Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
„Hagstofa Íslands hefur í samræmi
við þingsályktun Alþingis frá 16. maí
2014 staðið að sérstakri gagnasöfnun
um kjörsókn eftir aldri kjósenda í
þeim almennu kosningum sem haldn-
ar hafa verið síðan þá. Í nýliðnum
sveitarstjórnarkosningum var sam-
bærileg beiðni um skýrslugjöf send
yfirkjörstjórnum 74 sveitarfélaga.
Um skýrslugjöf yfirkjörstjórna í
sveitarstjórnarkosningum segir í 88.
gr. laga um kosningar til sveitar-
stjórna nr. 5/1998: „Yfirkjörstjórn
skal senda Hagstofu Íslands skýrslu
um kosninguna ritaða á eyðublað er
Hagstofan lætur í té.““ Þetta kom
fram í tilkynningu frá Hagstofunni
vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær.
Hagstofan segir að gagnasöfnunin
taki mið af öruggri meðferð persónu-
upplýsinga um leið og gætt sé að
svarbyrði við framkvæmd. Þetta sé
gert í samræmi við lög um Hagstofu
Íslands og opinbera hagskýrslugerð
og lög um persónuvernd.
„Að beiðni kjörstjórna er beðið um
að skrásettar séu raðtölur þeirra sem
kusu ekki til að minnka álag við inn-
slátt. Auk heldur er í samræmi við
fyrri reynslu tilgreint á eyðublaðinu
hvort raðtalan eigi við um konu eða
karl til að minnka villuhættu við inn-
slátt. Eftir að yfirkjörstjórnir hafa
skilað gögnum á öruggt vefsvæði fá
gögnin nýtt auðkenni sem er ótengt
kennitölu, nafni eða raðnúmeri kjör-
skrár en öðrum upplýsingum er eytt.
Gögnin eru því hvorki rekjanleg til
nafns né kennitölu,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Hagstofan kveðst hafa skýra heim-
ild til að safna og nota persónu-
greinanleg gögn við hagskýrslugerð
og leggja áherslu á örugga meðferð
trúnaðargagna. Fyrir alþingiskosn-
ingar haustið 2016 var beðið um álit
Persónuverndar á því hvort vinnsla
Hagstofunnar væri í samræmi við lög
og gerði Persónuvernd engar at-
hugasemdir við vinnsluferlið.
Enn fremur segir í tilkynningunni
að um sé að ræða brýnar upplýsingar
um samfélagsgerð og lýðræðislega
virkni borgaranna. Í ljósi þess að erf-
itt geti verið að fá fulla þátttöku frá
ungu fólki og fólki með erlendan upp-
runa í úrtaksrannsóknum sé sú leið
illfær til að fá áreiðanlegar upplýs-
ingar um kosningaþátttöku þeirra.
Því hafi verið kallað eftir sérstökum
skýrslum frá yfirkjörstjórnum um
kosningaþátttökuna.
Gögnin eru
órekjanleg
Hagstofa leitaði álits Persónuverndar
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Margir muna eflaust eftir því þegar
fyrsta bílnum var ekið af vinstri
vegarhelmingi yfir á þann hægri 26.
maí 1968. Þar fór Valgarð Briem,
þáverandi formaður framkvæmda-
nefndar. Valgarð var mættur aftur í
gær á Skúlagötu í Reykjavík og ók
sama bílnum af vinstri vegarhelm-
ingi yfir á þann hægri, líkt og hann
gerði á sama stað fyrir hálfri öld.
Bíllinn, sem er af gerðinni Ply-
mouth Valiant, var settur í stand
fyrir tilefnið og fór kraftur hans
ekki framhjá viðstöddum, góð
áminning um hversu hljóðlátir bílar
eru í dag. Til að undirstrika breytta
tíma ók 17 ára starfsmaður Sam-
göngustofu nýlegri Tesla-rafbifreið
á eftir Valgarð með Sigurð Inga Jó-
hannsson samgönguráðherra sem
farþega. Reiðhjól með vagn í eftir-
dragi rak lestina til að undirstrika
enn frekar fjölbreytta flóru sam-
gangna í dag.
Mikilvæg fræðsla
Mikil fræðsla og kynning á ör-
yggi í samgöngum átti sér stað í að-
draganda H-dagsins fyrir fimmtíu
árum og var þá nokkuð ný af nál-
inni. Einar Magnús Magnússon,
sérfræðingur í öryggis- og fræðslu-
deild Samgöngustofu, telur að
fræðslan og átakið í kringum H-
daginn hafi skipt sköpum fyrir
landslag öryggismála í landinu.
„Árangurinn sem náðist í
kringum H-daginn var ótrúlegur og
það er því lag að líta á afmælið sem
leið til að votta þeim frumkvöðlum
sem stóðu þar að baki virðingu og
þakka það góða starf sem þeir unnu
í þágu umferðaröryggis.“
Sigurður Ingi Jóhannsson segir
einnig að H-dagurinn hafi verið
vendipunktur í öryggisstarfi og
fræðslu.
„Það er gott að minnast þess
ótrúlega árangurs sem H-dagurinn
uppskar, en tíðni umferðarslysa
snarminnkaði 1968 og árið þar á eft-
ir. Þetta sýnir að með öflugri
fræðslu og kynningu er hægt að
draga verulega úr slysum. Í dag á
þetta ennþá við, það er alltaf hægt
að gera betur og minna meira á ör-
yggi í umferðinni.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
94 ára bílstjóri Valgarð Briem endurtók leikinn frá því fyrir hálfri öld þegar hann ók af vinstri vegarhelmingi yfir á hægri vegarhelming í táknrænni bílferð við Sjávarútvegshúsið í gær.
H-dagurinn frá 1968 endurgerður
Gömlum bíl og nýjum rafbíl ekið í táknrænni ökuferð frá vinstri til hægri á Skúlagötu í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tvennir tímar Gömul drossía og nýr rafbíll undirstrikuðu öldina hálfu.