Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
✝ SveinbjörnDagfinnsson
fæddist í Reykjavík
16. júlí 1927. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni
16. maí 2018.
Foreldrar Svein-
björns voru Magn-
ea Ósk Halldórs-
dóttir, f. 11. maí
1897, d. 16. október
1982, og Dagfinnur
Sveinbjörnsson, f. 26. júní 1897,
d. 14. janúar 1974. Systir Svein-
björns var Anna Þuríður, f.
1936, d. 1983.
Sveinbjörn kvæntist 16.12.
1950 Pálínu Hermannsdóttur, f.
12.9. 1929, d. 4.4. 2018. For-
eldrar hennar voru Hermann
Jónasson forsætisráðherra, f.
25.12. 1896, d. 22.1. 1976, og
Vigdís Oddný Steingrímsdóttir,
f. 4.10. 1896, d. 2.11. 1976.
Sveinbjörn og Pálína eign-
uðust fimm börn: 1) Hermann, f.
1951, umhverfis- og auðlinda-
hagfræðingur. Maki hans var
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Börn þeirra: a) Benedikt Her-
mann, f. 1980. Maki: Auður Jör-
undsdóttir. Börn þeirra: Guð-
mundur Ari, f. 2007, Þorlákur, f.
2011, b) Kristín Anna, f. 1988.
Sonur hennar: Huldar, f. 2014,
c) Vigdís María, f. 1990. 2) Vig-
dís Magnea, f. 1955, kennari og
bóndi. Maki: Gunnar Jónsson
bóndi. Börn þeirra: a) Kári
Sveinbjörn, f. 1978. Maki: Fríða
og Hæstarétti 1961 og var þá
yngstur hæstaréttarlögmanna.
Sveinbjörn var fulltrúi í
dóms- og kirkjumálaráðuneyti
1954-58, deildarstjóri og síðar
skrifstofustjóri í landbún-
aðarráðuneyti 1958-73 og síðan
ráðuneytisstjóri 1973-95.
Framan af starfsferli sinnti
Sveinbjörn margvíslegum lög-
mannsstörfum og var m.a. um
árabil lögfræðingur Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna
(FÍA).
Sveinbjörn sat í stúdentaráði
Háskóla Íslands 1948-49, var
formaður Félags frjálslyndra
stúdenta 1949-50, sat í stjórn
Orators 1950-51, í stjórn Stúd-
entafélags Reykjavíkur 1956-57,
var formaður Byggingarsam-
vinnufélags starfsmanna
Stjórnarráðsins 1958-61, sat í
yfirkjörstjórn Reykjavíkur
1959-68, í stjórn hestamanna-
félagsins Fáks 1962-73 og var
formaður 1967-73, sat í stjórn
Skógræktarfélags Íslands og
Landgræðslusjóðs 1987-96, var
varaformaður Skógræktar-
félagsins 1990-96 og formaður
stjórnar Rannsóknarstöðvar
Skógræktar ríkisins á Mógilsá
1990-99, formaður búfræðslu-
nefndar 1979-92, formaður
þriggja nefnda um gerð land-
græðsluáætlana 1976-91 og sat í
yfirmatsnefnd um lax- og sil-
ungsveiði 1982-2007.
Sveinbjörn var heiðursfélagi
Skógræktarfélags Íslands,
hestamannafélagsins Fáks og
Landssambands hestamanna-
félaga.
Sveinbjörn verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag, 1. júní 2018, klukkan
15.
Thoroddsen. Börn
þeirra: Sigríður
Magna, f. 2011,
Sveinbjörn Búi, f.
2014, Ásgeir
Skjöldur, f. 2017, b)
Baldur Gauti, f.
1983, Maki: Eyrún
Hrefna Helgadótt-
ir. Barn þeirra: Eg-
ill Ingi, f. 2016, c)
Herdís Magna, f.
1987. Maki: Sig-
björn Þór Birgisson. Barn
þeirra: Birnir Hrafn, f. 2015. 3)
Dagfinnur Örn, f. 1959, d. 1959.
4) Lóa Kristín, f. 1961, við-
skiptafræðingur. Maki: Karl
Andersen læknir. Börn þeirra:
a) Thelma Margrét, f. 1985.
Maki: Arnór Jónsson. Börn
þeirra: Andri Ísar, f. 2012, Ósk-
ar Logi, f. 2016, b) Daði Örn, f.
