Morgunblaðið - 01.06.2018, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Óður og Flexa eru aftur komin á
kreik eftir ævintýralegt afmælis-
partý sem Íslenski dansflokkurinn
setti upp árið 2016. Dansverkið
nefndist einfaldlega Óður og Flexa
eiga afmæli. Þessir sporléttu grall-
arar koma nú fram á Listahátíð í
Reykjavík þar sem þau lenda í raf-
mögnuðu ævintýri á Stóra sviðinu í
Borgarleikhúsinu á laugardaginn og
sunnudaginn, kl. 13 og 15 báða dag-
ana.
Dansararnir Þyri Huld Árnadóttir
og Hannes Þór Egilsson eru allt í
öllu í uppfærslunni, eða a.m.k. flestu,
því þau eru hugmyndasmiðir verks-
ins og danshöfundar. Þau skrifuðu
einnig handritið ásamt leikstjór-
anum Pétri Ármannssyni og Sigríði
Sunnu Reynisdóttur, sem hafði bún-
inga og sviðsmynd á sinni könnu.
„Nýja verkið, Óður og Flexa: Raf-
magnað ævintýri, er sjálfstætt fram-
hald Óður og Flexa eiga afmæli. Við
snúum aftur á svið til að taka til eftir
afmælið, sem fór svolítið úr bönd-
unum. Síðan hefur allt verið á rúi og
stúi heima hjá okkur. Tvö prumpu-
skrímsli mættu í veisluna og gerðu
smá usla, en einnig töframaður sem
hjálpaði okkur að ná aftur ímynd-
unaraflinu,“ rifjar Þyri Huld upp og
er strax farin að lifa sig inn í hlutverk
Flexu.
Raf Max kemur til sögunnar
Auk þeirra Þyri Huldar og Hann-
esar Þórs tekur þriðji dansarinn, Er-
nesto Camilo, þátt í uppfærslunni.
Hann leikur vélmennið Raf Max,
sem dansar sig inn á sviðið um mið-
bik verksins og kynnir rafmagns-
heiminn fyrir þeim Óð og Flexu.
„Okkur langaði að gera framhald af
fyrri sýningunni til sjá hvað gerðist
ef þau lentu í nýjum ævintýrum og
svo vorum við bara með ýmsar pæl-
ingar um krakka og hugmyndaflug
þeirra, sem okkur finnst mjög mikil-
vægt að virkja. Við fundum vel hvað
krakkarnir skemmtu sér vel í af-
mælisveislunni. Sýningin hlaut enda
mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda
og var tilnefnd til Grímuverðlauna
2016 í flokknum Barnasýning ársins
og Danshöfundar ársins,“ segir Þyri.
Henni finnst svolítið öðruvísi að
dansa fyrir börn en fullorðna, en þó
ekki síður skemmtilegt. „Krakkarnir
eru alveg ófeimnir. Þeir láta mann al-
veg vita hvað þeim finnst, kalla fram í
ef þeir sjá ástæðu til og þess háttar.
Ég geri ekki ráð fyrir að smáfólkið
eigi eftir að hlaupa fram á sviðið, en
við ætlum að búa til minna svið á
Stóra sviðinu til þess að vera í meira
návígi við áhorfendur.“
Að nota ímyndunaraflið
Þyri Huld og Hannes Þór hafa bú-
ið sig vel undir að takast á við næsta
ofurhetjuverkefni með þeim Óð og
Flexu. Nefnilega að taka til með stæl.
Slíkt er ekki öllu smáfólki gefið eins
og flestir foreldrar vita. Þá munu þau
eins og í fyrri sýningunni leggja
áherslu á að kenna krökkunum að
nota ímyndunaraflið.
„Og benda þeim á að tiltekt þarf
alls ekki að vera leiðinleg, heldur
þvert á móti skapandi og skemmti-
leg. Söguþráðurinn er í stórum drátt-
um á þá leið að þegar Óður og Flexa
eru að taka til sulla þau óvart niður
vatni á raftæki. Klaufskan verður til
þess að þau fá rafstraum og fara inn í
annan heim; rafmagnaðan heim,“
segir Þyri Huld en gefur ekkert frek-
ar upp um framvindu sögunnar.
Dansverkið, sem samanstendur af
ballett og nútímadansi, er 40 til 50
mínútna langt og tónlistin er á klass-
ísku nótunum. „Í klassíkina blandast
líka önnur tegund af tónlist, sem Raf
Max kynnir okkur fyrir,“ segir hún.
Grunur leikur á að sú sé rafmögnuð.
Þyri Huld upplýsir að Íslenski
dansflokkurinn hyggist setja upp
fleiri sýningar á rafmögnuðu ævin-
týri þeirra Óðs og Flexu úti á landi í
sumar og aftur í Borgarleikhúsinu
með haustinu.
Kveikt á ímyndunaraflinu
Óður og Flexa læra að taka til með stæl í dansverki Þyri Huldar Árnadóttur og Hannesar
Þórs Egilssonar í Borgarleikhúsinu um helgina Tiltekt getur verið skapandi og skemmtileg
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
Sporlétt og fín Í splunkunýjum búningum sem Sigríður Sunna hannaði sérstaklega á Óð og Flexu áður en þau héldu sporlétt á vit nýrra ævintýra.
Midnight Sun
Rómantísk kvikmynd sem fjallar
um 17 ára stúlku, Katie, sem er
með afar sjaldgæfan sjúkdóm sem
veldur því að hún þolir ekki út-
fjólubláa geisla sólarinnar og má
því ekki vera utandyra á daginn.
Fyrir vikið hefur hún lifað afar
vernduðu lífi innandyra. Á kvöldin
fer hún hins vegar út og tekur oft-
ast gítarinn sinn með sér og æfir
sig á lestarstöð nærri heimili sínu.
Þar hittir hún kvöld eitt ungan
mann, Charlie, og fella þau hugi
saman.
Handrit kvikmyndarinnar er byggt
á handriti japanskrar kvikmyndar,
Taiyo no Uta, eftir Norihiro Koiz-
umi frá árinu 2006 en sú mynd
naut mikilla vinsælda í Japan.
Með aðalhlutverk í Midnight Sun
fara Bella Thorne og Patrick
Schwarzenegger, sonur Arnolds
Schwarzeneggers, Rob Riggle,
Quinn Shephard, Ken Tremblett,
Jenn Griffin, Nicholas Coombe og
Tiera Skovbye en leikstjóri
myndarinnar er Scott Speer.
Metacritic: 38/100
Rotten Tomatoes: 18%
Bíófrumsýningar
Rómantík Midnight Sun er bandarísk endurgerð á japanskri kvikmynd.
Ástarsaga í sólarleysi
ICQC 2018-20