Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Forsvarsmenn Coripharma Hold-
ing ehf. og Actavis Group PTC ehf.,
hluta af samstæðu Teva Pharma-
ceutical Industries Ltd, undirrituðu í
gær samkomulag um kaup Cori-
pharma á Actavis ehf.
Coripharma var stofnað af meðal
annars fyrrverandi stjórnendum og
lykilstarfsmönnum Actavis á Íslandi
til þess að undirbúa kaupin, en sá
undirbúningur hefur staðið meira og
minna allt frá því að tilkynnt var um
fyrirhugaða lokun á lyfjaverksmiðj-
unni fyrir rétt um 2 árum, að sögn
Bjarna K. Þorvarðarsonar, forstjóra
Coripharma og eins stærsta hluthaf-
ans í hinu nýja fyrirtæki. Hann segir
að kaupverðið sé trúnaðarmál.
Starfsmenn félagsins eru nú 10, en
Bjarni segir að innan þriggja mán-
aða verði þeir orðnir 30. „Þegar
verksmiðja Actavis var í fullum
gangi voru um 300 starfsmenn í
verksmiðjunni og stoðstörfunum og
þar ætlum við að vera tveggja ára,“
sagði Bjarni í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Með kaupunum eignast Cori-
pharma stærstu lyfjaverksmiðju á
Íslandi og skrifstofuhúsnæði á
Reykjavíkurvegi 76 ásamt Kársnes-
braut 108. Hyggjast forsvarsmenn
Coripharma hefja lyfjaframleiðslu í
Hafnarfirði á ný og virkja þá miklu
þekkingu sem þar hafði byggst upp,
allt frá því fyrsti hluti verksmiðjunn-
ar var reistur við Reykjavíkurveg
árið 1983, þar til framleiðslu var
hætt í fyrra. Teva mun áfram eiga og
reka Medis og önnur félög í nafni Ac-
tavis á Íslandi og heldur öllum rétt-
indum er lúta að Actavis-nafninu.
Mikill áhugi á endurreisn
„Við erum mjög ánægð með að
hafa náð þessu samkomulagi við
Teva og geta nú virkjað þann mikla
áhuga sem við höfum fundið á að
endurreisa fyrri framleiðslu og út-
flutning lyfja héðan. Í hópi Cori-
pharma eru bæði reyndir fjárfestar
og vanir aðilar úr rekstri alþjóðlegra
lyfjafyrirtækja og þessarar lyfja-
verksmiðju. Samhliða sjálfstæðri
lyfjaframleiðslu Coripharma sjáum
við jafnframt fram á að njóta góðs af
nánu sambýli við önnur lyfjafélög
sem eru rekin hér á landi. Þannig
stefnum við á kraftmikið og frjótt
framleiðslu- og þekkingarsamfélag
nokkurra félaga í skyldum rekstri í
framtíðinni,“ sagði Bjarni.
Spurður hverjir séu helstu fjár-
festar í Coripharma segir Bjarni:
Fjárfestarnir allir íslenskir
„Nýju fjárfestarnir eru allir ís-
lenskir. Stærsti fjárfestirinn er
Framtakssjóður í stýringu Íslenskra
verðbréfa. Ég er næststærsti fjár-
festirinn og VÍS sá þriðji stærsti.
Auk þeirra er Hof, félag í eigu
bræðranna Sigurðar Gísla og Jóns
Pálmasona, fjárfestir í félaginu og
tveir fyrrverandi forstjórar Actavis
og forvera Actavis, þau Guðbjörg
Edda Eggertsdóttir og Ottó Björn
Ólafsson, sem var forstjóri Delta á
sínum tíma. Þessir fjárfestar hafa
bæst við hóp eigenda Coripharma
sem samanstóð af þeim sem hafa
unnið að framgangi verkefnisins síð-
astliðin tvö ár,“ segir Bjarni.
Bjarni rifjar upp að tilkynnt var
árið 2016 að verksmiðju Actavis yrði
lokað og það hafi svo gerst í febrúar í
fyrra. „Þegar það gerðist fór hópur
manna af stað til þess að kanna
hvernig þeir gætu staðið að málum,
til þess að tryggja að lyfjaverksmiðj-
an yrði opnuð sem fyrst aftur. Þar
var valinkunnur hópur fjármála-
manna sem og fyrrverandi lykil-
starfsmenn hjá Actavis, þeir Torfi,
Stefán Jökull Sveinsson, Sigurgeir
Guðlaugsson, Bolli Thoroddsen og
Tryggvi Þorvaldsson, sem allir eru í
hópi eigenda,“ sagði Bjarni.
