Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Bandaríkin ættu að draga lærdóm af
Írak og láta Sýrland eiga sig. Þetta
segir Bashar al-Assad Sýrlands-
forseti, en ummælin lét hann falla í
viðtali við rússneska ríkisfjölmiðilinn
RT. Var Assad með þessu að svara
starfsbróður sínum vestanhafs,
Donald Trump, sem kallaði forseta
Sýrlands „skepnu“ í sjónvarpsávarpi
frá Hvíta húsinu þegar Bandaríkin,
Bretland og Frakkland hófu sam-
eiginlegar hernaðaraðgerðir gegn
stjórnarher Sýrlands í apríl síðast-
liðnum. Spurður út í álit sitt á orða-
vali Trumps forseta svaraði Assad:
„Þú ert það sem þú segir.“
Assad Sýrlandsforseti hefur feng-
ið mikla hernaðaraðstoð frá Rúss-
landi frá því í september 2015 auk
þess sem hundruð íranskra her-
manna berjast með stjórnarhernum.
Saman hefur þeim tekist að endur-
heimta stór landsvæði úr klóm upp-
reisnarsveita og vígamanna Ríkis
íslams. Enn eru þó svæði við landa-
mærin að Írak, Jórdaníu og Tyrk-
landi sem ekki lúta stjórn Assads.
Hið sama á við um stór svæði í
norður- og austurhluta landsins þar
sem bandarískir sérsveitarmenn
hafa skipst á skotum við vígamenn.
Í viðtalinu kom Assad forseti inn á
hugsanleg átök sveita hans við her-
sveitir Bandaríkjanna, yfirgefi þeir
ekki Sýrland. Heitir forsetinn því að
endurheimta þau svæði sem Banda-
ríkjamenn hafa haft aðsetur á, ann-
aðhvort með samningaviðræðum við
Washington eða með hervaldi.
Sætta sig ekki við erlend öfl
Að sögn Assads hefur ríkisstjórn
hans nú „opnað dyr fyrir viðræður“
við bandalag kúrdískra og arabískra
hreyfinga, sem nefnast Sýrlensku
lýðræðisöflin (SDF). „Þetta er fyrsti
kostur. Ef ekki, þá neyðumst við til
þess að frelsa þessi svæði með valdi.
Það er ekki um neitt annað að ræða,
með eða án Bandaríkjamanna,“
sagði Assad og hélt áfram: „Banda-
ríkjamenn ættu að fara, einhvern
veginn munu þeir fara.“
Þá sagði Sýrlandsforseti Banda-
ríkin hafa á sínum tíma ráðist inn í
Írak með ólögmætum hætti. „Þá
skorti alla lagastoð þegar þeir fóru
inn í Írak og sjáðu bara hvað kom
fyrir þá. Þeir verða að draga lærdóm
af. Írak er engin undantekning og
það er Sýrland ekki heldur. Almenn-
ingur sættir sig ekki lengur við er-
lend öfl í þessum heimshluta.“
Trump Bandaríkjaforseti sagðist í
apríl sl. vilja kalla herlið sitt sem
fyrst heim frá Sýrlandi en hann hét
því einnig að skilja eftir sig „sterk og
varanleg fótspor“ í landinu.
Bandaríkin dragi sig út
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti segir Bandaríkin eiga að draga lærdóm af
reynslu sinni í Írak Mun ráðast gegn bandarískum hersveitum ef þörf þykir
AFP
Damaskus Sýrlandsforseti (t.v.) settist niður með fréttamanni RT og fóru
þeir yfir stöðuna í átökunum og m.a. veru Bandaríkjahers þar í landi.
Flókin stríðsátök
» Átökin í Sýrlandi hófust árið
2011 með mótmælum gegn
einræðisstjórn landsins.
» Mestur hluti Sýrlands lýtur
yfirráðum stjórnarhersins en á
öðrum svæðum eru hersveitir
Kúrda, uppreisnarlið sem styð-
ur Tyrki, aðrir uppreisnarmenn
og íslamskar hreyfingar, m.a.
Ríki íslams, samtök íslamista.
» Tölur yfir mannfall eru
nokkuð á reiki og erfitt að fá
þær staðfestar, en talið er að á
milli 350.000 og 500.000
manns hafi fallið frá upphafi
átaka.
