Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Fátt kom áóvart í um-ræðum á
Alþingi í gær um
veiðigjöld. Því mið-
ur kom ekki einu
sinni á óvart að
stjórnarandstaðan skyldi grípa
til málþófs og ræða klukku-
stundum saman um fundar-
stjórn og lengd þingfundar í
tengslum við þetta mál. Jafnvel
það að þingmaður Pírata kvart-
aði undan því að meirihluti
þingsins vildi fá að ráða því
hvað væri rætt og afgreitt kom
ekki á óvart. Þingmenn Pírata
og álíka þingmenn telja yfir-
leitt að besta leiðin til að efla
Alþingi og auka lýðræði sé að
þeir sjálfir geti með upphlaup-
um og málþófi hindrað meiri-
hlutann í að koma málum sín-
um fram.
Tækist stjórnarandstöðunni
á þingi að hindra afgreiðslu
frumvarps meirihluta atvinnu-
veganefndar um veiðigjöld yrði
það til þess að veiðigjöld féllu
niður í haust því að lagaheimild
skortir fyrir álagningu veiði-
gjalda eftir yfirstandandi fisk-
veiði. Það er væntanlega ekki
niðurstaðan sem minnihlutinn
á Alþingi er að sækjast eftir.
Margir í þeim röðum vilja
hærra veiðigjald ef marka má
opinberar umræður um þessi
mál. Sá hópur þingmanna læt-
ur sig engu varða hvernig
gengur í sjávarútveginum
hverju sinni, heldur vill hann
hækka álögurnar hvernig sem
horfir í greininni.
Frá því að núgildandi lög um
veiðigjöld voru lögð á hefur
verið bent á að þau eru sligandi
há og geta hrakið fyrirtæki út
úr greininni, einkum minni
fyrirtæki. Og staðreyndin er sú
að þetta hefur því miður ræst,
um það eru mörg dæmi. Það
hefur einnig verið bent á að út-
reikningar veiði-
gjaldanna eru afar
óheppilegir og hafa
í för með sér að
greidd eru veiði-
gjöld miðað við af-
komu greinarinnar
nokkrum árum fyrr. Engri at-
vinnugrein er bjóðandi upp á
slíka skattheimtu.
Afleiðingin af þessu er orðin
sú að veiðigjöldin eru orðin
verulegt vandamál fyrir rekst-
ur sjávarútvegsfyrirtækja og
þar með ógna þau einnig
byggðunum hringinn um landið
og þeim fyrirtækjum sem
treysta á að veita sjávarútveg-
inum þjónustu. Þau eru fjöl-
mörg.
Á þessu er því miður lítill
skilningur meðal margra
þeirra sem hæst láta um
sjávarútvegsmál og tala nú
sumir þindarlaust á þingi. En
það er lítið gagnrýnt í frum-
varpi atvinnuveganefndar sem
þó mætti helst sæta gagnrýni,
en það er að í frumvarpinu er,
þrátt fyrir að reynt sé að mæta
erfiðum aðstæðum í sjávar-
útvegi, gert ráð fyrir of háum
veiðigjöldum. Þegar metin er
versnandi afkoma í greininni
ættu veiðigjöldin að vera ríf-
lega milljarði króna lægri en
frumvarpið gerir ráð fyrir. Út-
reikningar sýna að miðað við
fyrri forsendur og útreikninga
miðað við nýjustu upplýsingar
um afkomu, ættu veiðigjöld að
vera 7,2 milljarðar króna í ár.
Þetta er um það bil sú fjárhæð
sem gert var ráð fyrir í fjár-
málaáætlun, 7 milljarðar
króna, en frumvarp atvinnu-
veganefndar gerir ráð fyrir 8,3
milljörðum króna.
Það er því fjarstæðukennt
þegar frumvarpið er gagnrýnt
á þeirri forsendu að með því
verði lagðir of lágir skattar á
sjávarútveginn.
