli strákanna,“ segir Jóna og
hlær þegar blaðamaður ræðir við
þau um afreksmennina tvo.
Jóna og Kristbjörg, eiginkona Ar-
ons Einars, sjá alla þrjá leiki Íslands
á HM eins og það var svo óvarlega
orðað í samtali hennar og blaða-
manns. „Fyrstu þrjá!“ segir gamli
keppnismaðurinn Gunnar hvass …
Hann sér fyrstu tvo leiki Íslands.
Hjónin, börn þeirra og barnabörn
– alls 13 manns – fóru saman á EM í
Frakklandi fyrir tveimur árum.
Leigðu hús í Annecy, þar sem ís-
lenska liðið hafði bækistöð, og
keyrðu í leikina. „Það var rosalega
gaman á EM. Allir voru svo glaðir
og jákvæðir; stemningin var svo
skemmtileg að ekki var annað hægt
en hrífast með,“ segir Jóna.
„Það var heldur ekki ónýtt að fá
hann í mat, þegar við grilluðum
lambakjöt sem við komum með frá
Íslandi,“ segir Gunnar, en þar sem
Aron gat ekki tekið þátt í öllum æf-
ingum vegna meiðsla, fékk hann að
skjótast og hitta fjölskylduna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikil tilhlökkun Gunnar Malmquist Gunnarsson með landsliðstreyju Arnórs Þórs, og Jóna Arnórsdóttir með treyj-
una sem Aron Einar klæddist í sigrinum á Kosovo í fyrrahaust, þegar Ísland tryggði sér sæti á HM í Rússlandi.
„Trúin flytur fjöll“
Foreldrar Arons Einars hlakka mikið til Rússlandsferðar
Verða í Þýskalandi um helgina að fagna með Arnóri Þór
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
EM 2016 Aron Einar faðmar Jónu móður sína eftir sigurinn á Englandi.
Lagt er til að lögin um kjararáð falli
úr gildi 1. júlí nk. og þar með verði
ráðið lagt niður í frumvarpi sem
meirihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar hefur lagt fram á Alþingi.
Þá er gert ráð fyrir að hafi ný
ákvörðun ekki
verið tekin fyrir
1. maí 2019 skuli
laun þeirra sem
heyra undir
ákvarðanir kjara-
ráðs taka breyt-
ingum í samræmi
við hlutfallslega
breytingu á með-
altali reglulegra
launa ríkisstarfs-
manna eins og
hún birtist í tölum Hagstofu Ís-
land fyrir næstliðið almanaksár.
„Skipunartími núverandi ráðs-
manna kjararáðs rennur út 30. júní
2018. Í ljósi þess að nú er unnið að
gerð frumvarps, þar sem stefnt er að
breyttu fyrirkomulagi launaákvarð-
ana þeirra sem nú heyra undir
ákvörðunarvald kjararáðs, þykir
ekki rétt að nýtt kjararáð verði skip-
að og er því nauðsynlegt að fella úr
gildi lög um kjararáð,“ segir í
greinargerð meirihlutans með frum-
varpinu.
Skynsamlegt að taka af tvímæli
Óli Björn Kárason, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar, segir
að ástæða þess að meirihlutinn legg-
ur til að lögin verði felld úr gildi sé
sú að skipunartíminn sé að renna út
og í ljósi þess að unnið er að laga-
setningu á grundvelli tillagna starfs-
hóps forsætisráðherra, sem skilaði
niðurstöðum sínum í febrúar sl. um
að komið verði skikkanlegri skipan á
ákvörðun launa þeirra hópa sem
heyra undir kjararáð. Því finnst
meirihluta þingnefndarinnar skyn-
samlegt að taka af öll tvímæli um
breytingarnar að sögn hans.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
vildu ekki vera meðflutningsmenn
að frumvarpinu og segir Óli Björn að
það valdi vonbrigðum. Hann vonist
til þess að frumvarpið komist á dag-
skrá þingsins og að þó stjórnarand-
staðan hafi ekki viljað vera með
muni hún a.mk. ekki standa í vegi
fyrir því að málið fái efnislega um-
ræðu á þinginu. Segist Óli Björn
ekki trúa öðru en að frumvarpið
verði afgreitt sem lög fyrir sumarhlé
þingsins. ,,Ég bíð bara eftir að fá að
mæla fyrir málinu,“ segir hann.
Megindrættir að framtíðarfyrir-
komulagi launaákvarðana þeirra
sem heyra í dag undir kjararáð
koma fram í skýrslu starfshóps for-
sætisráðherra. Lagði hópurinn m.a.
til að horfið yrði frá því að úrskurða í
kjararáði, eða hjá sambærilegum úr-
skurðaraðila, um laun þjóðkjörinna
fulltrúa, æðstu embættismanna, ráð-
herra og annarra sem undir ráðið
heyra. Jafnframt að laun þingmanna
verði ákvörðuð í lögum um þingfar-
arkaup með fastri krónutölufjárhæð
og laun ráðherra verði ákveðin með
sama hætti í lögum um Stjórnarráð
Íslands. omfr@mbl.is
Kjararáð verði
lagt niður 1. júlí
Óli Björn hefur trú á að frumvarpið
verði lögfest fyrir sumarhlé þingsins
Óli Björn
Kárason
15 DAGAR Í FYRSTALEIK ÍSLANDS
Þau segjast farin að hlakka mikið
til Rússlandsferðarinnar.
„Þessir strákar eru svo flottir að
mér finnst eiginlega engu máli
skipta hvernig fer, bara að vera með
á HM og fá að upplifa þetta finnst
mér stórkostlegt!“ segir Jóna.
„Maður er búinn að fylgjast lengi
með en mér hefði aldrei dottið í hug
að Ísland gæti orðið með í þessu,“
segir hún.
„Þetta verður gaman, en fer mikið
eftir fyrsta leiknum,“ segir Gunnar.
„Innst inni hélt maður að Portúgal
væri með það gott lið að við hefðum
ekki roð við þeim í fyrsta leiknum í
Frakklandi en annað koma á daginn.
Argentínumenn eru með marga frá-
bæra einstaklinga en liðið hefur
samt oft verið í vandræðum með að
stilla saman strengi.“
Jóna tekur undir að verkefnið í
Rússlandi verði að sjálfsögðu erfitt
fyrir Aron Einar og samherja hans,
„en ég hef samt bullandi trú á þeim.
Ég sagði við Aron að þeir yrðu bara
að hafa trú á sjálfum sér því ég veit
að þeir geta staðið sig vel á góðum
degi; og trúin flytur fjöll.“
Hjónin eru gríðarlega stolt af
báðum drengjunum sínum, eins og
nærri má geta. „Það er ekki annað
hægt,“ segir Gunnar og Jóna bætir
við: „Þeir eru ofboðslega flottir og
hafa staðið sig vel. Ég er ótrúlega
ánægð með þá báða.“