1987. Maki: Hanna Soffía Berg-
mann Sverrisdóttir, c) Viktor
Orri, f. 1992, Maki: Eva Rut
Hjaltadóttir, d) Kristófer Atli, f.
1994. 5) Dagfinnur, f. 1973,
heimspekingur og stjórnmála-
hagfræðingur.
Sveinbjörn lauk barnaskóla-
göngu í Austurbæjarskóla.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1947, embættisprófi á fjór-
um árum frá lagadeild Háskóla
Íslands árið 1952 og las félaga-
rétt við Ludwig-Maximilians-
Universität München 1953-54.
Hann lauk prófmálum til að
flytja mál fyrir héraðsdómi 1955
Saga föður okkar er saga af
dyggð. Um ástæður gjörða vísaði
hann ekki í kenningar um sið-
ferði, hvort sem var um skyldu,
lögmál eða afleiðingar. Hann
helgaði sig því sem honum þótti
hafa gildi í sjálfu sér. Svörin voru
með honum í manngerðinni
sjálfri. Að græða og rækta landið
var ástríða og fræðsla og menntir
voru hjartans mál. Hann var
ræktarsamur vinur og hlýr faðir
sem vakti árvökull yfir velferð af-
komenda sinna alla tíð. Hann
var, svo sem Einar Benediktsson
orti um forföður hans, Sigurð
Magnússon á Skúmsstöðum í
Landeyjum, „Sú eik er lengst og
styrkust stóð.“
Þegar ófriðarský lögðust yfir
Evrópu og faðir okkar var um 13
ára var hann sendur í vinnu-
mennsku í Landeyjar að Hábæ í
Þykkvabæ. Hann sótti hesta-
hjörð í haga löngu áður en heim-
ilismenn risu úr rekkju og var
kominn með hana í hlaðvarpann
fyrir átta. Pabbi gleypti í sig, reið
af stað með engjafólkinu, og vann
á engjum fram undir níu að
kvöldi. Við heyhirðingu reið hann
fyrir sex heygrinda lest og var
lengsta ferð af engjum með
vagnalestina milli 5 og 6 klukku-
stundir fram og til baka. Þá sagð-
ist hann stundum hafa freistast
til að koma taumunum fyrir og
kasta sér í eina heygrindina til
þess aðeins að slaka á og horfa til
himins. Þegar aðrir hvíldust kom
hann hrossunum í haga og fékk
síðan af því sem enn var á borð-
um eftir kvöldverð fólksins.
Vinnuharkan var honum í blóð
borin. Hann var hamhleypa þeg-
ar svo bar undir. Embættisprófi í
lögfræði lauk hann með hárri
einkunn á fjórum árum í stað sex
sem algengt var í þá tíð og þegar
hann lauk prófmáli fyrir Hæsta-
rétti varð hann yngstur hæsta-
réttarlögmanna. Að loknum
vinnudegi í Stjórnarráðinu vann
hann að lögmannsstörfum langt
fram eftir kvöldi. Hann var far-
sæll og það segir sína sögu að
margir af hans nánustu sam-
starfsmönnum, hvort sem þeir
voru eldri eða yngri, urðu ein-
lægir vinir ævina á enda. Það
voru fallegar stundir þegar þeir
sem yngri voru vitjuðu hans á
háum aldri.
Fáir áttu erindi jafn víða um
Ísland. Hann var hafsjór af fróð-
leik um örnefni og það var eins
og hann vissi nafnið á hverjum
einasta bæ á Íslandi og gjarnan
ýmis deili á ábúendum. Á einu
skeiði námsáranna ferðaðist
hann um landið og bauð Íslend-
ingasögur til kaups og á öðru sat
hann löngum stundum við stýrið
á olíutrukkum. Hann fylgdi
tengdaföður sínum í framboðs-
ferðir á Strandir þar sem hann
kynntist samfélagi liðinna tíma
og á löngum ferðalögum
skemmtu þeir félagar hvor öðr-
um með kveðskap. Hestamaður
af lífi og sál og vissi ekkert betra
en að sitja hest í íslenskri sum-
arkyrrð, til dæmis sinn gamla vin
Glaum efst á Arnarvatnshæðum.