Tilskilin leyfi fyrir árslok
Framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar Coripharma, Torfi Rafn Hall-
dórsson, segir: „Félagið stefnir á að
verksmiðjan verði komin í fullan
rekstur á ný innan árs. Vinna við að
manna starfsemina og endurnýja öll
gæðavottorð verksmiðjunnar er þeg-
ar hafin og stefnum við á að öll til-
skilin leyfi til alþjóðlegrar lyfjafram-
leiðslu verði komin fyrir lok ársins. Í
upphafi munum við gera samstarfs-
samninga við lyfjafyrirtæki, um að
framleiða lyf undir þeirra merkjum í
verktöku. Þegar eru hafnar viðræð-
ur við allnokkur alþjóðleg lyfja-
fyrirtæki, sem hafa sýnt Coripharma
mikinn áhuga, sem m.a. byggist á því
góða orðspori sem Ísland hefur sem
lyfjaframleiðandi í gegnum farsæla
sögu Actavis og Medis.“
Mikil tækifæri á markaðnum
Torfi segir mikil tækifæri á verk-
tökumarkaðnum sem Coripharma
byrji á en hann velti 5 milljörðum
bandaríkjadala og sé spáð vexti upp í
7,5 milljarða árið 2021. Þegar við svo
fullnýtum aðstöðuna og förum í eigin
þróun verðum við með framleiðslu-
getu fyrir markað sem er enn um-
fangsmeiri, eða um 50 sinnum stærri
en verktökuframleiðslan.
Hann segir að Teva muni áfram
reka umfangsmikla starfsemi í
Hafnarfirðinum þar sem um 280
manns starfi, m.a. á sölu- og mark-
aðssviði Actavis á Íslandi, í lyfjaþró-
un og hjá Medis, sem selji lyf og
lyfjahugvit félagsins til annarra
lyfjafyrirtækja.
Coripharma ehf. kaupir Actavis
Ætla að vera komnir með 300 starfsmenn innan tveggja ára Framtakssjóður í stýringu Íslenskra
verðbréfa Bjarni K. Þorvarðarson forstjóri Coripharma, VÍS og Hof í hópi stærstu fjárfestanna
Morgunblaðið/Hari
Glaðir í bragði Þeir Bjarni K. Þorvarðarson forstjóri og Torfi Rafn Halldórsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþró-
unar, voru að vonum ánægðir þegar samningur um kaup Coripharma á Actavis hafði verið undirritaður í gær.
Morgunblaðið/Hari
Nýtt nafn Sjálfsagt líður ekki á löngu þar til nýtt nafn er komið á lyfjaverk-
smiðjuna við Reykjavíkurveg 76, Coripharma í stað nafnsins Actavis.
Bjarni K. Þorvarðarson er verk-
fræðingur að mennt, með fram-
haldsmenntun í rafmagnsverk-
fræði frá Háskólanum í
Wisconsin í Bandaríkjunum,
með MBA-gráðu frá París og
meistaragráðu í fjármálum frá
London Business School.
Bjarni á fjölbreyttan íslensk-
an og alþjóðlegan starfsferil að
baki. Hann starfaði í byrjun tí-
unda áratugar síðustu aldar hjá
IBM og síðar hjá Tölvusam-
skiptum og Tæknivali. Síðan hjá
FBA og Íslandsbanka, m.a. í
útibúi bankans í London. Árið
2002 réðst Bjarni til starfa hjá
fjárfestingafyrirtækinu CVC í
Bandaríkjunum og var forstjóri
dótturfyrirtækis þess, Hiberna
Networks, þangað til það var
selt fyrir rúma 60 milljarða
króna í byrjun árs 2017. Bjarni
hefur nú tekið til starfa sem
forstjóri Coripharma.
Fjölbreyttur
ferill Bjarna
BAKGRUNNUR FORSTJÓRA
Torfi Rafn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
Coripharma, útskrifaðist með
meistaragráðu í lyfjafræði frá
Háskóla Íslands 1995.
Hann hefur meira og minna
unnið við lyfjaiðnaðinn frá út-
skrift. Hann hóf störf hjá Lyfja-
verslun Íslands eftir útskrift og
var síðan einn stjórnenda NM
Pharma, dótturfyrirtækis Myl-
ans á Íslandi, til 1999. Hann
stofnaði lyfjahugbúnaðar-
félagið DOC.is og síðan Pharm-
arctica 2002. Torfi starfaði sem
viðskiptaþróunarstjóri hjá Med-
is, dótturfélagi Actavis, árin
2004-2009. Hann stofnaði
lyfjafyrirtækið Williams & Halls
ehf. sem hann hefur stjórnað
frá 2009 og er eigandi þess.
Með mjög
mikla reynslu
FRAMKVÆMDASTJÓRI