Danska þingið hefur samþykkt ný
lög sem banna fólki að nota andlits-
blæjur á almannafæri. Fara þeir
þannig að fordæmi Frakka og ann-
arra Evrópuríkja sem ekki vilja að
konur klæðist búrkum sem hylja
um leið andlit viðkomandi.
Søren Pape Poulsen, dóms-
málaráðherra Danmerkur, segir
lögreglu ekki munu skipa konum
að taka niður andlitsblæju sína fari
þær þannig klæddar út úr húsi.
Þess í stað verða þær sektaðar og
sagt að halda heim á leið. Sektin
fyrir að klæðast búrku sem hylur
andlit að hluta eða öllu leyti verður
á bilinu 1.000 danskar krónur, um
16 þúsund íslenskar krónur, fyrir
fyrsta brot en 10.000 danskar krón-
ur, um 160.000 íslenskar krónur,
fyrir fjögur brot eða fleiri.
Lögin, sem samþykkt voru á
þinginu með 75 atkvæðum gegn 30,
taka gildi 1. ágúst nk.
DANMÖRK
Andlitsblæjur bann-
aðar í almenningi
AFP
Ólöglegt Konum verður ekki leyft að
hylja andlit sitt á götu úti í Danmörku.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Kínverskur herskipafloti undir for-
ystu flugmóðurskipsins Liaoning er
nú sagður hafa náð „frumstigi“ þess
að vera klár undir stríðsátök. Þetta
segir varnarmálaráðuneyti Kína en
lítið er í raun vitað um þróun og próf-
anir á flugmóðurskipum landsins.
Xi Jinping, forseti Kína, hefur lagt
mikla áherslu á endurnýjun og efl-
ingu hersins. Hafa Kínverjar meðal
annars þróað nýjar tegundir torséðra
flugvéla sem ekki eiga að sjást á rat-
sjám óvinarins, flugskeyti sem grand-
að geta gervihnöttum og flugmóður-
skip, þ.e. Liaoning og annað skip sem
smíðað er frá grunni í Kína.
Liaoning var smíðað í Úkraínu fyr-
ir sjóher Sovétríkjanna. Smíð skips-
ins, sem upphaflega bar heitið Va-
ryag, lauk hins vegar aldrei og keyptu
Kínverjar skipsskrokkinn vélarvana
árið 1998. Var það svo formlega tekið í
notkun 2012 eftir miklar breytingar
og endurhönnun.
Hafa Kínverjar nú nýtt skipið til að
sýna mátt sinn á Austur-Kínahafi og
meðal annars siglt því við strendur
Taívans. „Æfingar herskipaflotans
eru meiri nú en áður og hernaðarleg-
ar,“ hefur Reuters eftir varnarmála-
ráðuneyti Kína.
Sérfræðingar sem fréttastofa
CNN ræddi við segja Liaoning hins
vegar „úrelt“ og ekki standast neinn
samanburð við þau skip sem sjóher
Bandaríkjanna hefur í sinni þjónustu,
svokallaða Nimitz-gerð.
Fer í notkun árið 2020
Hitt flugmóðurskip Kína, sem enn
er í smíðum og hefur ekki fengið nafn,
er nú í sjóprófunum. Stendur til að
taka það í notkun árið 2020. Bæði
flugmóðurskipin eru byggð á svo-
nefndri Kuznetsov-gerð flugmóður-
skipa Sovétríkjanna. Flugbrautin vís-
ar upp á við í stefninu og virkar
þannig sem eins konar stökkpallur
fyrir herþotur í flugtaki. Kínverjar
áætla að þörf sé fyrir minnst sex flug-
móðurskip á næstu áratugum.
AFP
Flotadeild Kínverskur herskipafloti, undir forystu Liaoning, við heræfingar á Austur-Kínahafi í apríl síðastliðnum.
Skrefinu nær að vera
klár undir stríðsátök
Sérfræðingar segja Liaoning hins vegar úrelta hönnun
Liaoning
» Flugmóðurskipið er 304
metrar á lengd og vegur um
66.000 tonn.
» Í áhöfn eru 1.900 manns auk
um 600 manna flugáhafnar.
» Pláss er fyrir um 40 mis-
munandi orrustuþotur og þyrl-
ur auk dróna ýmiss konar.