Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Mennta- og menningarmálaráð-
herra hefur samþykkt tillögu
stjórnar hljóðritasjóðs um fyrri út-
hlutun úr sjóðnum 2018. Alls bár-
ust 89 umsóknir og sótt var um ríf-
lega 72 milljónir. Samþykkt var að
veita 58 styrki, samtals að upphæð
17.650.000 krónur. Styrkt verkefni
eru af ýmsum toga og styrk-
upphæðir á bilinu 100 þúsund krón-
ur til einnar milljónar.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Rannís reyndist gott samræmi í úr-
vali tónlistartegunda umsækjenda
og þeirra sem hljóta styrk. Sömu
sögu megi segja um kynjahlutfall
umsækjenda og styrkþega. Hlut-
verk hljóðritasjóðs er að efla ís-
lenska hljóðritagerð í tónlist með
fjárhagslegum stuðningi við útgáfu
hljóðrita. Íslensk hljóðrit eru ann-
aðhvort unnin og kostuð af íslensk-
um aðilum eða í erlendu samstarfi.
Hæstan styrk, eina milljón, hlýt-
ur Jóhann Helgason fyrir Fjalla-
Eyvind & Höllu – Konung öræfa og
jökla. Dimma ehf. hlýtur 650 þús.
kr. til að hljóðrita disk með frum-
sömdu efni eftir Svavar Knút.
Leikhópurinn Lotta hlaut sömu
upphæð til að hljóðrita söngleikinn
Gosa. Tveimur styrkjum að upp-
hæð 600 þús. kr. var úthlutað, ann-
ars vegar til Alda Music ehf. fyrir
plötuna Birgir og hins vegar til
Auðuns Lútherssonar fyrir plötuna
Auðunn.
Fjórir umsækjendur fengu 500
þús. kr. Þetta voru Elín Gunnlaugs-
dóttir til að hljóðrita Ferðast um
fullveldið – sögur af fullvalda börn-
um; Gyða Valtýsdóttir fyrir Epi-
cycle II; Nimrod Haim Ron fyirr
The Icelandic tuba repertoire og
Úlfur Hansson fyrir plötuna Heav-
ing Earth. Fimm umsækjendur
hlutu 400 þús. kr. Þetta voru Auður
Viðarsdóttir fyrir Fyrstu plötu
rauðar; Hafsteinn Þráinsson fyrir
Ceasetone; Katrína Mogensen fyrir
plötu sem ber vinnutitilinn I am
not unhappy og Magnús Orri Dags-
son fyrir fyrstu plötu sína. Egill
Viðarsson hlýtur 350 þús. kr. fyrir
fyrtu breiðskífu Andy Svarthol. Níu
umsækjendur hljóta 300 þús. kr.
Þetta eru Friðrik Guðmundsson
fyrir Skipholt; Halldór Smárason
fyrir samnefnda hljómplötu; Inga
Björk Ingadóttur fyrir Lygna –
lýra og söngur; Júlíus Óttar Björg-
vinsson fyrir Svo fjarar aftur út –
VAR; Karitas Harpa Davíðsdóttir
fyrir Karitas – Hedband; Melchior
sf. fyrir Hótel Borg; Ólafur Björn
Ólafsson fyrir Hulið; Steingrímur
Þórhallsson fyrir Myndir af Snorra
og Þóra Jónsdóttir fyrir Lífið mitt.
Um 17,6 milljónir
til 58 verkefna
Fyrri úthlutunin úr hljóðritasjóði
Svavar
Knútur
Elín
Gunnlaugsdóttir
Jóhann
Helgason
Gyða
Valtýsdóttir
Úlfur
Hansson
Katrína
Mogensen
Uppselt er á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á Listahátíð í
Reykjavík í kvöld þegar hljóm-
sveitin flytur sinfóníu nr. 2 eftir
Gustav Mahler, sem einnig er nefnd
Upprisusinfónían, undir stjórn Osm-
os Vänskäs, heiðursstjórnanda SÍ.
Enginn þarf þó að missa af tónleik-
unum þar sem þeir verða sendir út í
beinu myndstreymi á sinfonia.is og á
facebooksíðu hljómsveitarinnar.
Söngkonurnar Christiane Karg og
Sasha Cooke koma fram á tónleik-
unum ásamt Mótettukór Hallgríms-
kirkju undir stjórn Osmos Vänskäs,
sem þykir einn fremsti Mahler-
túlkandi samtímans. Hljóðritanir
hans á verkum meistarans með
Minnesota-hljómsveitinni hafa feng-
ið frábæra dóma og nýjasti hljóm-
diskur hans, með fimmtu sinfóníu
Mahlers, var nýverið tilnefndur til
Grammy-verðlauna. Karg hefur um
árabil vakið aðdáun fyrir silkimjúka
og tæra sópranrödd sína og er fasta-
gestur við Covent Garden- og La
Scala-óperuhúsin. Cooke sérhæfir
sig í flutningi á tónlist Mahlers og
hefur hlotið Grammy-verðlaun fyrir
túlkun sína á verkum hans.
