Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 44
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Ágústa Eva nýtur móðurhlutv...
2. Ég hef aldrei orðið fyrir jafnm...
3. Gert að greiða 426 milljónir...
4. Ég vann orrustuna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dúettinn Sycamore Tree, skipaður
Ágústu Evu Erlendsdóttur og Gunna
Hilmarssyni, heldur tónleika í Bæjar-
bíói í kvöld kl. 20.30. Dúettinn vinnur
nú að annarri breiðskífu sinni og mun
leika efni af henni sem og þeirri
fyrstu, Shelter. Þeim til aðstoðar
verða tónlistarmennirnir Unnur Birna
Björnsdóttir og Arnar Guðjónsson.
Sycamore Tree kem-
ur fram í Bæjarbíói
Sin Fang,
Sóley og Örv-
ar Smárason
halda útgáfu-
tónleika í
Iðnó í kvöld
kl. 21 vegna
hljómplötu sinnar Team Dreams sem
er afrakstur samstarfsverkefnis
þeirra. Þríeykið samdi, tók upp og gaf
út nýtt lag í hverjum mánuði í fyrra
og hefur platan að geyma öll lögin 12
og er tvöföld vínylplata. Lögin eru á
þremur hliðum en á þeirri fjórðu er
myndverk eftir Ingibjörgu Birgis-
dóttur.
Fagna útgáfu 12 laga
vínylplötu í Iðnó
Rokksveitin HAM heldur tónleika á
Húrra í kvöld kl. 21 og munu Kontin-
uum og Úlfúð sjá um upphitun. HAM
kemur næst fram á Secret Solstice
23. júní en leggst svo í dvala þar
sem bassaleikarinn S. Björn Blöndal
flytur brátt til Kanada. Á Húrra mun
HAM bjóða upp á hug-
víkkandi blöndu nýrra
og klassískra verka
og kafa djúpt í
rannsóknir sínar á
svikum, dauða og
helvíti mann-
anna.
HAM rokkar á Húrra
Á laugardag Suðvestan 8-15 m/s, hvassast norðvestantil. Skýjað
og súld á stöku stað vestanlands, en bjart veður eystra. Hiti 8 til
20 stig, hlýjast á Austurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13, hvassast norðvestantil og
víða bjartviðri. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í innsveitum austanlands.
VEÐUR
„Ég kem alltaf hingað með
sjálfstraust, sama hvernig
gengur með félagsliðinu.
Aðallega af því að þetta er
allt öðruvísi hérna hjá
landsliðinu. Það er allt
öðruvísi stemning og maður
hlakkar alltaf til að hitta
strákana og undirbúa sig
fyrir hvaða leik sem er,“
segir Jón Daði Böðvarsson,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem horfir með
eftirvæntingu til HM. »1
Allt önnur og
betri stemning
Andrea Mist Pálsdóttir var allt í öllu á
miðjunni hjá Þór/KA þegar liðið vann
4:1 sigur á FH í Kaplakrika á sunnu-
daginn var. Andrea skoraði fjórða og
síðasta mark norðanstúlkna, sem eru
efstar í Pepsi-deild kvenna með fullt
hús stiga eftir fimm leiki.
Sviðsljósinu er beint að
Andreu Mist um leið og
5. umferð Pepsi-deildar
kvenna í knattspyrnu
er gerð upp í blaði
dagsins. »2
Andrea Mist fór á kost-
um í sigri Þórs/KA
„Þegar allir hafa skilað sér á mánu-
dagsmorgun reikna ég með að
þurfa tvo daga til þess að ákveða
hvaða sextán leikmenn ég fer með
út til Vilníus í viðureignina við
Litháen,“ segir Guðmundur Þórður
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, sem stendur í
ströngu við undirbúning fyrir leiki
við Litháen í undankeppni HM. »1
Velur hópinn daginn
fyrir brottför til Vilníus
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Í útibúi Póstsins í Pósthússtræti
var mikið um að vera í gær. Gesta-
gangurinn var stöðugur og borð
hlaðið veitingum svignaði undan
álaginu. Það má segja að sann-
kölluð kveðjuveisla hafi staðið þar
allan daginn, kveðjuveisla til heið-
urs Eddu Egilsdóttur, sem hefur
unnið í 42 ár hjá Póstinum. Í gær
vann hún sinn síðasta vinnudag en
hún fer nú á eftirlaun eftir langt og
farsælt starf.
