Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Markmið okkar er að spara viðskiptavinum
tíma, fyrirhöfn og fjármuni.
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára
reynslu á markaði þar
sem við þjónustum
jafnt stór sem smá
fyrirtæki.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt peningar séu afl margra hluta
þá eru þeir ekki allt og margur verður af
aurum api. Láttu ekki plata þig í við-
skiptum.
20. apríl - 20. maí
Naut Eitthvað kann að koma upp á sem
setur alla þína dagskrá úr skorðum. Sýndu
umburðarlyndi en haltu þínu striki.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ný verkefni byrja vel, en þú veist
betur en nokkur annar að endirinn skiptir
mestu. Einhver sem þú þekki hefur óhreint
mjöl í pokahorninu, vertu á varðbergi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft ekki að vera með nein
látalæti í umgengni við aðra. Mundu að
gleyma ekki þínu eigin frelsi og þinni eigin
velferð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einbeittu þér að því að byggja upp
framtíðina. Hertu upp hugann og reyndu að
halda þínu striki hvað sem tautar og raular.
Félagslífið tekur kipp þegar líður á sumarið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fólk vill rétta þér hjálparhönd um
þessar mundir, bæði beint og óbeint.
Stattu við það sem þú lofar sama hver í
hlut á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Draumar þínir eru ekki bara fyrir þig.
Vertu á varðbergi svo óttinn nái ekki að
læsa klónum í þig. Þú mætir mótbyr en
hann varir ekki lengi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Farðu í skemmtiferð eða nýttu
þér samfélagsmiðla og/eða íþróttir til að
gera daginn ánægjulegan. Þú þarft að
spýta í lófana ef þú ætlar að ná að klára
verkefnin fyrir sumarfrí.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nágranni eða fjölskyldu-
meðlimur virðist ætla að eyðileggja næðið
sem þú metur svo mikils. Góðmennska og
umhyggja fyrir öðrum er efst á baugi þessa
dagana.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ekki berja höfðinu við steininn
þegar þú sérð að fyrirætlanir þínar eru
óframkvæmanlegar. Hjón vinna sig út úr
áskorunum með því að taka höndum
saman.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Sýndu fjölskyldumeðlimum sér-
staka tillitssemi í dag. Þú uppgötvar nýja
hlið á barninu þínu sem þú vissir ekki að
það ætti til.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú verður ekki lengur hjá því komist
að horfast í augu við staðreyndir. Reyndu
þá að bregðast við gagnrýni með yfirvegun.
Ég fletti fésbókarsíðu HólmfríðarBjartmarsdóttur og rakst á
þessa vísu frá 3. maí – og er ekkert
ofsögum sagt þar!:
Hlýtt er enn um byggð og ból
og bara ágætt skyggni.
Í Aðaldal er alltaf sól
þó annað slagið rigni.
Annað hljóð var í Pétri Stefáns-
syni en hann orti á þriðjudags-
morgun um veðrið í Reykjavík:
Fjöldi manna flýr nú brott,
fer til sólarlanda
því maíveðrið er miður gott,
með miklum vætufjanda.
Ingólfur Ómar tekur undir:
Nú er úti regn og rok
rysjótt veðurfarið.
Ég hef fengið upp í kok
af ótíð það get svarið.
Og í gönguför á þriðjudagskvöld
herðir Pétur enn á:
Úti er hífandi helvítis rok,
hér get ég varla gengið.
Alveg hef ég upp í kok
af illviðrinu fengið.
Skagfirskir hagyrðingar halda
áfram að yrkja í framhaldi af kosn-
ingunum. Í framhaldi af vísu Páls
Dagbjartssonar sem hér birtist á
dögunum, en þar hafði hann óskað
sér að Framsóknarflokkurinn fengi
frí frá stjórn sveitarfélagsins „fjöru-
tíu næstu árin“. Núna er tilefnið að
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur hafa ákveðið að halda
áfram meirihlutasamstarfi sínu í
Skagafirði. Guðmundur Sveinsson
yrkir:
Fagrir dagar færast nær
fljóta víða tárin.
