Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Listasafn Reykjanesbæjar fagnar 15
ára afmæli í ár og opnar af því tilefni
þrjár sýningar í Duus-safnahúsum
kl. 18 í dag. Verkin á sýningunum
eru öll í eigu safnsins og af marg-
víslegu tagi. Þar gefur að líta olíu-
verk, vatnslitamyndir, skúlptúra og
grafík eftir ýmsa listamenn en þó
fyrst og fremst samtímamenn. Tæp-
lega 60 listamenn eiga verk á sýn-
ingunum.
Í Listasalnum er uppistaðan olíu-
verk og skúlptúrar, í Bíósalnum eru
mannamyndir teknar sérstaklega
fyrir á sýningunni Fígúrum og í
Stofunni er fjöldi vatnslitamynda,
sem fjölskylda málarans og heima-
manneskjunnar Ástu Árnadóttur
færði safninu að gjöf. Sýningarstjóri
er Inga Þórey Jóhannsdóttir. Sýn-
ingarnar eru sumarsýningar safns-
ins og opnar til 19. ágúst.
Sumarsýningar Á sýningunum í Listasafni Reykjanesbæjar eru m.a. olíu-
verk, vatnslitamyndir, skúlptúrar, grafík og mannamyndir.
Verk 60 listamanna
í Duus-safnahúsum
Sýning Grétu Mjallar Bjarnadóttur,
… ekki skapaðar heldur vaxandi,
verður opnuð kl. 17 í dag í Grafík-
salnum, Tryggvagötu 17. Á sýning-
unni eru grafíkverk skorin út í birki-
krossvið í tölvustýrðum risafræsara.
Gréta Mjöll vinnur á abstrakt hátt
með myndmálið, myndrænar hug-
myndir vaxa í ferlinu og hún beitir
sjónrænum aðferðum við að miðla
sögum.
Listakonan dregur fram skynjun
sína og tilfinningar í flæði og segir
myndrænar sannsögur. Hún beitir
þessum áhrifum í sjónrænan vett-
vang á þann hátt að þær eru ekki
fyrirfram skapaðar heldur vaxnar
sannmyndir. Kannski með þeim
skilningi að lífið með alls konar upp-
lifun og ferli breytinga kalli fram
vöxt, endurnýjun eða annan skilning
á eigin sögu. Gréta Mjöll býður
áhorfendum í heimsókn inn í hugar-
heim sinn ekki ólíkt hugmyndinni í
kvikmyndinni Being John Malko-
vich. Sýningin stendur til 17. júní.
Að störfum Gréta Mjöll glímir við að prenta eitt af sínum stóru verkum. Hún
blandar saman nútímatækni fræsara við stafræna vinnslu flæðis og þrykk.
Myndrænar sannsögur
Lokaverkefni Unnar Lárusdóttur í
ljósmyndanámi í lýðháskólanum
Krogerup í Danmörku nefnist Life-
lines og fjallar um líkamsvirðingu,
slitför og fjölbreytileika. Vegna
fjölda fyrirspurna segist Unnur
hafa ákveðið að halda áfram með
verkið og halda sýningu hér heima.
Sú stund verður milli kl. 17 og 19 í
dag í Gallerí Vest, Hagamel 67, en
einnig er hægt að skoða sýninguna
kl. 14-17 á morgun, laugardag.
Slitför spila, að sögn Unnar,
stærstan þátt í ljósmyndunum þar
sem hún málar ofan í slitför fólks
svo úr verði ólík mynstur. Slitförin
gefi til kynna hvað líkaminn hefur
upplifað og hvers hann sé megn-
ugur.
Unnur myndaði og tók viðtöl við
17 manns, stráka og stelpur. Í við-
tölunum kom fram að fólk upplifir
samfélagslega pressu vegna feg-
urðarstaðla og á margt hvað erfitt
með að elska líkama sinn. Á hinn
bóginn kom líka í ljós að sumir hafa
alla tíð elskað líkama sinn eða hafa
lært að elska hann og hvernig fólk
sér fegurð í ýmsu sem það sá ekki
áður.
Ólík mynstur Slitförin á húð fyrirsæta
spila stærstan þátt í ljósmyndum Unnar.
Saga lífsins í slitförunum
Undir trénu 12
Agnes grípur Atla við að
horfa á gamalt kynlífs-
myndband, hendir honum
út. . Atli flytur inn á foreldra
sína sem eiga í deilu við fólk-
ið í næsta húsi.
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 20.00
Heima Heimildamynd um hljóm-
sveitarferðalag Sigur Rósar
um Ísland sumarið 2006.
