Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 12
lækurinn leiðir út í til þess að finna
krabbadýr og fleiri liðdýr. Hvert
sem ég fór var ég alltaf að leita að
dýrum og þá sérstaklega framandi
dýrum.“
Unnar Karl sérhæfir sig í
skriðdýrum og segir hann áhugann
á þeim hafa orðið til þegar hann var
smástrákur og sá frosk í fyrsta
skipti á ævinni.
„Þegar ég fór með fjölskyldu
minni til Portúgals þegar ég var lít-
ill sá ég í fyrsta skipti frosk, sem
stökk ofan í tjörn, og þá varð ekki
aftur snúið. Ég varð heltekinn af
skriðdýrum og eyddi þessum þrem-
ur vikum í Portúgal í að leita að
froskum á daginn og eðlum á
kvöldin. Sömuleiðis eyddi ég mikl-
um tíma í gæludýraverslunum, að
suða í foreldrum mínum að kaupa
fyrir mig froska.“
Foreldrar Unnars Karls gáf-
ust, að hans sögn, loks upp og allar
götur síðan hefur hann átt fram-
andi gæludýr, allt frá örsmáum
eiturörvafroskum yfir í stóra baul-
froska. Það reyndist þó þrautin
þyngri fyrir íslenskan dreng að
eiga slík gæludýr, þar sem þau eru
ekki leyfð sem gæludýr hér á landi.
„Þetta er úrelt lögbann sem gerir
Ísland að einu þjóð Evrópu sem
ekki leyfir skriðdýr sem gæludýr.“
Í Bretlandi starfar Unnar Karl
í dýragarði í London sem nefnist
einfaldlega London Zoo, en það
ákvað hann fljótlega eftir að hann
hóf námið í dýralíffræði. „Eftir að
ég hóf námið byrjaði ég að senda
tölvupósta til yfirmanna London
Zoo og kanna hvort þá vantaði ekki
sjálfboðaliða. Eftir nokkra mánuði
var mér boðin sjálfboðavinna við að
fræða gesti garðsins um dýrin þar.
Seinna komst ég svo inn í skrið- og
froskdýradeildina og þar er ég
vikulega. Nú orðið er ég einnig
reglulega í fiskadeildinni.“
Unnari Karli líkar vinnan
ákaflega vel. „Besti dagur vikunnar
er þegar ég er í skriðdýradeildinni.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Unnar Karl er fæddur oguppalinn í Kópavogi oglauk námi í bifvélavirkj-un frá Borgarholts-
skóla. Hann fann sig þó aldrei al-
mennilega í bifvélavirkjun og eftir
nokkur ár í starfi ákvað hann að
söðla um og finna sér starf tengt
umönnun dýra. „Þá var ég loksins
farinn að finna mig aftur.“
Hann ákvað að breyta alger-
lega um stefnu og leggja land undir
fót og leiddi ævintýraþráin hann á
endanum til Bretlandseyja.
Aðspurður segir Unnar Karl
Bretland hafa orðið fyrir valinu þar
sem það hafi einfaldlega verið
ódýrast að stunda BA-nám í dýra-
líffræði á Englandi. Beðinn að út-
skýra dýralíffræði nánar stendur
ekki á svörum:
„Dýralíffræði, eða zoology eins
og þetta heitir á ensku, er mjög
skemmtilegt og gríðarlega áhuga-
vert nám. Aðaláherslur eru þróun-
arkenningin, vistfræði og uppbygg-
ing lífvera, allt frá einföldum
frumum og upp í mjög stór dýr og
allt þar á milli. Okkur er sömuleiðis
kennt hvernig skal framkvæma
rannsókn frá byrjun til enda og
hvernig á að skrifa almennilegar
ritgerðir um slíkar rannsóknir.“
Unnar Karl segir það fjarri
lagi að dýralíffræði hafi verið
æskudraumur. „Satt best að segja
vissi ég ekki af þessu námi fyrr en
ég var um það bil tvítugur. Þá byrj-
aði ég að leita að námi sem tengdist
dýrum.“
Dýraáhuginn hefur hins vegar
alltaf verið fyrir hendi að hans
sögn.