Gagnrýni á frumvarp
atvinnuveganefndar
byggist á röngum
forsendum}
Veiðigjöld enn of há
Þriðja stærstahagkerfi evru-
svæðisins gæti
þrátt fyrir allt
fengið að mynda
ríkisstjórn sem
hefur efasemdir
um evruna. Forseti Ítalíu hafði,
eftir mikla andstöðu í Brussel
og Berlín, hafnað fjármálaráð-
herraefni flokkanna sem sigr-
uðu í ítölsku þingkosningunum
og mynda meirihluta á þingi.
Fjármálaráðherraefnið þótti of
gagnrýnið á evruna til að hægt
væri að leyfa lýðræðinu að hafa
sinn gang.
Í gærkvöld var greint frá því
að meirihlutaflokkarnir hefðu
ákveðið að gefa eftir og velja
nýtt fjármálaráðherraefni.
Þetta var gert undir hótunum
um utanþings-
stjórn þóknanlega
ESB og nýjar kosn-
ingar til að lagfæra
þær sem elítan í
ESB taldi hafa gef-
ið ranga niður-
stöðu.
Þegar þetta er skrifað er bú-
ist við að ný stjórn á Ítalíu taki
við í dag, föstudag. Sú stjórn
verður ekki eins og meirihlut-
inn á ítalska þinginu vildi helst
hafa hana, en hún gæti engu að
síður ruggað báti Evrópusam-
bandsins og evrunnar verulega.
Fróðlegt verður að sjá hver
næstu viðbrögð elítunnar í
Brussel og áhangenda hennar
verða ef ríkisstjórnin fylgir
þeim málum eftir sem ítalskir
kjósendur ætlast til.
Ítölsku ríkisstjórn-
inni var breytt eftir
mótmæli valdaelít-
unnar í ESB}
Breytt í þágu Brussel S
kynsemistefnan hlaut afgerandi
hljómgrunn í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum. Um land
allt náðu framboð Miðflokksins
skínandi árangri, og jafnvel þar sem
ekki náðust kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnir
hefur byggst upp sterkt samstarf framfara-
sinna.
Eins og skýrt hefur komið fram í fréttum og
umræðuþáttum síðustu daga eru stjórnmála-
skýrendur almennt sammála um að Mið-
flokkurinn hafi verið sigurvegari sveitar-
stjórnarkosninganna. Það er enda full ástæða
til, þar sem enginn nýstofnaður flokkur hefur
náð jafn góðum árangri á landsvísu í fyrstu
sveitarstjórnarkosningum sínum. Flokkurinn
hlaut níu sveitarstjórnarfulltrúa, t.d. umtals-
vert fleiri en flokkur leiðandi flokksins í ríkis-
stjórn. Á nokkrum stöðum hefðu örfá atkvæði í
viðbót skilað viðbótarfulltrúum. Og eru þá aðeins talin M-
lista framboðin tólf en auk þeirra átti Miðflokksfólk aðild
að nokkrum sameiginlegum framboðum sem einnig náðu
góðum árangri.
Það er mjög ánægjulegt að sjá að stuðningur við Mið-
flokkinn á landsvísu festir sig í sessi milli kosninga og
tryggir að flokkurinn á nú samtals 16 kjörna fulltrúa á Al-
þingi og í sveitarstjórnum. Þessum árangri náði harð-
duglegt Miðflokksfólk á aðeins 229 dögum frá stofnun
flokksins, sem er fordæmalaust á Íslandi.
Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar geta því að
sönnu kallast sigur skynsemisstefnunnar, stefnu sem er
byggð á að greina úrlausnarefni samfélagsins,
leita bestu og skynsamlegustu lausnanna með
því að hlusta á öll sjónarmið og vera opin fyrir
tillögum úr öllum áttum og taka ákvörðun
byggða á rökum. En að því búnu er mikilvægt
að standa svo við og berjast fyrir hinni réttu
stefnu. Það er því mikill styrkur fyrir viðkom-
andi sveitarfélög að fá fulltrúa Miðflokksins
inn í sveitarstjórnir, fólk sem mun gera sitt
besta næstu fjögur ár til að veita skynsam-
legum málum stuðning og framgang en ekki
síður veita aðhald þar sem þörf er á.