Þá var hann glaður og hrókur
alls fagnaðar og leiddi aðra í söng
á ljóði Jónasar. Fram í elli gat
hann þulið jafnt tækifærisvísur
sem heilu kvæðabálkana eftir ís-
lensk og þýsk skáld. Það fannst
honum létta lundina og oft þegar
við kvöddumst fylgdi hann úr
hlaði með setningu úr kvæði:
„Bleib ein braver Mensch“;
„Vertu hugrakkur maður.“
Umhyggja hans fyrir móður
okkar var fegurðin ein. Fyrir ör-
fáum vikum fylgdust þau að síð-
ustu skrefin hennar og kvöddust
af æðruleysi og reisn. Án hennar
var hann sem vængbrotinn fugl,
slasaði sig eina ferðina enn og þá
hafði hann ekki járnviljann og
ástina til þess að rífa sig upp. Nú
feta þau saman inn í íslenskt
sumar og sólarlag. Sú eik er
lengst og styrkust stóð er fallin.
Góða ferð mín kæru.
Dagfinnur Sveinbjörnsson.
Hvernig kveður maður þann
sem alltaf hefur verið til? Þann
sem alltaf var til staðar þegar á
þurfti að halda. Vakti yfir velferð
allra afkomenda sinna alla tíð.
Pabbi minn sat aldrei auðum
höndum. Hann vann á yngri ár-
um langan vinnudag og að hon-
um loknum tóku við verkefni í
þágu fjölskyldu og hemilis. Hann
byggði íbúðarhús fyrir fjölskyld-
una og síðar sumarbústað við
Þingvallavatn sem var sælureit-
ur foreldra minna. Hann átti
mörg áhugamál sem hann sinnti
af heilum hug og lagði víða
gjörva hönd á plóg.
Hann var hestamaður; rækt-
aði hesta og tamdi. Hann ferðað-
ist um landið á hestum og hann
sinnti líka félagsmálum hesta-
manna. Hann var formaður Fáks
þegar félagið var á tímamótum
og var að byggja upp svæðið í
Víðidalnum auk þess sem nýir
tímar voru að renna upp í tamn-
ingu og umhirðu hrossa með
auknum samskiptum við um-
heiminn. Hann vann af eljusemi
að þessum hagsmunamálum
hestamennskunnar.
Hann var skógræktarmaður
og var yfirleitt farinn að setja
niður plöntur hvar sem hann
hafði aðstöðu til. Á þeim vett-
vangi sinnti hann líka félagsmál-
um og sat í stjórn Skógræktar-
félags Íslands um árabil.
Hann stundaði skíði, synti,
gekk og naut útivistar. Hann
stundaði skotveiði og stangveiði,
spilaði brids og ferðaðist innan-
lands og utan.
Hann reyndi að virkja afkom-
endur sína með í áhugamálin –
með misjöfnum árangri að vísu
því manni fannst ekki að maður
hefði alltaf tíma. En þegar litið er
til baka þá spyr maður óneitan-
lega hvar hann fann tíma til að
gera allt sem hann kom í verk.
Hann hafði alltaf líka tíma fyrir
vini og fjölskyldu. Honum leið
best í góðra vina hópi og með fjöl-
skylduna í kringum sig eftir
annasaman dag og talsvert stúss
og bras.
Fjölskyldan og heimilið var
alltaf það allra mikilvægasta.
Hann fylgdist grannt með okkur
afkomendunum og hafði miklar
meiningar um það hvernig við
ættum að haga okkar lífi og við
fengum alveg að vita hans álit.
Eftir að ég flutti til Egilsstaða
var það ekki síst hann sem sá um
að halda góðu sambandi. Hann
hringdi oft og á hverju sumri
komu þau foreldrar mínir í heim-
sókn og áttu hjá okkur nokkra
daga. Börnin mín kynntust vel
afa og ömmu sem bjuggu hinum
megin á landinu og hjá þeim átt-
um við öll vísan samastað þegar
dvalið var í höfuðborginni. Þar
var alltaf hægt að sveigja hlutina
að okkar þörfum og fundinn tími
til að eiga stundir saman og gera
eitthvað með börnunum. Þannig
voru skapaðar dýrmætar minn-
ingar sem munu búa með okkur
öllum og eiga sinn þátt í því hver
við erum.
