Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Draghálsi 18-26, 110 Reykjavík | Sími 588 1000 | netsofnun.is
Við bjóðum upp á hentugar og
infaldar fjáröflunarleiðir fyrir
élagasamtök og einstaklinga.
þróttafélög • starfsmannafélög •
emendafélög • saumaklúbbar • o.
Kíktu á www.netsöfnun.is
og kynntu þér möguleikana.
e
f
í
n
kóra
fl
r
.
Fjáröflun
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ríkisskattstjóri hefur lokið álagn-
ingu opinberra gjalda vegna tekna
ársins í fyrra og birti í gær lista yfir
40 hæstu skattgreiðendur landsins.
Efst á listanum er Sigríður Vil-
hjálmsdóttir sem greiðir tæpar 426
milljónir króna í skatta í ár. Sigríður
er stór hluthafi í Fiskveiðihluta-
félaginu Venus hf. sem er stærsti
hluthafi Hvals hf. Á listanum eru
einnig aðrir stórir hluthafar í því fé-
lagi, systkinin Kristján og Birna
Loftsbörn. Þau skipa 6. og 7. sæti
listans.
Fleiri úr sjávarútvegi er að finna á
listanum. Í 2.-4. sæti eru menn sem
tengjast útgerðinni Soffaníasi Ce-
cilssyni í Grundarfirði, sem var ný-
verið seld. Útgerðarmennirnir Jens
Valgeir Óskarsson í Grindavík og
Friðþór Harðarson á Hornafirði eru
í 14. og 15. sæti. Þá eru Sam-
herjafrændur, Kristján Vilhelmsson
og Þorsteinn Már Baldvinsson, í
sætum 19 og 25. Eins er á listanum
Bergvin Oddsson ásamt börnum
hans, Magneu, Haraldi og Lúðvík,
fyrrverandi alþingismanni. Þau
seldu útgerðarfyrirtækið Glófaxa til
Vinnslustöðvarinnar á síðasta ári.
Forstjórarnir Róbert Wessman
hjá Alvogen, Liv Bergþórsdóttir hjá
Nova og Grímur Sæmundsen hjá
Bláa lóninu eiga sinn sess á listanum
ásamt Tómasi Má Sigurðssyni, for-
stjóra framleiðslu Alcoa á heimsvísu.
Úr fjármálageiranum er meðal ann-
ars að finna þrjá stjórnarmenn
Glitnis HoldCo, þá Michael Wheeler,
Tom Grøndahl og Steen Parsholt.
Metfjöldi framteljenda
Aldrei hafa fleiri talið fram á Ís-
landi. Á skattskrá nú voru 297.674
framteljendur og fjölgaði þeim um
10.946 frá fyrra ári, eða um 3,8%.
Framteljendum hefur ekki fjölgað
jafnmikið síðan árið 2007. Að þessu
sinni voru skattar 17.973 einstak-
linga áætlaðir, en það eru ríflega sex
prósent af heildarfjölda. Í dag verða
inneignir lagðar inn á bankareikn-
inga þeirra sem eiga inni hjá ríkis-
sjóði eftir álagningu.
