Morgunblaðið - 28.06.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
innbyggðum gufugleypi
SpAnhellubORðmeð
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
lOSnAðu Við hÁfinn
Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til
margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru
með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu
hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest
um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni.
ÞÝSK VeRðlAunAhönnun
Sjámyndbönd á friform.is
5 ára ábyrgð á öllum raftækjum
fRÁbÆR
nÝjung
enginn hÁfuR
eKKeRtVeSen
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Lokað á laugardögum í sumar
Þótt heimsmeistarmótið í knatt-spyrnu sé ekki lengur stór
hluti af tilfallandi geðheilsu ís-
lensku þjóðarinnar hafa rússneskir
mótshaldarar engu að síður ákveð-
ið að halda því áfram. Þótt ákvörð-
unin komi nokkuð á
óvart þá er hún tal-
in vera í samræmi
við gildandi reglur.
Og á daginn kem-ur að áfram er
hægt að hafa drjúgt
gaman af öllu saman, og er jafnvel
notalegt að horfa á leikina án þess
að eiga kröfu á áfallahjálp.
Þeir sem lýsa knattspyrnu beintþegar þeir, sem landar þeirra,
eru að fara á límingunum geta
ekki alltaf haldið sig innan ramma
sem prófarkalesarar og pempíur
eins og Staksteinar þurfa að gera
og er þeim meira fyrirgefið en öðr-
um.
Það má ekki á milli sjá hversigrar,“ sagði okkar maður
forðum í miðjum leik, sem endaði
14-2. Og þegar landinn skoraði
fyrra mark sitt af þessum tveimur
mun hafa heyrst: „Nú gætu þeir
brotnað.“
Starfsbróðir þessa sagði í lands-leik: „Þessi leikur getur farið
alla vega. Það er ekki útilokað að
við kremjum sigur, jafntefli væri
auðvitað frábært, en margir telja
líklegt að okkar menn tapi. Mögu-
leikarnir eru sem sagt óend-
anlegir.“
Í leik Svía og Mexíkó í gærspurði lýsari þegar Mexíkó
fékk aukaspyrnu: „Ef Svíar stilla
upp varnarvegg, þurfa Mexíkanar
þá að borga hann?“
Var þar vísað í fræg kosninga-loforð Donalds Trumps.
Gleðin stendur enn
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 rigning
Bolungarvík 9 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 24 heiðskírt
Helsinki 25 heiðskírt
Lúxemborg 24 heiðskírt
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 24 heiðskírt
Glasgow 16 léttskýjað
London 25 heiðskírt
París 28 heiðskírt
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 24 heiðskírt
Vín 17 skúrir
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 24 léttskýjað
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 29 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 22 rigning
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 22 alskýjað
New York 22 alskýjað
Chicago 23 alskýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:01 24:02
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:17 23:45
„Sveppatíðin gæti orðið með góðu
móti í sumar og haust á Suðvestur-
landi, en sveppir mynda gjarnan ald-
in ef þeir fá hæfilega bleytu og hlý-
indi fyrripart sumars og ef sumarið á
undan hefur verið gott fyrir trén sem
eru hýslar margra sveppa,“ segir
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppa-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands. Hún segir horfur á góðum
vexti sveppagróðurs eftir nær sleitu-
lausa rigningu sem bulið hefur á
suðvesturhorninu í vor og það sem af
er sumri.
„En maður veit þó aldrei, það er
best að fara út og gá. Það er einn og
einn sem kemur á vorin, t.d. keilu-
morkill, en það er sveppur sem er æt-
ur og frést hefur af víða undanfarið,
og svo kúalubbi sem kemur yfirleitt
snemma, en hann vex með birki. Ald-
inin koma upp mestallt sumarið.“
Hún segir að fyrir norðan megi fara
að athuga með lerkisvepp upp úr
miðjum júlí. Sjálf fann hún svepp sem
aðeins hefur fundist tvisvar hérlendis
svo skjalfest sé, síðast árið 1903, á
skógardegi Skógræktarfélagsins í
Vaglaskógi sl. laugardag.
„Þetta er pínulítill, fölbleikur disk-
sveppur sem ég fann í visk af dauðri
klóelftingu,“ segir Guðríður Gyða,
hæstánægð með fundinn.
ernayr@mbl.is
Sveppir hafa gott af vætutíðinni
Ætisveppurinn keilumorkill lætur sjá
sig og von er á fleiri ætilegum
Ljósmynd/Hilmar Pálsson
Kemur snemma Keilumorkill er
víða kominn upp úr jörðinni.
Tveggja daga al-
þjóðaráðstefna á
vegum Hafrétt-
indastofnunar Ís-
lands og Korea
Maritime Insti-
tute hófst í Veröld
– húsi Vigdísar í
morgun. Yfirskrift
ráðstefnunnar er
Ný þekking og
hnattræn hlýnum.
Um fjörutíu sérfræðingar flytja erindi
á átta pallborðum á ráðstefnunni.
Meðal þeirra er Larry Mayer prófess-
or sem fjallar um hvaða eyjar í Kyrra-
hafinu gætu hugsanlega farið undir
við hækkun sjávarborðs. Snjólaug
Árnadóttir sem fjallar um áhrif hækk-
andi sjávarborðs á markalínur milli
hafsvæða ríkja og erindi Helgu Guð-
mundsdóttur sem fjallar um stöðuna
varðandi tilkall Íslands til land-
grunnsréttinda á Reykjaneshrygg ut-
an 200 mílna efnahagslögsögu.
Tómas H. Heiðar, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar, segir að Ísland
og Suður-Kórea hafi unnið náið sam-
an á undanförnum árum og hafrétt-
armál skipti löndin tvö miklu máli,
bæði vegna staðsetningar svo og
áhuga Suður-Kóreu á Norður-
Íshafinu.
Tómas H.
Heiðar
Hnattræn
hlýnun
Alþjóðaráðstefna
um hafréttarmál