Froskur kveikti áhugann
„Ég var duglegur að heim-
sækja „skítalækinn“ í Kópavogi til
að veiða og fylgjast með hornsílum.
Sömuleiðis fór ég oft í fjöruna sem
Snákar eru vanmetin gæludýr
Unnar Karl Ævarsson úr Kópavogi nemur dýra-
líf fræði í Bretlandi og starfar í London Zoo. Snákar
og önnur skriðdýr eru í sérstöku uppáhaldi.
Löng Ball Python, kvenkyns kyrkislanga í eigu Unnars Karls.
Snákamaðurinn Unnar Karl með King Cobra-slöngu sem er ein sú eitr-
aðasta í heimi. Unnar starfar sem sjálfboðaliði í London dýragarðinum.
Við byrjum á að labba hring og
kanna hvernig dýrin hafa það. Í
kjölfarið eru þau búr þrifin sem
þarfnast þess. Skriðdýrin eru á
ákveðnu matarplani og fá að éta á
sérstökum dögum, sumar tegundir
þurfa mat nokkrum sinnum á dag
en önnur dýr, eins og snákar og
krókódílar, éta einu sinni til tvisvar
í mánuði. Í lok dagsins er svo
ákveðnu auðgunarplani fylgt. Þá
eru skilningarvit dýranna örvuð,
sem er mjög gott bæði fyrir and-
lega heilsu þeirra sem og líkam-
lega. Dæmi um þetta er Komodo--
drekinn, við felum örlítið af mat
fyrir hann og hann þarf að reiða sig
á lyktarskynið til að finna hann.“
Áhugi Unnars Karls á fram-
andi gæludýrum hefur síður en svo
minnkað, en á heimili hans má
finna nokkurn fjölda snáka. Að-
spurður segir Unnar Karl það ekki
vera vandamál og snákar séu mjög
skemmtileg gæludýr.
Snákar mjög forvitnir
„Þetta eru gríðarlega van-
metin dýr og hafa slæmt orðspor.
Flestir halda að þeir séu slímugir
og allir virðast þekkja einhvern
sem átti snák sem var að teygja úr
sér til þess að „mæla“ og búa sig
undir að éta eiganda sinn. Enginn
snákur ber sig saman við bráð áður
en hún er étin, enda væri það mjög
ópraktískt fyrir snákinn.“
Unnar Karl segir snáka vera
mjög forvitin dýr. Flesta snáka
sem fólk heldur sem gæludýr er
hægt að taka út úr búrinu og hand-
leika.
„Mér finnst mjög gaman að
rétta fólki snákana mína, þá sér
það að það er engin hætta og vill
oft fá að kynnast þeim betur. Ég er
með þrjá snáka eins og er og sá
fjórði er á leiðinni. Hann er aftur á
móti eitraður svo það verður ekki
hægt að handleika hann.“
Unnar Karl segir snákana
vera með kalt blóð. Í búrunum
þeirra þarf því ávallt að vera hita-
gjafi svo þeir geti hækkað blóðhita
sinn ef þeir vilja. „Svo éta þeir af-
frystar mýs sem ég geymi í frysti.“
En skyldi ekki vera dýrt að halda
snáka sem gæludýr? „Startpakkinn
kostar töluvert, það er að segja
búr, hitagræjur og búrskraut, en
viðhald snáka er mjög ódýrt.“
Unnar Karl segist óviss með
hvað taki við eftir að námi lýkur en
hann vonast þó til að geta fengið
vinnu í dýragarði sem hefur gott
safn af skriðdýrum. Nefnir hann þá
helst London Zoo. „Þar eru þeir
meðal annars að rækta bæði skrið-
og froskdýr sem eru í útrýmingar-
hættu. Mig langar helst til þess að
sérhæfa mig í snákum og eðlum og
þá sérstaklega eitruðum snákum,“
segir Unnar Karl að lokum.
Dýragarður Unnar Karl
með risa Galapagos-
skjaldböku í London Zoo.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.