Á rúmum mánuði höfum við
systkinin kvatt báða foreldra
okkar. Við áttum elskulega og
umhyggjusama foreldra og í
huga mínum er þakklæti og
söknuður. Í dag er lokað kafla
þar sem þau eru þátttakendur í
okkar lífi. Þau eru okkur ekki
lengur samferða.
Ég mun sakna þess að geta
ekki sagt föður mínum frá því
sem er um að vera hjá mér og fá
hans álit. Kannski munu þau
samtöl samt eiga sér stað í huga
mér; því það er ekki hægt að
kveðja alveg þann sem alltaf hef-
ur verið til. Takk fyrir samferð-
ina elsku pabbi minn.
Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir.
Genginn er tengdafaðir minn
Sveinbjörn Dagfinnsson hæsta-
réttarlögmaður. Ungur stóð ég í
anddyrinu á heimili hans í
Hvassaleiti. Vonbiðill Lóu, dótt-
ur hans. Hann spurði mig hvort
ég væri íþróttamaður. Ekki gat
ég gert tilkall til slíks titils. Hann
hafði spilað handbolta með Vík-
ingi á yngri árum. Vörpulegur
maður og kvikur í hreyfingum.
Hann tók mér vel og ég fann
strax að ég var velkominn í fjöl-
skylduna. Síðar kom í ljós að við
áttum mörg áhugamál sameigin-
leg. Eitt þeirra var íslenskt mál.
Ósjálfrátt vandaði ég málfarið í
viðræðum við Sveinbjörn. „Þú
ert glænepjulega til fara,“ sagði
hann stundum. Hann var vel rit-
fær og skrifaði skemmtilegan og
hnitmiðaðan texta. Enginn skrif-
aði vinum sínum fegurri eftir-
mæli.
Íslensk náttúra var okkur báð-
um hugleikin. Ótal ferðir fórum
við austur í Kampholt í gegning-
ar eða gróðursetningar. Austur í
bústað eða að Kletti. Gengum til
rjúpna og lágum fyrir gæs.
Kennileiti og bæjarnöfn. Stað-
hættir og saga. Andardráttur
náttúrunnar. Að mörgu varð ég
fróðari eftir þær ferðir. Einum
kennt, öðrum bent. „Vegurinn
liggur um Hrafnabjargarháls en
ekki Lyngdalsheiði,“ sagði hann.
Það skyldi farið rétt með. „Þarna
heitir Lyklafell,“ sagði hann.
„Þaðan og í Vífilsfellið liggja
mörkin við Árnessýslu.“ Hann
kynnti mig fyrir stelk og jaðrak-
an. Lífinu í landinu og fólkinu
sem þar bjó.
Sveinbjörn var mikill hesta-
maður. Hann minntist hesta-
ferða um heiðarveg og hálendi
Íslands í góðra vina hópi. Þá
hafði hann oft yfir ljóð Jónasar
með blik í auga:
Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég klári beitt;
þar er allt þakið í vötnum
þar heitir Réttarvatn eitt.
Og undir Norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan Hvannamó.
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér;
ískaldur Eiríksjökull
veit allt sem talað er hér.
Síðar átti ég eftir að kynnast
mörgum af þeim fjölmörgu sem
hann hafði átt samskipti við á
lífsleiðinni. Þá fann ég vel hvað
hann naut mikillar virðingar og
vináttu hjá samferðamönnum
sínum.
Sveinbjörn var mikill skóg-
ræktarmaður. Hann horfði með
stolti til þess starfs sem hann
skildi víða eftir sig og hafði á orði
að þessi gróður auðgaði landið og
yrði komandi kynslóðum til
ánægju og yndisauka.
Sveinbjörn var mikill fjöl-
skyldumaður. Hann lagði mikið
upp úr að stefna til sín fjölskyld-
unni þegar tækifæri gáfust og
gleðjast í góðra vina hópi. Þar
var hann hrókur alls fagnaðar og
naut sín hvað best. Skipulagði og
stjórnaði af innlifun. Þar var oft
rökrætt um menn og málefni.
Um margt vorum við ósammála
en aldrei varð okkur sundurorða.
Ellin varð Sveinbirni þung-
bær. Ég vitjaði hans á dánarbeði.