Sigríður greiddi 426
milljónir króna í skatt
Listi birtur yfir
40 hæstu skatt-
greiðendurna
Álagning einstaklinga 2018, hæstu gjaldendur
Heimild: Ríkisskattstjóri
Nafn Sveitarfélag Gjöld alls
Sigríður Vilhjálmsdóttir Reykjavík 425.502.876
Sigurður Sigurbergsson Grundarfjarðarbær 388.245.493
Magnús Soffaníasson Grundarfjarðarbær 387.180.911
Rúnar Sigtryggur Magnússon Grundarfjarðarbær 382.526.842
Hulda Guðborg Þórisdóttir Garðabær 328.980.716
Kristján Loftsson Reykjavík 295.664.911
Birna Loftsdóttir Hafnarfjörður 284.546.209
Michael Wheeler Reykjavík 259.133.879
Benoný Ólafsson Reykjavík 253.659.186
Tom Gröndahl Reykjavík 231.883.635
Steen Parsholt Reykjavík 231.883.635
Benedikt Rúnar Steingrímsson Dalabyggð 231.816.547
Magnús Jóhannsson Hafnarfjörður 228.677.671
Jens Valgeir Óskarsson Grindarvíkurbær 194.971.414
Friðþór Harðarson Hornafjörður 162.970.623
Rögnvaldur Guðmundsson Garðabær 161.817.074
Einar Benediktsson Seltjarnarnes 151.094.812
Vilhelm Róbert Wessman Reykjavík 142.455.851
Kristján V Vilhelmsson Akureyri 140.664.593
Sólveig Guðrún Pétursdóttir Reykjavík 137.225.344
Richard Katz Reykjavík 135.582.626
Kristján Már Gunnarsson Kópavogur 121.198.738
Ingólfur Hauksson Reykjavík 105.228.949
Grímur Karl Sæmundsen Reykjavík 104.972.342
Þorsteinn Már Baldvinsson Akureyri 104.808.583
Birgir Örn Guðmundsson Mosfellsbær 103.910.717
Guðmundur Gylfi Guðmundsson Mosfellsbær 103.655.375
Liv Bergþórsdóttir Garðabær 100.412.969
Ársæll Hafsteinsson Flóahreppur 97.964.051
Snorri Arnar Viðarsson Kópavogur 91.550.136
Magnea Bergvinsdóttir Vestmannaeyjar 90.865.588
Haraldur Bergvinsson Vestmannaeyjar 90.394.191
Lúðvík Bergvinsson Reykjavík 90.329.578
Lárus Kristinn Jónsson Reykjavík 89.808.909
Bergvin Oddsson Vestmannaeyjar 89.592.489
Ragnar Björgvinsson Reykjavík 87.687.820
Örn Gunnlaugsson Kópavogur 85.214.906
Hulda Vilmundardóttir Grundarfjarðarbær 84.767.981
Tómas Már Sigurðsson Reykjavík 82.325.537
Valur Ragnarsson Reykjavík 81.305.689
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rjúpum hefur fjölgað mikið um allt
land, nema á Suðurlandi, Suðaustur-
landi og Austurlandi, samkvæmt
rjúpnatalningum á vegum Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. Miðað við
ástand rjúpnastofnsins frá síðustu
aldamótum er fjöldi rjúpna nú í með-
allagi eða yfir meðallagi í öllum
landshlutum, samkvæmt tilkynn-
ingu frá Náttúrufræðistofnun.
Rjúpu fjölgaði víðast hvar 2017 til
2018 og var aukningin mjög áber-
andi á Vestfjörðum og Norðvestur-
landi. Í Þingeyjarsýslum var þétt-
leiki karra í vor sá þriðji mesti frá
því að talningar byrjuðu árið 1981.
Hins vegar var kyrrstaða eða fækk-
un á Suðurlandi, Suðausturlandi og
Austurlandi.
Stofnstærðarsveiflan breytt
Rjúpur voru taldar á 33 svæðum í
öllum landshlutum. Tíðarfar var
mjög óhagstætt og tafði talningar.
Alls sáust 1.822 karrar, sem er 1-2%
af áætluðum heildarfjölda karra í
landinu, samkvæmt stofnstærðar-
mati. Talningarnar voru gerðar í
samvinnu við náttúrustofur, Vatna-
jökulsþjóðgarð, Skotvís, Fuglarann-
sóknastöð Suðausturlands og aðra
áhugamenn. Um þrjátíu manns tóku
þátt í talningunum.