IMDb 8,6/10
Bíó Paradís 18.00
Call Me By Your
Name 12
Metacritic 93/100
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 20.00
Independence Day 12
Metacritic 59/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 20.00
In the Fade 12
Veröld Kötju hrynur þegar
eiginmaður hennar og sonur
láta lífið í sprengjuárás.
Sorgarferlið tekur við. Eftir
nokkurn tíma fer hún að
hyggja á hefndir
Metacritic 64/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.30
Jumanji: Welcome to
the Jungle 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 18.00
The Big Sick Bíó Paradís 23.00
Avengers: Infinity
War 12
Avengers og bandamenn
þeirra verða að vera klárir í
að fórna öllu til að sigra hinn
öfluga Thanos, áður en eyði-
leggingarmáttur hans legg-
ur alheiminn í rúst.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 68/100
IMDb 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.40
Sambíóin Egilshöll 17.00,
22.20
Sambíóin Kringlunni 19.10,
22.20
Sambíóin Akureyri 21.30
Midnight Sun
IMDb 6,3/10
Myndin fjallar um Katie, sem
er 17 ára gömul og hefur lif-
að mjög vernduðu lífi alla
tíð, þar sem hún þarf að
vera innandyra af því að hún
er með sjaldgæfan sjúkdóm
sem gerir hana ofur-
viðkvæma fyrir sólarljósi.
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
19.40, 21.50
Sambíóin Akureyri 19.30
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00
I Feel Pretty 12
Höfuðmeiðsl valda því að
kona fær ótrúlega mikið
sjálfstraust og telur að hún
sé ótrúlega glæsileg.
Metacritic 47/100
IMDb 4,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00
7 Days in Entebbe 12
Metacritic 49/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Kringlunni 16.50
Vargur 16
Bræðurnir Erik og Atli eiga
við fjárhagsvanda að stríða.
Þeir grípa til þess ráðs að
smygla dópi. Erik skipulegg-
ur verkefnið og allt virðist
ætla að ganga upp, en
óvænt atvik setur strik í
reikninginn.
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,6/10
Smárabíó 20.00, 22.10
Háskólabíó 18.20
Bíó Paradís 18.00
Overboard Sagan segir frá óþolandi
snekkjueiganda, sem kemur
illa fram við starfsstúlku
sína. Hún lætur ekki bjóða
sér hvað sem er og hefnir
sín. Snekkjueigandinn endar
í sjónum og skolast upp á
land minnislaus.
Metacritic 42/100
IMDb 5,4/10
Laugarásbíó 22.10
Háskólabíó 21.10
Bókmennta- og
kartöflubökufélagið
Rithöfundur myndar óvænt
tengsl við íbúa á eynni
Guernsey, skömmu eftir
seinni heimsstyrjöldina, þeg-
ar hún skrifar bók um
reynslu þeirra í stríðinu.
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.30
Rampage 12
Metacritic 45/100
IMDb 6,4/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Draumur IMDb 6,8/10
Myndin skoðar ósagða sögu
Mjallhvítar, Öskubusku og
Þyrnirósar, sem komast að
því að þær eru allar trúlof-
aðar sama draumaprins-
inum. Prinsinn upplifir þær
breytingar að verða talinn
ómótstæðilegur af flestum
eftir að álfadís hellir á hann
töfradufti í miklu magni.
Laugarásbíó 15.50, 16.00
Smárabíó 15.00, 17.20
Háskólabíó 18.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
Pétur Kanína Myndin fjallar um kanínuna
Pétur sem reynir að lauma
sér inn í grænmetisgarð nýja
bóndans. Þeir há mikla bar-
áttu þar sem bóndinn vill
halda dýrunum út fyrir garð-
inn en Pétur svífst einskis til
að fá það sem hann vill.
Smárabíó 15.20
Víti í Vestmanna-
eyjum Myndin fjallar um strákana í
fótboltaliðinu Fálkum sem
fara á knattspyrnumót í
Vestmannaeyjum. Á fyrsta
degi kynnast þeir strák úr
Eyjum sem þeir óttast en
komast að því að hann býr
við frekar erfiðar aðstæður.
Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Akureyri 17.10
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.30
Sambíóin Álfabakka 16.50, 18.00, 19.40,
21.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.50
Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Akureyri 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Keflavík 16.40, 19.30, 22.20
Smárabíó 16.10, 16.20, 19.10, 19.30, 22.00
Solo: A Star Wars Story 12
Kona fer í stríð
Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yf-
ir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar-
verkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og
hálendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur
inn í líf hennar.
Morgunblaðið bbbbb
Laugarásbíó 15.30, 17.40,
17.50, 20.00
Smárabíó 17.40, 19.50, 22.10
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.00
Deadpool 2 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 68/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.25
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.20
Smárabíó 16.50, 19.30, 22.10, 22.30
Háskólabíó 20.40
Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio