Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 16
Vinnustofa Mislangur tími fer í gerð hvers og eins hlutar. Eru vinnudag-
arnir langir en engan bilbug er að finna á Bjarna sem er hinn ánægðasti.
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Fyrir rúmum 20 árum starf-aði maður að nafni BjarniViðar Sigurðsson semgjaldkeri í Búnaðarbank-
anum. Átti það þó eftir að breytast
þegar hann komst í kynni við leirlist
í Myndlistaskóla Reykjavíkur og hóf
í kjölfarið leirlistarnám í Danmörku
frá 1996 til 2000. Í dag selur Bjarni
vörur sínar víðsvegar um heiminn,
t.d. hjá bandarísku heimilisvöru-
keðjunni ABC Carpet and Home, en
einnig eru vörur hans notaðar á veit-
ingastað ABC í New York. Á síðasta
ári skrifaði Bjarni svo undir samn-
ing við hina þekktu dönsku verslun,
Illums Bolighus, sem gjarnan er tal-
in vera í fararbroddi fyrir danskar
og alþjóðlegar hönnunarvörur.
Bjarni, sem framleiðir allar
vörur sínar á vinnustofu sinni við
heimili sitt í Hafnarfirði, gaf sér
tíma til þess að ræða við blaðamann
Morgunblaðsins um samninginn við
Illums Bolighus, þróun síðustu ára
og framtíðina.
„Þú ert danskur fyrir okkur“
„Það byrjaði með því að aðal-
innkaupandi Illums Bolighus í
Kaupmannahöfn, Bo Overgaard,
mætti alltaf á markað danskra hand-
verkslistamanna í Kaupmannahöfn,
sem ég hef ávallt verið á síðustu 10
ár. Overgaard keypti af mér hina og
þessa muni árlega og var mikið að
fylgjast með. Hann hafði svo sam-
band við mig í fyrra og bað mig að
hitta sig næst þegar ég væri í Dan-
mörku. Þar sagði hann mér að Ill-
ums Bolighus í Kaupmannahöfn
hygðist koma á fót galleríi einungis
fyrir handunna hluti frá fimm
dönskum listamönnum. Ég sagði
honum að ég væri svo sem ekki
danskur en hann tók það ekki mál og
sagði að Bjarni Sigurðsson væri
danskur fyrir þeim,“ segir Bjarni,
spurður um forsögu þessa samnings
við Illums Bolighus.
Er úr mörgum listamönnum að
velja þegar kemur að keramiklist í
Danmörku og var það mikill heiður
að fá að vera hluti af þessum fimm
útvöldu listamönnum, segir Bjarni.
Hann bætir við að með þessu sé Ill-
ums Bolighus að endurvekja menn-
inguna í handgerðum munum, en Ill-
ums Bolighus, segir Bjarni, var í
upphafi starfseminnar mikið með
handunna muni en sú áhersla hafi
dalað þegar fjöldaframleiddir munir
komu inn með miklum krafti.
Sterk tengsl við Danmörku
Aðspurður hvort tengsl hans
við handverkssamfélagið í Dan-
mörku hafi spilað inn í það ferli að ná
samningi við Illums Bolighus, segir
Bjarni svo vera, en hann bjó í Dan-
mörku í sjö ár til viðbótar eftir að
hafa lokið fjögurra ára námi þar árið
2000. „Ég notaði þessi ár til þess að
skapa markaðinn í Danmörku og
eins og staðan er núna er ég einn
þeim þekktustu innan keramik-
heimsins í Danmörku,“ segir Bjarni.
Fyrir utan Illums Bolighus eru
vörur Bjarna seldar á yfir 20 öðrum
stöðum í Danmörku, t.d. á Louisi-
ana-nútímalistasafninu og á CLAY
keramiklistasafninu. Hefur Dan-
mörk almennt verið stór markaður
fyrir Bjarna frá því hann útskrif-
aðist úr leirlistarnáminu um síðustu
aldamót.