Það er sérstök ástæða til að þakka öllu því
geysiöfluga Miðflokksfólki um allt land sem
lagði mikið á sig til að þessi góði árangur yrði
að veruleika. Það er einstakt að vinna með svo
samhentum og jákvæðum hópi fólks. Hópi sem
lætur málefni samfélagsins sig miklu varða og
er tilbúið að leggja ómældan tíma og vinnu í að
bæta nærsamfélagið sitt á grundvelli sameiginlegrar hug-
sjónar. Í því birtust stjórnmálin eins og þau gerast best.
Með slíkan hóp fólks innanborðs eru Miðflokknum allir
vegir færir. Við lögðum af stað fyrir átta mánuðum með
þann einbeitta ásetning að stofna stjórnmálahreyfingu
sem léti að sér kveða, berðist fyrir skynsemishyggju og
rökhyggju í íslenskum stjórnmálum. Stjórnmálahreyfingu
sem teygði sig um Ísland allt og ekki yrði litið fram hjá.
Það markmið hefur þegar náðst. En við erum rétt að
byrja. Framundan eru nýir og spennandi tímar.
Sigmundur
Davíð
Gunnlaugsson
Pistill
Upphaf nýrra tíma
Höfundur er formaður Miðflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
V
erði frumvarp meirihluta
atvinnuveganefndar Al-
þingis að lögum er áætl-
að að veiðigjald fyrir
almanaksárið 2018 muni
skila ríkissjóði um 8,3 milljörðum
króna. Áður hafði verið áætlað að
veiðigjald þessa fiskveiðiárs myndi
nema um 10,8 milljörðum.
Þetta kemur fram í greinargerð
með frumvarpi meirihluta atvinnu-
veganefndar sem lagt hefur verið
fram á Alþingi. Þar segir að nauðsyn-
legt sé að endurákvarða álagningu
gjaldsins fyrir almanaksárið 2018 og
er m.a. vísað til „þeirra skaðlegu
áhrifa sem óbreytt veiðigjald getur
haft á íslenskan sjávarútveg og sam-
félög um allt land.“ Í samantekt í
greinargerðinni segir að engar vís-
bendingar séu um markverðar breyt-
ingar til batnaðar á rekstrarumhverfi
sjávarútvegsins á þessu ári.
Allt að fjórföld hækkun
Í greinargerðinni kemur fram að
álagt veiðigjald næstliðins fiskveiði-
árs, 2016/2017, hafi verið 4,5 millj-
arðar. Hækkunin hafi lagst misjafn-
lega þungt á sjávarútvegsfyrirtæki
en dæmi séu um að hækkun veiði-
gjalds milli fiskveiðiára hafi verið allt
að fjórföld.
Veiðigjald á einstakar tegundir
breytist með nýju lögunum og lækkar
gjald á bolfisk mun meira en á upp-
sjávartegundir, en breytingin er mis-
jöfn eftir tegundum. Sem dæmi má
nefna að veiðigjald á kíló af þorski
verður 16,45 krónur, en er núna 22.98
kr. og nemur lækkunin 28%. Á kíló af
makríl verður gjaldið þrjár krónur á
kíló, en var 3,27 kr. og nemur lækk-
unin 8,3%. Lagt er til að afsláttur
verði aukinn og komi það minni út-
gerðum einkum til góða.
Í greinargerðinni er rifjað upp
að í mars 2018 hafi endurskoðunar-
skrifstofan Deloitte gefið út skýrslu
um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja
samkvæmt sameiginlegri beiðni vorið
2017 frá þáverandi sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur og þáverandi for-
manni atvinnuveganefndar Páli
Magnússyni. Í skýrslunni komi fram
að tekjur í sjávarútvegi hafi dregist
saman um 25 milljarða árið 2016 eða
um 9%. Því tekjutapi hafi verið mætt
að hluta með lækkun kostnaðar,
einkum hjá stærri félögum, og hafi
EBITDA lækkað um 15 milljarða eða
22%. Vegna óhagstæðrar þróunar
ytri hagstærða geti EBITDA-afkoma
ársins 2017 síðan hafa lækkað um 20-
37% frá fyrra ári.
