Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 35
Linda hefur tvívegis fengið Menn-
ingarverðlaun DV, árin 1993 og
2015. Hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr
Vör árið 2005 og viðurkenningu
Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins ár-
ið 2010. Ljóðabókin Frelsi, eftir
Lindu, var tilnefnd til Norrænu bók-
menntaverðlaunanna árið 2017.
Hinn 25. mars síðastliðinn hlaut
Linda Evrópsku frelsisskáldaverð-
launin fyrir ljóðabókina Frelsi, á
evrópskri bókmenntahátíð, sem
haldin er annað hvert ár í Gdansk í
Póllandi.
Linda hefur áhuga á því að
ferðast, skrifa og lesa, en hún les
mikið ljóð, skáldsögur, ævisögur og
auðvitað ýmislegt fleira sem vekur
áhuga hennar hér og nú. Linda, verk
þín verða stöðugt áleitnari í pólitísk-
um skilningi. Er það sérstakur
ásetningur?
„Nei. Ég veit vel af þessari þróun.
En það þýðir ekki að ég hafi orðið
pólitískari en ég var áður. Ég hef
aldrei sest niður og sagt við sjálfa
mig: „Nú ætla ég að skrifa eitthvað
sem verður mjög pólitískt.“
Þegar Frelsið kom út fékk ég smá
bakþanka um að efnið væri of pólit-
ískt, en þær áhyggjur voru ástæðu-
lausar sem betur fer.
Ég hef einungis sýnt meira áræði
og kannski meira þrek og kunnáttu í
því að fjalla um það sem mér finnst
skipta máli í veröldinni. En það er í
megindráttum sú afstaða að þora að
lifa lífinu og umbera það að aðrir
geri slíkt hið sama.
Ég er að sjálfsögðu ekki að fjalla
um neina flokkapólitík né heldur
neinar endanlegar lausnir á öllum
mannlegum vanda. Skoðanir mínar
taka breytingum rétt eins og skoð-
anir allra þeirra sem hlusta á annað
fólk. Ég hef t.d. verið að fjalla tölu-
vert um trúarbrögð. En ég er ekki
að hafna allri trúarþörf eða taka ein
trúarbrögð fram yfir önnur. Ég er
ekki að predika neina trúarpólitík.
Það verk sem ég er að ljúka við og
kemur út í haust verður einnig póli-
tískt – kvennapólitík með ádeilu á
feðraveldið. Fyrsti kaflinn fjallar um
mig, annar kaflinn verður pólitískur,
sá þriðji enn pólitískari og sá fjórði
fjallar um formæður mínar, móður,
ömmur og allar hinar sem á undan
komu. Það verður því ekkert lát á
pólitíkinni – í þessum víðtæka skiln-
ingi.“
Fjölskylda
Eiginmaður Lindu er Mörður
Árnason, f. 30.10. 1953, íslensku-
fræðingur og fyrrv. alþingmaður.
Foreldrar hans: Vilborg Harðar-
dóttir, f. 30.9. 1935, d. 15.8. 2002,
blaðamaður, og Árni Björnsson, f.
16.1. 1932, þjóðháttafræðingur og
rithöfundur.
Systur Lindu eru Hafdís
Vilhjálmsdóttir, f. 22.1. 1960, fisk-
útflytjandi í Reykjavík, og Ásta Vil-
hjálmsdóttir, f. 24.8. 1962, kennari
og klæðskerameistari í Reykjavík.
Hálfbróðir Lindu, samfeðra, er
Ólafur Vilhjálmsson, f. 1981, búsett-
ur í Reykjavík..
Foreldrar Lindu: Nonný Unnur
Björnsdóttir, f. 15.9. 1938, d. 3.1.
2009, ritari og verslunarkona, og Vil-
hjálmur Ólafsson, f. 19.1. 1930, d.
6.4. 2015, sjómaður.
Úr frændgarði Lindu Vilhjálmsdóttur
Linda Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Ólafsson
sjóm. í Rvík
Eiríkur Ólafsson loft-
skeytam. í Rvík
Magnús
Eiríksson
tón-
skáld og
tónlistar-
maður
Stefán
Már
Magnús-
son tón-
listarm.
Jón Jasonarson
verslunar- og
veitingam. á Borðeyri
Ólafur Jónsson
gjaldkeri hjá Kveldúlfi, búsettur á Seltjarnarnesi
Ásta María Ólafsdóttir
húsfr. á Hafursstöðum á Skagaströnd
Ingibjörg Sólveig Ingimundardóttir
vinnuk. á Torfalæk á Ásum, A-Hún.
Páll V.G. Kolka
læknir
Júlíana Ingibjörg Ólafs-
dóttir húsfr. á Tungu-
bakka í Laxárdal, V-Hún.
Jón Bergmann skáld og
lögregluþj. í Hafnarfirði
Sveinn Bergmann Guðmundsson
sjóm. á Sveinsstöðum
Guðrún Ásmundsdóttir
húsfr. á Sveinsstöðum
í Rvík, frá Hlíðarhúsum
í Rvík
Björn Sveinsson verkam. í Rvík
Ágústa Ingvarsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Koti og í Rvík
Ingvar Sveinsson b. í Koti í Hreppum og steinsmiður í Rvík
Nonný Unnur Björnsdóttir
ritari og verslunark. í Rvík
Eiríkur Jónsson
vinnum. á Flagveltu
í Landsveit, Rang.
Guðríður Jónsdóttir
vinnuk. og síðar í Rvík
Ingibjörg Eiríksdóttir
húsfr. á Seltjarnarnesi
Steingrímur Sveinsson
verkstj. í Rvík
Hildur Steingrímsd.
hárgreiðslum. í Rvík
Hilmar Victorsson
viðskiptafr. í Rvík
Skáldið Linda Vilhjálmsdóttir.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Ingibjörg Sæunn Jóhannsdóttirfæddist í Háakoti í Fljótum 1.6.1918. Foreldrar hennar voru
Jóhann Benediktsson og k.h., Sigríð-
ur Jónsdóttir, bændur að Háakoti og
síðast að Minni-Grindli í Fljótum.
Jóhann var sonur Benedikts Stef-
ánssonar, bónda í Neðra-Haganesi,
og Ingibjargar Pétursdóttur frá
Sléttu, en Sigríður var dóttir Jóns
Ingimundarsonar, bónda í Höfn, og
Guðrúnar Björnsdóttur frá Spáná.
Ingibjörg var fimmta í röð 12
systkina sem náðu fullorðinsaldri.
Ingibjörg giftist vorið 1941 Her-
manni Guðmundssyni, frá Blesa-
stöðum á Skeiðum, sem lést 1981.
Foreldrar hans voru Kristín Jóns-
dóttir frá Vorsabæ á Skeiðum, og
Guðmundur Magnússon frá Votu-
mýri á Skeiðum.
Börn Ingibjargar og Hermanns
eru Sigurður, byggingameistari, nú
á Selfossi; Kristín, bóndakona á
Skeiðháholti á Skeiðum; Guðrún,
bóndakona í Galtarfelli í Hruna-
mannahreppi; Sigríður Margrét, fé-
lagsfræðingur, lengi hjá Reykjavík-
urborg, nú í Kópavogi, og Hildur,
sem hefur verið forstöðumaður elli-
heimilisins á Blesastöðum.
Ingibjörg og Hermann stofnuðu
nýbýlið Blesastaði II vorið 1941 og
bjuggu þar æ síðan. Ingibjörg lauk
prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands
árið 1945. Hún var ljósmóðir í
Skeiðahreppi um áratuga skeið og
oft í nágrannasveitum í forföllum.
Ingibjörg og Hermann ráku
stórbú og tóku auk þess börn og
unglinga til dvalar.
Fjórum árum eftir lát Hermanns
seldi Ingibjörg jörðina og byggði
Dvalarheimilið á Blesastöðum fyrir
aldraða, á landspildu sem hún hélt
eftir af jörðinni. Hún starfrækti síð-
an elliheimilið þar fram til 1995, er
Hildur, dóttir hennar, tók við heim-
ilinu en hún hefur starfrækt það
síðan.
Ingibjörg var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf
sín að félagsmálum.
Ingibjörg lést 28.10. 2007.
Merkir Íslendingar
Ingibjörg
Sæunn
Jóhannsdóttir
95 ára
Helga Kristinsdóttir
90 ára
Nanna L. Pétursdóttir
Sigríður Eiríksdóttir
85 ára
Björg Hjálmarsdóttir
Guðbjörg Gísladóttir
Ragnheiður
Benediktsdóttir
80 ára
Edda Vilhjálmsdóttir
Gunnsteinn Gunnarsson
Hreinn Pálsson
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Sigurður Friðriksson
75 ára
Elsa Schiöth Haraldsdóttir
Guðrún Ingimarsdóttir
Jóhannes G. Þórðarson
Kristinn Ólafur Briem
Sigríður Petra Sigfúsdóttir
70 ára
Árni Anton Þorvaldsson
Ásta Ágústsdóttir
Dagný Bergvins
Sigurðardóttir
Guðný Sigurbjörnsdóttir
Haraldur Haraldsson
Stephanie Grace Scobie
60 ára
Árni Þór Lárusson
Bjarni Pálsson
Elín Guðbjörg Helgadóttir
Eva Daníelsdóttir
Grazyna Janina Linek
Guðlaug I.
Sveinbjörnsdóttir
Hafdís Sveinsdóttir
Hekla Karen Sæbergsdóttir
Ingibjörg Torfadóttir
Jóhanna Th Sturlaugsdóttir
Jóna Karólína Karlsdóttir
Kristín Böðvarsdóttir
Linda Vilhjálmsdóttir
Sigrún Birna Hafstein
Sigrún Jóhannsdóttir
50 ára
Geirmundur Einarsson
Grzegorz Jarzabek
Jónas Líndal Jónsson
Kaja K. Kristjánsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Valgeir Guðmundur
Magnússon
40 ára
Berglind Kristgeirsdóttir
Eygló Rós Gísladóttir
Freyr Rögnvaldsson
Gunnar S. Steindórsson
Heiðdal Jónsson
Linda Björk Sigurðardóttir
Magnús H. Magnússon
Ólafur Örn Bragason
Przemyslaw S. Zurawski
Sigríður Guðbrandsdóttir
Sigrún Ólöf Karlsdóttir
Yusuf Koca
Þórarinn Örn Andrésson
Þórir Rúnar Geirsson
30 ára
Auður Jónsdóttir
Bergrós Gísladóttir
Birkir Arnarsson
Eiríkur Ástvald Magnússon
Ester Kristínardóttir
Haukur Guðjónsson
José L.D S.B. Almeida
Jón Sigfinnsson
Karitas Nína Viðarsdóttir
Ninna Björg Ólafsdóttir
Óli Sigdór Konráðsson
Patryk Zapasnik
Reza Khedri
Rósa Ingólfsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ninna ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
MSc-prófi í rekstrarverk-
fræði frá HR og starfar
hjá Borgun.
Maki: Lárus Helgi Ólafs-
son, f. 1987, kennari.
Sonur: Óliver Elí Lárus-
son, f. 2015.
Foreldrar: Kristín Péturs-
dóttir, f. 1952, klínikdama,
og Ólafur Már Stefáns-
son, f. 1953, tæknifræð-
ingur. Þau búa í Reykja-
vík.
Ninna Björg
Ólafsdóttir
30 ára Haukur ólst upp á
Ísafirði, býr á Akureyri,
lauk sveinsprófi í húsa-
smíði og er húsasmiður.
Maki: Erla Birgisdóttir, f.
1992, sjúkraliði.
Börn: Viktor Logi, f. 2010
(stjúpsonur) Jökull Freyr,
f. 2015, og Víkingur Nói, f.
2018.
Foreldrar: Guðjón Ólafs-
son, f. 1955, mennta-
skólakennari og Sigurlaug
Hauksdóttir, f. 1961, nemi.
Haukur
Guðjónsson
30 ára Eiríkur býr í Hafn-
arfirði, lauk MSc-prófi í
byggingarverkfræði og
BSc-prófi í stærðfræði og
er sérfræðingur hjá Eflu.
Maki: Selma Benedikts-
dóttir, f. 1988, fjallaleið-
sögumaður og nemi í
íþróttafræði við HR.
Dóttir: Sunneva Kolbrún,
f. 2015.
Foreldrar: Magnús Ás-
vald Eiríksson, f. 1958, og
Elva Björk Sævarsdóttir, f.
1964.
Eiríkur Ástvald
Magnússon