Morgunblaðið - 07.06.2018, Page 51
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2018
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Partí-tortilla
fyrir 4-6
3 msk. olía
1 laukur, skorinn í fernt og sneiddur
2 hvítlauksgeirar, saxaðir fínt
½-1 tsk. kanill
2 dósir taco-sósa, meðal sterk, frá
Old el Paso
1 tsk. chiliduft
½ dl vatn
600 g eldaður kjúklingur, gott að
nota afgangs kjúkling
8-10 stórar tortillakökur frá Old el
Paso
1 dl jalapeno frá Old el Paso
2 dl rifinn ostur
Hér er upplagt að nota afgangs-
kjúklingakjöt. Hitið olíu á pönnu
og steikið laukinn í nokkrar mín-
útur, hann má gjarnan brúnast að-
eins. Bætið hvítlauk í og steikið
áfram í 1-2 mín. Bætið kanil, chili
og taco-sósu í ásamt örlitlu vatni
og látið þetta nú malla saman, ekki
með lok á pönnunni, í 3-5 mín.
Bætið kjúkling út í og hitið vel
saman. Smakkið til með salti og
pipar.
Setjið olíu á pönnu. Leggið eina
tortillaköku á pönnuna. Setjið fyll-
ingu á annan helminginn á tortilla-
kökunni og leggið hana saman.
Steikið báðum megin. Færið yfir á
bökunarplötu og setjið rifinn ost
ofan á hverja köku og bregðið und-
ir grill.
Hraðréttir slá í gegn
Nýjasta viðbót Matarvefsins er hinir stórsnjöllu Hraðréttir sem slegið hafa í gegn. Um er að ræða einföld kennslumyndbönd í matar-
gerð sem sýna á einfaldan og aðgengilegan hátt hvernig matbúa má úrvalsmat. Það eru engir aukvisar sem koma að gerð þáttanna
en meðal þeirra sem tekið hafa þátt í þróun uppskrifta eru Sirrý í Salt eldhúsi og matarbloggararnir Linda Ben og Svava Gunnars-
dóttir. Viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum og greinilegt að lesendur mbl.is eru ánægðir með viðbótina.
Ljósmyndir/Matur - Hraðréttir
25 stk.
250 g döðlur, saxaðar
120 g smjör
40 g púðursykur
2 msk. kakó
150 g hraunbitar, saxaðir
½ poki lakkrísreimar, skornar í litla bita
200 g súkkulaði
Bræðið smjör í potti og bætið döðlum út í. Sjóðið saman í 4-5 mín. Bætið púðursykri og kakói í
og hitið saman við þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar.
Blandið hraunbitum og lakkrís saman við og þjappið í form 20x20 cm stórt. Bræðið súkkulaðið
yfir vatnsbaði. Hellið því ofan á og kælið allt saman í um það bil 30 mínútur.
Skerið í litla bita, berið fram t.d. með bláberjum og myntu og dustið kakó yfir og njótið.
Hraunbita nammikökur
8 sneiðar
2 sítrónur, börkur af báðum og safi af einni (safi af 1½ ef þær eru mjög litlar)
140 g smjör
160 g sykur
80 g hveiti
2 msk. Örnu rjómi
2 egg
1 tsk. vanilludropar
200 g Örnu grísk jógúrt
150 g blönduð ber eða ávextir
nokkrar timian eða myntugreinar, má sleppa
2 msk. flórsykur
Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír í botninn á smelluformi sem er 20-22 cm í þvermál.
Þvoið sítrónurnar og þurrkið þær vel. Bræðið smjörið í litlum potti. Setjið sykur og hveiti í rúm-
góða skál. Hellið smjörinu, Örnu rjóma og vanilludropum út í og hrærið saman. Bætið eggjum,
sítrónuberki og safa út í og hrærið allt vel saman með sleif. Hellið hrærunni í formið og bakið
þetta í 20-22 mín. Látið kökuna kólna aðeins og losið hana síðan úr forminu og setjið á kökudisk.
Berið fram með Örnu grískri jógúrt, berjum og e.t.v. ferskum timiangreinum eða myntu. Dustið
yfir með flórsykri.
Sítrónukaka með
grískri jógúrt og berjum