Morgunblaðið - 28.06.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5á
ra
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
u
p
p
fy
llt
um
ák
væ
ð
u
m
áb
yr
g
ð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
n
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Sjö milljónum króna úr verkefninu
Glæðum Grímsey var úthlutað til sjö
samfélagseflandi verkefna í Gríms-
ey. Þetta kemur fram á vef Byggða-
stofnunar. Er Glæðum Grímsey hluti
af stærra verkefni Byggðastofn-
unar, sem nefnist Brothættar byggð-
ir.
Fjölbreytt verkefni
Meðal þeirra verkefna sem hlutu
styrk eru ferðir á sæþotum, eða „jet
ski“, við Grímsey, sem fengu 375.000
króna styrk og verkefnið „Grímseyj-
arpeysan“, sem fékk 230.000 króna
styrk. Þá fékk gistiheimilið Gullsól
rúmlega eina milljón króna í styrk
vegna stækkunar á palli, og Gríms-
eyjarskóli fékk 170.000 króna styrk
til verkefnisins „Eyjasamstarf“. Er
Helga Íris Ingólfsdóttir verkefn-
isstjóri fyrir verkefnið í Grímsey.
Samráð og mótun til framtíðar
Miðar verkefni Byggðastofnunar
að víðtæku samráði og því að virkja
þekkingu og getu íbúa byggðarlaga
til að móta framtíðarsýn, markmið
og lausnir. Enn fremur að virkja
frumkvæði og samtakamátt íbúa og
auka vitund þeirra um eigin þátt í
þróun samfélagsins, segir á vef
Byggðastofnunar. Meðal annarra
byggðarlaga í Brothættum byggð-
um eru Hrísey og Árneshreppur.
Hóf Grímsey þátt í verkefninu árið
2015 og lýkur þátttöku árið 2019.
Morgunblaðið/Golli
Við höfnina Mikil uppbygging er í Grímsey til samfélagseflandi verkefna.
Sæþotuferðir við
Grímsey styrktar
Hluti verkefnisins Glæðum Grímsey
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Umfang þjónustu við farþega með
skerta hreyfigetu eða mismunandi
fötlun sem fer um Leifsstöð hefur
ríflega sexfaldast á síðustu sjö árum.
Beiðnir um aðstoð við farþega vegna
skertrar hreyfigetu voru 8.102 árið
2010 en voru 51.325 í fyrra.
Díana Halldórsdóttir, umsjónar-
maður PRM, sem þjónustar farþega
með skerta hreyfigetu sem leið eiga
um Leifsstöð, segir að þjónustan eigi
við um fjölbreyttan hóp einstaklinga
og hafi verið að aukast ár frá ári.
„Þetta á við um fjölbreyttan hóp ein-
staklinga sem óska eftir aðstoð við
að ferðast um flugvelli vegna tak-
markanna sinna, sem geta verið af
ýmsum toga, til dæmis vegna líkam-
legrar eða andlegrar fötlunar og/eða
skerðingar, öldrunar, sjúkdóma,
slysa eða annarra ástæðna. Með
auknum farþegafjölda hefur um-
fangið vegna þessa verið að aukast
mikið undanfarin ár,“ segir Díana og
bætir við að til standi að auka fjár-
festingu á þessu sviði.
Securitas sinnir þjónustunni
„Fjöldi hjólastóla í dag er 99 og til
stendur að fjárfesta í fleirum. Til við-
bótar við hjólastólana erum við með
átta „cabin-stóla“, sem eru stólar
sem yfirleitt eru notaðir til að flytja
farþega úr hjólastól inn í flugvél í sitt
sæti. Þess utan erum við sérstakar
lyftur ef flytja þarf farþega upp eða
niður hæðir,“ segir Díana.
Til að sinna þjónustu við fólk með
skerta hreyfigetu hefur Isavia gert
þjónustusamning við Securitas.
Díana segir að allir starfsmenn sem
starfi á þessu sviðið þurfi að hafa lok-
ið sérstöku námskeiði. „Þetta er
námskeið sem veitir þeim fræðslu og
kunnáttu í því hvernig uppfylla á
þarfir fólks með mismunandi fötlun
eða skerta hreyfigetu,“ segir Díana,
en slík þjónusta getur falið ýmislegt í
sér. „Þjónustan felst meðal annars í
því að gera farþegum kleift að fara í
gegnum innritun, ná tengiflugi, kom-
ast um borð í flugvél og annað sam-
bærilegt,“ segir Díana.
Spurð hvort fyrrgreind þjónusta
standi öllu fólki með skerta hreyfi-
getu til boða kveður Díana já við. Þó
verði fólk að gera flugstöðinni við-
vart um einum og hálfum sólarhringi
fyrir brottför, ætli það sér að nýta
þjónustuna.
„Markmiðið með þjónustunni er
að allir einstaklingar hafi jafna
möguleika til að ferðast og geti tekið
þátt á sama hátt og við hin. Til að
þjónustan sé hins vegar eins og best
verður á kosið er mikilvægt að fólk
bóki þjónustuna með minnst 36
klukkustunda fyrirvara,“ segir
Díana.
Ríflega sexfalt fleiri
nýta aðstoð í Leifsstöð
Markmið þjónustunnar að jafna ferðamöguleika fólks
Aðstoð Þjónustunni er ætla að jafna möguleika fólks til ferðalaga.