Mikilvægt að það sé gaman
,,Ég hefði nú ekki verið hérna
allan þennan tíma ef mér þætti
þetta ekki skemmtilegt,“ segir
Edda þegar hún er spurð út í
starfið. ,,Það sem gefur vinnu gildi
er að vinna með góðum félögum og
að finnast gaman að því sem maður
er að gera.“ Edda leggur áherslu á
það hversu gaman henni þykir að
vinna vinnuna sína og segist hafa
gaman af öllu við starfið hjá Póst-
inum.
,,Mér leiðist ekki alla jafna. Að
hitta fastakúnnana sem koma hing-
að alltaf dag eftir dag í hvaða veðri
sem er finnst mér afar gaman.
Sumir hafa komið hingað ansi
lengi, jafnvel lengur en ég sjálf.“
Vinsæl á meðal viðskiptavina
Edda þarf að taka hlé á máli
sínu nokkrum sinnum til að taka á
móti viðskiptavinum sem bera
henni þakkir fyrir vel unnin störf.
,,Ég á yndislega viðskiptavini sem
mér þykir gífurlega vænt um og ég
finn að þeim þykir vænt um mig
líka,“ segir Edda.
Eins og gefur að skilja hefur
póstþjónustan tekið stakkaskiptum
síðan Edda hóf störf. ,,Bréfapóstur-
inn hefur minnkað gífurlega. Í dag
verslar fólk mikið á netinu svo það
kemur mikið af pökkum og það
þarf að sinna afhendingum á þeim.
Fjölbreytnin í starfinu hefur einnig
minnkað umtalsvert. Pósturinn var
áður með alla svona greiðsluseðla
sem bankarnir sjá um núna og
pósturinn sá einnig um símareikn-
ingana og slíkt.“
Edda er Súgfirðingur en kom til
Reykjavíkur með vonir um atvinnu.
,,Mig vantaði vinnu hérna í bænum
og þá var nú kannski ekki hlaupið í
vinnu. Frænka mín benti mér á að
athuga hvort það væri hægt að fá
vinnu á pósthúsinu. Ég hafði þá
samband við hann Axel vin minn
sem er ekki fyrir svo löngu látinn.
Hann benti mér á að fara í póst-
skólann, sem ég gerði og síðan hafa
þau ekki losnað við mig,“ segir
Edda og hlær.
,,Mér leiðist ekki alla jafna“
Edda Egils-
dóttir vann hjá
Póstinum í 42 ár
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinsæl Edda Egilsdóttir, fyrir miðju, ásamt fríðu föruneyti. Viðskiptavinir streymdu að til að kveðja Eddu, sem
segir eitt af því skemmtilegasta sem hún geri að taka á móti viðskiptavinum sem hafi komið til hennar í mörg ár.
Vilborg, fyrrverandi samstarfs-
kona Eddu, stendur á spjalli við
Eddu þegar blaðamann ber að
garði. Þær eru sammála um að
einingin í pósthúsinu í Póst-
hússtræti hafi verið mikil. ,,Þeg-
ar átti að flytja mig í Ármúlann
héldum við grátpartí, það var í
raun verið að skilja okkur að. Ég
man þegar ég gekk út eftir síð-
asta daginn minn hér og ég
eiginlega þurfti að þurrka tárin
vegna þess að ég var að yfir-
gefa þetta hús,“ segir Vilborg.
,,Ég held að flestir póstmenn
hafi djúp tengsl við þetta póst-
hús af því að flestir byrjuðu
svona að einhverju leyti hér,“
segir Edda. ,,Áður fyrr þekkti
maður nánast alla sem unnu hjá
Póstinum. Í dag þekkirðu miklu
færri af þeim sem vinna á hin-
um stöðunum. Nándin er ekki
eins mikil.“
Pósthúsið í Pósthússtræti
NÁNDIN MILLI STARFSFÓLKS MINNI