Þá var hann þrotinn að kröftum,
aldurhniginn en ósigraður. Hafði
nýlega fylgt eiginkonu sinni til
grafar. Það var ljóst að hverju
stefndi. Á kveðjustund kallaði
hann mig til sín og þakkaði fyrir
allt. Handtakið þétt. Augnaráðið
hlýlegt. Ró yfir svipnum og
æðruleysi. Á því andartaki viss-
um við báðir að komið var að leið-
arlokum. Kveðjurnar yrðu ekki
fleiri. Það er mitt að þakka.
Karl Andersen.
Elsku afi. Við vissum bæði að
þessi dagur myndi koma, og nú
er hann kominn. Dagurinn sem
við kveðjumst. Að þurfa að
kveðja þig núna, aðeins sex vik-
um á eftir ömmu, er sárt, en jafn-
framt fallegt. Það minnir okkur á
hvað þið voruð sterk saman. Að
þið gátuð ekki hvort án annars
verið. Þið genguð hlið við hlið í
gegnum lífið, í 70 ár.
Afi er lítið orð með stóra
merkingu. Fyrir mér varst þú sá
eini. Þú varst vitur og geislaðir
frá þér sjálfsöryggi. Varst hrein-
skilinn en laus við hroka. Þú elsk-
aðir fjölskylduna meira en allt og
varst ekki feiminn við að sýna
það. Þú naust þess að hafa þína
nánustu þér við hlið og þú hélst
ræður um það um jólin. Þú sagðir
sögur af hestaferðum og af
barnabörnum sem léku sér á
vindsængum á Hvítá og borðuðu
ís. Þú gast aldrei slitið símtali
öðruvísi en að biðja að heilsa ein-
hverjum. Þú varst góður. Þú
varst afi.
Við fórum saman í ótal hesta-
ferðir og útreiðartúra. Við veidd-
um silung í Þingvallavatni. Við
fórum í helgarferðir upp í Kamp-
holt til að gefa og borðuðum
smurt nesti frá ömmu og drukk-
um Swissmiss. Þú kenndir mér
um fjöllin og árnar á leiðinni
austur og hlýddir mér stundum
yfir á leiðinni heim. Við höfum
alla tíð átt sérstakt samband þú
og ég. Ég held að við höfum haft
lag á að skilja hvort annað. Það
leyndi sér ekki þegar maður tal-
aði við þig að þú hefðir áhuga á að
vita meira og þú fékkst litla sál til
að líða eins og jafningja. Takk afi.
Þú barst ekki bara virðingu
fyrir öðrum heldur líka fyrir
sjálfum þér. Þú varst stoltur og
samkvæmur þér og það er eitt af
því sem ég dýrkaði við þig. Á efri
árum fannst þér erfitt að þurfa
að þiggja hjálp frá öðrum. Enn
erfiðara þótti þér að horfa upp á
ástina þína, hana ömmu, fjara
hægt inn í þoku minnisleysis. Þú
gast ekki annað en deilt hennar
tilfinningum um hjálparleysi og
ringulreið. Sá tími sem þið eydd-
uð hvort á sínu hjúkrunarheim-
ilinu var þér erfiður. Þrátt fyrir
drauminn um að flytja aftur heim
í Hvassaleitið voru síðustu árin
ykkar ömmu á Sóltúni góð. Þú
varst hennar klettur.
Síðasta stundin sem við áttum
saman var daginn sem amma var
jörðuð. Við áttum dýrmæta
stund og mér fannst ég skynja
hjá þér sátt. Í augum þínum var
sorg en líka léttir. Stundum get-
ur lífið verið ósanngjarnt en það
átti ekki við um þig. Þú gerðir
þitt líf að því sem það var. Þú átt-
ir langt og gott líf og farsælt
hjónaband. Þú lifðir stoltur fram
á síðasta dag og ert loksins kom-
inn aftur heim til ömmu. Takk
fyrir allt, elsku afi. Þín verður
minnst með söknuði, virðingu og
þakklæti. Sterkari fyrirmynd er
varla hægt að hugsa sér.
Ég bið að heilsa.
Ástarkveðja,
Thelma.
Þá ert þú farinn, afi. Þú sem
hefur verið svo stór og mikilvæg-
ur hluti af mínu lífi alla tíð. Það er
sárt að hugsa til þess að þín njóti
ekki lengur við.