Kom það Bjarna dálítið á óvart
hve salan var góð hjá Illums Bolig-
hus í ljósi þess að handunnir hlutir
höfðu ekki verið mikið í sviðljósinu
þar síðustu ár. „Ég sendi t.d. í dag
[þriðjudaginn 26. júní ] vörur til Ill-
ums í Árósum, ég var að gera samn-
ing við þá en það er sitt hvort fyr-
irtækið, þ.e. Illums í Árósum og
Illums í Kaupmannahöfn, og nú er
ég að fara að framleiða fyrir búðina í
Kaupmannahöfn,“ segir Bjarni og
svarar spurningu blaðamanns að á
mánuði er hann að framleiða mörg
hundruð muna, langmest fyrir er-
lendan markað. „Eins og núna,
næstu tvær vikur, er ég líka að fara
að framleiða fyrir ABC og eru það
1.200 hlutir sem óskað er eftir.“
Allt handgert í Hafnarfirði
Þrátt fyrir mikla eftirspurn og
þær löngu vinnustundir sem því
fylgir er Bjarni enn harður á því að
handgera alla muni á vinnustofu
sinni í Hafnarfirði. Berst hann nú
fyrir því að fá leyfi til að stækka
heimili sitt þar sem vinnustofa hans
er. Er núverandi aðstaða svo að
segja að springa sökum umfangs.
„Ég er oft spurður og það eru marg-
ir sem fara út í það að láta fjölda-
framleiða fyrir sig en mér finnst að
hlutirnir deyi með því. Ég vil ein-
faldlega að allt ferlið fari í gegnum
mínar hendur. Það setur auðvitað
grensu á hvað maður nær að búa til
mikið, en á móti er það bara viss
sjarmi,“ segir Bjarni ákveðinn. Eru
allir hans munir skráðir með númeri
og eru einstakir hver á sinn hátt.
„Þannig að ef fólk hefur keypt t.d.
bolla og langar í annan svipaðan þá
get ég orðið við því, en ég geri aldrei
nákvæmlega eins hlut.“
Að sögn Bjarna lofar framtíðin
mjög góðu. Setti ABC Carpet and
Home-verslunarkeðjan það í algjör-
an forgang að halda samningnum við
Bjarna, sem vitaskuld vakti mikla
ánægju hans. „ABC leitar t.d. eftir
tilteknum glerungi og þá bý ég til
þeirra eigin vörulínu. Eru þetta
bæði stórar skálar auk smárra vasa
og bolla. Sumar skálarnar, sem not-
aðar eru á veitingastaðnum, eru þó
svo litlar að ég hélt að þau væru að
grínast. Það skondna er að það tekur
afar langan tíma að búa til smáu
hlutina, stundum lengri tíma en
stóru hlutina,“ segir Bjarni kátur.
Utan Bandaríkjanna er mark-
aðurinn í Danmörku í miklum vexti
en hérlendis hefur markaðurinn
ekki alveg tekið við sér „en fólk er að
vakna,“ segir Bjarni.
Verður sífellt skemmtilegra
Að lokum vaknar sú spurning
hjá blaðamanni hvort vinnuálagið
hafi einhver neikvæð áhrif á starfs-
áhugann, en Bjarni svarar að svo sé
alls ekki. „Þetta verður einungis
skemmtilegra. Ég passa líka upp á
það að þegar ég er að vinna mikið þá
endurnýja ég hjá mér bæði form og
glerunga og geri þetta skemmtilegt
fyrir mig. Öll vinna er vinna en þá
þarf maður á móti að vera duglegur í
því að skapa þannig að vinnan sé
skemmtileg,“ segir Bjarni að end-
ingu.
Bjarni í sérflokki hjá Illums Bolighus
Fyrir rúmum 20 árum
starfaði Bjarni Viðar
Sigurðsson sem gjaldkeri
í Búnaðarbankanum.
Starfsferill hans tók þó
allt aðra stefnu eftir að
hann komst í kynni við
leirlist um miðjan 10.
áratug síðustu aldar. Í
dag fást leirmunir
Bjarna víðsvegar um
heiminn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afraksturinn Bjarni Viðar Sigurðsson keramiklistamaður ásamt handverki í ýmsum sortum og litum, sem hann skapar á vinnustofu sinni í Hafnarfirði.
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Full búð af
fallegum sundfötum