Þá er ljóst að framsókn fær
fjörutíu næstu árin.
Syðra segir Ólafur Stefánsson síð-
ustu forvöð að segja eitthvað um
kosningarnar á Ströndum og út-
krotaða kjörskrá, því nú hafa fylk-
ingar þar vestra fallist í faðma sbr.
Fréttablaðið. Svo beinast augu
landsmanna nú að því að fylgjast
með bútasaumi Hallgerðar á fölln-
um meirihluta í borginni við Sundin:
Margs konar ódæmi eiga sér stað
eins þótt menn fari með löndum.
Ekki þó dugir að æðrast við það,
þó ævin verði útkrotað blað,
eins og kjörskrá á Ströndum.
Gunnar J. Straumland yrkir um
„valdið“:
Sárlega hefur sannast oft,
er sumum finnst nú miður,
að allt sem leitar upp í loft
á endanum fellur niður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sól fyrir norðan
og enn um kosningar
Í klípu
„HLJÓMAR EINS OG ÞÚ SÉRT MEÐ
EFTIRSJÁ KAUPANDANS.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ÁTT EKKI AÐ KASTA ÞVÍ!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líða stundum eins
og allir séu að segja
bless við þig.
ÓKEI, ÉG ER
FARINN
ÆTTIR ÞÚ EKKI AÐ
VERA AÐ ÞESSU Á
ÆFINGASVÆÐINU?
NAUTS! ÞETTA
ER SVO MIKLU
SKEMMTILEGRA!
ÁI!
VARIST
HUNDINN
HANN
ANGAR
Hefur einhver lesið undursamlegtljóð um virkjanir eða stóriðju?
Séð dýrlega fallegt málverk af raf-
línum eða stíflum? Fallið í stafi yfir
háspennuturnum?
x x x
Það hefur Víkverji ekki. Aftur ámóti hefur hann lesið fjölmörg
ljóð um þau undur sem náttúran hef-
ur skapað og dáðst að dýrlegum
málverkum af fossum, fjöllum og
öðru landslagi. Víkverji hefur líka
ótal sinnum orðið bergnuminn af
fegurð íslenskrar náttúru.
x x x
Flest virðist nú benda til þess aðHvalárvirkjun verði reist í
Ófeigsfirði á Ströndum. Verði hún
að veruleika munu framkvæmdirnar
skerða það óbyggða svæði á Vest-
fjörðum sem er víðáttumest. Vík-
verji er ekkert sérlega sleipur í
stærðfræði en reiknast svo til að
þetta svæði sé um 14% íslenskra víð-
erna sem samtals eru rúmlega 1.600
ferkílómetrar. Lagðir verða a.m.k.
25 kílómetrar af vegum og rennsli
nokkurra fagurra fossa stöðvast að
mestu.
x x x
Ímyndum okkur eitt augnablik aðnáttúruvísindamaðurinn og lista-
skáldið góða, Jónas okkar Hall-
grímsson, kæmist yfir tímavél hjá
snarbrjálaða vísindamanninum
Jeppe Sørensen í Kaupmannahöfn
árið 1835 og myndi ferðast fram um
200 ár, til ársins 2035.
Um hvað myndi Jónas yrkja ef
hann kæmi við í Ófeigsfirði og Hval-
árvirkjun hefði verið reist þar?
Myndi skáldið fyllast andagift?
x x x
Kannski myndi Jónas yrkja til-brigði við ljóð Hannesar Haf-
stein: Þar sem háar stíflur hálfan
dalinn fylla?
x x x
Víkverji heyrir stundum talað íhæðni um „lattélepjandi 101-
lýð“ sem er að derra sig vegna virkj-
anaframkvæmda á landsbyggðinni.
Þetta skilur Víkverji ekki. Finnst
einhverjum í alvörunni að fólk megi
bara hafa skoðun á þeim stöðum sem
það býr sjálft á? vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þeg-
ar hann er mér til hægri handar hnýt
ég ekki. (Sálm: 16.8)