Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
SUZUKI SX4
S-CROSS COMFORT PLUS
Bensín, sjálfsk. eyðsla aðeins 5,7. Mjög vel útbúnir.
Verð aðeins 4.490.000 Rnr.248362.
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
NÝ
R B
ÍLL 4X4
Valgeir Guðmundur Magnússon hjá auglýsingastofunni Pipar/TBWA er fimmtugur í dag. Hann er einn af stofnendum ogeigendum fyrirtækisins og var framkvæmdastjóri þess frá
upphafi og þar til í fyrra þegar hann gerðist starfandi stjórnar-
formaður Pipar/TBWA. Núna einbeitir hann sér mikið að fyrir-
tækinu Ghostlamp.
„Ég þurfti að ferðast mikið
til útlanda vegna verkefna
minna hjá Ghostlamp svo að
ég ákvað að minnka ábyrgð-
ina hjá Pipar. Ghostlamp er
áhrifavaldamarkaðstorg og
ég er að hjálpa fyrirtækjum
um allan heim að búa til
áhrifavaldaherferðir á sam-
félagsmiðlum. Það eru 22
milljónir áhrifavalda á skrá
hjá Ghostlamp og við pörum
þá saman við herferðir hjá
fyrirtækjum og borgum þeim
svo í samræmi við hve mikil
áhrif þeir hafa haft í herferð-
inni. Hjá Pipar er ég í skipu-
lagningu og hugmyndavinnu
auk þess að vera til taks í
stjórnendateyminu.“
Valgeir hefur sent frá sér
tvær skáldsögur og er að
vinna að sinni þriðju. „Hún
er langt komin og það er
möguleiki að hún komi út á þessu ári.“ Þar að auki er Valgeir
texta- og lagasmiður og átti m.a. textann við lagið Golddigger sem
Aron Hannes söng í síðustu undankeppni Eurovision auk textans
við jólalag Björgvins Halldórssonar í fyrra, Hjá mér um jólin, en
Sveinn Rúnar Sigurðsson samdi bæði þessi lög.
Valgeir er einnig á fullu í íþróttum og keppir í siglingum á skútu
og kajak auk þess að vera í badminton. Hann hefur hlotið fjölda
verðlauna og síðasti Íslandsmeistaratitillinn sem kom í hús var fyr-
ir fimm árum þegar Valgeir vann í tvíliðaleik í badminton í A-
flokki. „Í þeim flokki eru fallnar stjörnur og unglingalandsliðs-
menn.“
Valgeir fær sína nánustu vini í heimsókn í dag en ætlar að halda
stærðarinnar veislu helgina á eftir fyrir starfsfólk Pipar/TBWA,
Ghostlamp og Fastland sem kona hans á og rekur, en það eru hátt í
100 manns samtals.
Eiginkona Valgeirs er Silja Dögg Ósvaldsdóttir og börn þeirra
eru Gunnar Ingi og Hildur Eva.
Afmælisbarnið Valgeir Magnússon.
Kennir fyrirtækjum
að nota áhrifavalda
Valgeir Magnússon er fimmtugur í dag
L
inda Vilhjálmsdóttir
fæddist í Reykjavík 1.6.
1958 en ólst upp á Sel-
tjarnarnesinu. Hún var
í Valhúsaskóla, lauk
landsprófi frá Mýrarhúsaskóla og
útskrifaðist sem sjúkraliði frá
Sjúkraliðaskóla Íslands 1977.
Linda vann á öldrunardeild og
geðdeild Borgarspítala, starfaði við
heimahjúkrun og á ýmsum deildum
Landkotsspítala fram til ársins 2000.
Linda hefur gefið út sex ljóðasöfn
og eina sjálfsævisögulega skáldsögu,
Lygasögu, á árunum 1990-2015.
Nýtt ljóðasafn frá Lindu mun
koma út í haust. Hún skrifaði ljóð-
leik með Anton Helga Jónssyni og
sjónvarpsmyndarhandrit með Veru
Wonder Sölvadóttur. Ljóða-
upplestrar hennar hafa komið út á
tveimur safndiskum og árið 1993
setti hún upp ljóðasýningu á Kjar-
valsstöðum.
Linda Vilhjálmsdóttir rithöfundur – 60 ára
Evrópsku frelsisskáldaverðlaunin Linda tekur við hamingjuóskum á sviðinu í Shakespeare-leikhúsinu í Gdansk.
Að þora að vera til – og
umbera tilvist annarra
Gömul mynd af skáldum Elísabet Jökulsdóttir, Didda, Kristján Þórður
Hrafnsson, Sigurður Pálsson og Linda Vilhjálmsdóttir, lengst til hægri.
Morgunblaðið/Sverrir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.