Tónleikarnir hefjast kl. 19.30 og
tekur flutningurinn um 90 mínútur.
Vinafélag SÍ býður upp á tónleika-
kynningu í Hörpuhorni kl. 18.20.
Umsjón hefur Árni Heimir Ingólfs-
son, listrænn ráðgjafi SÍ.
Morgunblaðið/Eggert
Mahler nr. 2 á Listahátíð
Einbeiting Osmo Vänskä
stjórnaði Sinfóníuhljóm-
sveitinni á æfingu í gær.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Northern lights“ er yfirskrift tón-
leika sem Dómkórinn í Reykjavík
heldur í Hallgrímskirkju á sunnudag
kl. 17. Tónleikarnir eru upphitun fyr-
ir tónleikaferð kórsins til Frakklands,
en viku síðar heldur kórinn tónleika í
Saint-Étienne-du-Mont-kirkjunni í 5.
hverfi Parísarborgar. Á efnisskrá
tónleikanna er Sálumessa ópus 9 eftir
franska tónskáldið Maurice Duruflé
sem einmitt var organisti við sömu
kirkju um langa hríð. Efnisskrá
tónleikanna tekur titil sinn frá sam-
nefndu verki eftir norska tónskáldið
Ola Gjeilo sem er á dagskrá kórsins.
„Yfirskrift tónleikanna í París
verður hins vegar „Entends, artisan
des cieux“ sem er frönsk þýðing á
„Heyr himna smiður“ en samnefndur
sálmur og tveir aðrir eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson eru á efnisskránni. Auk
þess syngur kórinn verk eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, sem syngur
reyndar með kórnum, Önnu S. Þor-
valdsdóttur, Eriks Ešenvalds, Eric
Whitacre og Francis Poulenc, auk
tveggja annarra verka eftir Duruflé,“
segir Kári Þormar, stjórnandi Dóm-
kórsins. „Það má segja að við ráð-
umst á garðinn þar sem hann er
hæstur að ætla okkur að syngja á
frönsku fyrir heimamenn, en við lát-
um bara vaða.“
Hafa eitthvað að stefna að
Á tónleikunum í Hallgrímskirkju
leikur Steingrímur Þórhallsson á org-
elið í Sálumessunni. „Þetta er einn
erfiðasti orgelundirleikskafli sem til
er og því ekki fyrir hvern sem er að
spila. Steingrímur verður því miður
ekki með okkur í París þar sem hann
er sjálfur að fara með eigin kór í tón-
leikaferð. Í staðinn leikur Vincent
Warnier með okkur, en hann er ann-
ar tveggja organista við Saint-
Étienne-du-Mont-kirkjuna í París og
jafnframt virtur organisti á al-
þjóðavettvangi. Núverandi organ-
istar kirkjunnar tóku við af Marie
Duruflé, ekkju tónskáldsins, sem
hafði verið organisti við hlið eigin-
mannsins og áfram eftir að hann dó,“
segir Kári og tekur fram að París sé
mekka organista, enda mikið af flott-
um hljóðfærum í kirkjum borgar-
innar.
Einsöngvarar í Sálumessunni í
Hallgrímskirkju og í París verða Sig-
ríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópr-
an og Jón Svavar Jósefsson barítón.
„Á tónleikunum í Hallgrímskirkju
syngur Guðbjörg Hilmarsdóttir sópr-
an einsöng í verkinu „Only in sleep“
eftir Lettann Eriks Ešenvalds,“ segir
Kári og tekur fram að bæði Guðbjörg
og Jón Svavar syngi með kórnum.
„Enda eru margir góðir og menntaðir
söngvarar sem syngja með kórnum,
þótt hann sé að stórum hluta skip-
aður leikmönnum,“ segir Kári, en
kórfélagar telja á fimmta tuginn.
„Við reynum að fara í tónleikaferð
á tveggja til þriggja ára fresti, enda
alltaf gott að hafa eitthvað að stefna
að,“ segir Kári og tekur fram að strax
á næsta ári muni Dómkórinn taka
þátt í kórakeppni í Salzburg.
Tilhlökkun Kórfélagar í Dómkórnum telja á fimmta tug. Kári Þormar stjórnandi er lengst til hægri á myndinni.
Sálumessa og norðurljós
Dómkórinn í Reykjavík hitar upp fyrir tónleikaferð með
tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kemur kl. 17
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Sun 10/6 kl. 20:00 Lokas.
Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Allra síðustu sýningar!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar um helgina!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas. Fös 8/6 kl. 20:30 Lokas.
Tilnefnd til sex Grímuverðlauna. Allra síðustu sýningar.
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Lau 25/8 kl. 19:30 37.sýn
Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Lau 1/9 kl. 19:30 38.sýn
Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fös 24/8 kl. 19:30 36.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200