Mikil lækkun framlegðar
Sjávarútvegsráðuneytið fór þess
á leit við veiðigjaldanefnd 8. mars að
hún legði mat á upplýsingar um
breytingar í rekstrarafkomu sjávar-
útvegs í ljósi veiðigjalds yfirstand-
andi fiskveiðiárs. Í svarbréfi nefndar-
innar segir að sé gert ráð fyrir að
samdráttur í framlegð veiða sam-
kvæmt spálíkani veiðigjaldsnefndar
milli 2016 og 2017 skili sér að fullu
sem lækkun á gjaldstofni veiðigjalds
megi ætla að hann hafi lækkað um
35% í botnfiski og 15% í uppsjávar-
fiski. Ætla megi að framlegð 2017 í
botnfiski hafi lækkað um 31% og
framlegð í uppsjávarfiski um 15% frá
árinu 2015.
„Ef veiðigjald almanaksársins
2018 yrði endurreiknað á grundvelli
niðurstöðu spálíkans veiðigjalds-
nefndar um 35% lækkun á reikni-
stofni í botnfiski og 15% í upp-
sjávarfiski mundi gjaldið nema um
7,2 milljörðum kr. að teknu tilliti til
áhrifa svonefnds persónuafsláttar.
Ekki eru hins vegar forsendur til að
láta fyrrgreinda þróun leiða til þess
að gjaldið verði að öllu leyti endur-
ákvarðað til samræmis við þann út-
reikning enda hækkun gjaldsins að
nokkru leyti fyrirséð. Því er eðlilegt
að greiðendur veiðigjalds taki á sig
nokkurn hluta áhrifa þessara breyt-
inga ásamt ríkissjóði,“ segir í greinar-
gerð meirihlutans.
Óbreytt veiðigjald get-
ur haft skaðleg áhrif
Milljarðar króna á verðlagi hvers árs
Veiðigjald (án lækkunar vegna kvótakaupa) Veiðigjald álagt Heimild: Hagstofan
15
10
5
0
Veiðigjöld Gengisvísitala
235
190
145
100
2012/13 2013/14 2014/15 2015/16 2016/17 2017/18
Vísitala meðalgengis
fyrra árið
Álögð veiðigjöld og vísitala meðalgengis
Stefnt er að því að leggja fram
frumvarp að nýjum lögum um
veiðigjöld við upphaf þings í
haust, en frumvarpi því sem
lagt var fram á þingi í vikunni
er ætlað að brúa bilið til ára-
móta. Að óbreyttu er ekki
heimild í gildandi lögum um
veiðigjald til álagningar veiði-
gjalds á landaðan afla í botn-
fiskstofnum eftir upphaf næsta
fiskveiðiárs, 1. september, en
lögin falla úr gildi um næstu
áramót.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er reiknað með ýmsum
endurbótum í nýju frumvarpi
og verður m.a. reynt að komast
eins nálægt í tíma raunveru-
legri afkomu útgerðarfyrirtækja
og kostur er. Gögn sem lögð
hafa verið til grundvallar við
ákvörðun veiðigjalds hafa verið
2-3 ára gömul og kerfið of seint
að mæla sveiflur eins og nú
hefur berlega komið í ljós.
Reynt verður að stytta þennan
tíma um allt að einu ári.
Framvegis verða veiðigjöld
miðuð við almanaksárið en ekki
fiskveiðiár frá 1. september til
31. ágúst. Fyrsta skrefið í þeirri
breytingu er stigið með frum-
varpinu í vikunni.
Gögn mæli
sveiflur betur
ÁRAMÓTUNUM BREYTT