Sveiflur í stærð íslenska rjúpna-
stofnsins hafa breyst síðan rjúpan
var friðuð 2003 og 2004 og veiðin
dróst saman frá 2005. Mun styttra
er á milli toppa í sveiflunni en áður
var. Reglubundnar sveiflur í stofn-
stærð sem taka 10-12 ár einkenndu
íslenska rjúpnastofninn á árum áð-
ur. Frá 1998 hafa komið þrír greini-
legir toppar í fjölda rjúpna, það er
2005, 2010 og 2015, og voru liðlega
fimm ár á milli þeirra. Nú virðist
stefna í fjórða toppinn á tiltölulega
stuttum tíma. „Ljóst er að róttækar
breytingar hafa orðið á stofnvist-
fræði rjúpunnar eftir 2003 og stofn-
sveiflan líkt og við þekktum hana er
ekki lengur til staðar hvað sem síðar
verður,“ segir í tilkynningunni.
Mat á veiðiþoli í ágúst
Veiðiþol rjúpnastofnsins verður
metið í kjölfar mælinga á varp-
árangri rjúpna í sumar. Matið á að
liggja fyrir í ágúst. Þá eiga einnig að
liggja fyrir útreikningar á afföllum
rjúpna 2017-2018 og mat á veiði
haustið 2017.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rjúpa Stofnsveifla íslenska rjúpnastofnsins hefur breyst og nú er styttra á
milli toppanna í sveiflunni en áður. Nú líða um fimm ár á milli þeirra.
Rjúpnastofninn
er víða í uppsveiflu
Flugsýningin í Reykjavík verður
haldin á Reykjavíkurflugvelli á
morgun, laugardag, og hefst kl. 12.
Sýningarsvæðið er bak við Hótel
Natura, áður Loftleiðir. Að sögn
Matthíasar Sveinbjörnssonar, for-
seta Flugmálafélagsins, er öllu því
besta úr íslenska flugsamfélaginu
til tjaldað á sýningunni í ár.
„Sýningin verður með glæsileg-
asta móti. Tugir flugvéla af öllum
stærðum og gerðum taka þátt í lofti
og fjöldi véla verður á jörðu niðri
sem gestir geta skoðað hátt og lágt.
Þotur verða í loftinu, þyrlur, list-
flugvélar, fisflugvélar, svifflugur,
einkavélar, fallhlífarstökkvarar,
drónar og svo mætti lengi telja.
Þetta verður flugveisla,“ segir
Matthías á vef félagsins en meðal
gripa á sýningunni verða tvær her-
flugvélar. Eru gestir hvattir til þess
að mæta tímanlega en bílastæði eru
við HR og í nágrenni hótelsins.
Morgunblaðið/Ernir
Flug Sýningarnar á Reykjavíkurflugvelli
hafa jafnan verið fjölsóttar.
Flugsýningin í
Reykjavík á morgun
Snorrastofa
heldur á morgun,
laugardag, minn-
ingarhátíð í
Reykholti um
Eggert Ólafsson,
skáld og náttúru-
fræðing. Þess
verður minnst að
250 ár eru liðin
frá drukknun
Eggerts og
fylgdarliðs hans á Breiðafirði 30.
maí 1768.
Afhjúpað verður skilti á Eggerts-
flöt þar sem brullaupsmenn Egg-
erts tjölduðu við brúðkaup hans og
Ingibjargar Guðmundsdóttur árið
1767. Afhjúpað verður skógræktar-
skilti við Reykholtsskóga og síðan
verður dagskrá í tali og tónum í
Reykholtskirkju.
Snorrastofa minnist
Eggerts Ólafssonar
Reykholt Minning-
arskildir afhjúpaðir.
Jónas er Jónasson
LEIÐRÉTT
Í umfjöllun í
Morgunblaðinu í
gær um eldisfyr-
irtækið StofnFisk
var farið rangt
með föðurnafn
forstjórans, dr.
Jónasar Jónas-
sonar. Beðist er
velvirðingar á
mistökunum. Jónas Jónasson
STUTT