Ég bý að ótal minningum um
samverustundir með þér og
ömmu; skíðaferðir, reiðtúrar í
Víðidal og fyrir austan, ferðalög
um landið og sumarbústaðaferðir
í Kusukot þar sem veiddar voru
murtur og siglt um vatnið á
norska innfjarðarbátnum. Þá bjó
ég hjá ykkur heilan vetur þegar
ég var í skóla hér fyrir sunnan en
þið amma tókuð einstaklega vel á
móti mér. Sem strák að alast upp
á Egilsstöðum var það ávallt til-
hlökkunarefni að koma í heim-
sókn til þín og ömmu. Manni leið
alltaf vel í samveru með þér enda
geislaði frá þér hlýju og einlæg-
um velvilja og var þar aldrei
brestur á. Síðar, á fullorðinsár-
um, stóðstu mér einnig ætíð
nærri.
Það var aðdáunarvert að fylgj-
ast með hvernig þú tókst á við líf-
ið samfara háum aldri. Staðfast-
ur í að ná bættri heilsu, fara að
keyra aftur, synda og sinna
áhugamálum. Þá gættirðu trygg-
lyndis gagnvart nákomnum og
heimsóttir ömmu á hverjum degi
þar til þú fluttist á Sóltún til
hennar. Sama hvernig á stóð þá
fann ég það að þér var ávallt um-
hugað um minn hag, þú kvaddir
ætíð einlæglega og baðst fyrir
kæra kveðju til minnar fjöl-
skyldu.
Þín verður sárt saknað, elsku
afi, kæri vinur minn.
Kári Sveinbjörn.
Nú hefur afi Sveinbjörn fengið
hvíldina, rétt rúmlega mánuði á
eftir ömmu Dollý. Hann saknaði
ömmu óheyrilega mikið eftir
þeirra sjötíu ára samlíf og því er
hægt að gleðjast yfir því að þau
séu nú saman. Þó er alltaf erfitt
að kveðja. Ný og sérstök tengsl
höfðu myndast milli mín og afa
síðustu vikurnar. Eftir að amma
dó áttum við afi nefnilega nokkr-
ar stundir saman bara við tvö og
eru þær mér nú mjög dýrmætar.
Ég hefði gjarnan viljað fleiri slík-
ar stundir.
Það var afa mikilvægt að
rækta fjölskylduböndin og að við
afkomendur hans kynntumst og
ættum góð tengsl. Regluleg fjöl-
skylduboð voru haldin í Hvassa-
leitinu og þegar við barnabörnin
stækkuðum fékk afi þá hugmynd
að halda pizzuveislur og sló það í
gegn hjá okkur unglingunum þó
pizzurnar styngju örlítið í stúf við
tímalaust andrúmsloftið í
Hvassaleiti. Afi kveikti iðulega
upp í arninum og það var einmitt
við arininn sem var svo gott að
spjalla við afa við ylinn frá eld-
inum.
Í Kusukoti, sumarbústað
ömmu og afa við Þingvallavatn,
ríkti ávallt yndisleg kyrrð og ró.
Þar leið afa vel því hann var mik-
ið náttúrubarn og fannst gott að
hafa nóg að gera og ýmislegt að
dytta að. Það var gaman að fylgja
afa í því sem hann tók sér fyrir
hendur í Kusukoti. Þar átti hann
í áralöngu vinasambandi við kríu
sem kom þangað hvert sumar,
þar sem hann skildi eftir mylsnu
handa henni á pallinum. Krían
kom alltaf aftur þó hún flygi fram
og til baka yfir hnöttinn á milli,
ár eftir ár átti hún tryggan vin í
afa Sveinbirni.
Ég er þakklát fyrir þær stund-
ir sem ég átti með afa, og fyrir
það að sonur minn fékk að kynn-
ast langafa sínum. Við minnumst
hans með mikilli hlýju og kveðj-
um hann með söknuði.
Kristín Anna
Hermannsdóttir.
Sveinbjörn Dagfinnsson var í
hópi þeirra fjölmörgu Íslendinga
sem töldu það skyldu sína að end-
urheimta landgæði með gróður-
setningu trjáplantna og verndun
gróins lands. Hann var ötull bar-
áttumaður fyrir bættri umgengni
og virðingu fyrir landsins gæðum
og lagði sig fram um að styðja við
skógræktarstarf um allt land.
Sveinbjörn og eiginkona hans,
Pálína Hermannsdóttir sem lést í
apríl á þessu ári, áttu langa og
Sveinbjörn
Dagfinnsson