Morgunblaðið - 28.06.2018, Qupperneq 20
Ljósmynd/Kjötkompaníið
Fagmenn Mikið hefur selst af grill- og lúxusvörum þegar Ísland hefur spilað á heimsmeistaramótinu í sumar.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Ég áætla að salan hafi aukist um
svona 40% í kringum leiki íslenska
landsliðsins,“ segir Hildur Sigrún
Guðmundsdóttir, fjármálastjóri og
meðeigandi Kjötkompanís, um sölu
á kjöti og öðrum sælkeravörum
meðan á þátttöku íslenska lands-
liðsins í heimsmeistaramótinu í
Rússlandi hefur staðið. Að sögn
Hildar seldist mest af grillpökkum
og hamborgurum, en þess utan
jókst salan almennt mikið. „Við
vorum að selja mikið af bæði lúxus-
og venjulegum vörum. Það fór
mjög mikið af grillpökkum hjá okk-
ur en í þeim fær fólk allan pakkann
og þarf bara að grilla kjötið. Auk
þess jókst hamborgarasalan mikið
eins og við var að búast þegar stór-
leikir Íslands fara fram,“ segir
Hildur.
Spurð hvort fólk væri fremur að
kaupa í matinn fyrir eða eftir leiki
segir Hildur að flestir hafi verið
snemma á ferðinni. „Traffíkin hélst
nokkurn veginn svipuð nema þegar
nær fór að draga leik dagsins hjá
Íslandi, þá jókst hún mikið. Fólk
sem var að kaupa kjöt á leikdegi
var í flestum tilvikum að gera það
fyrir leikinn,“ segir Hildur og bæt-
ir við að starfsmenn Kjötkompanís
séu sérlega svekktir með að liðið sé
fallið úr leik enda muni salan koma
til með minnka í kjölfarið. „Þátt-
taka Íslands var auðvitað lykilatriði
í aukinni sölu hjá okkur. Fólk
hættir samt ekkert að fylgjast með
HM þótt Ísland sé fallið úr leik.
HM mun því halda áfram að
ýta eitthvað undir söluna hjá
okkur,“ segir Hildur.
Sala í sælkera-
verslunum aukist
Svipaða sögu var að segja
hjá öðrum sælkeraverslunum
sem Morgunblaðið ræddi við.
Þar sögðust menn hafa orðið
varir við aukningu í sölu í
kringum leiki Íslands.
Sindri Þór Sigríðarson,
verslunarstjóri sælkera-
verslunarinnar Fisher-
man, segir að sala fyr-
irtækisins hafi aukist
mikið í sumar. Þátttaka
Íslands á HM eigi þátt í
því. „Það er erfitt að
greina þetta en það var
klárlega aukning þegar
Ísland átti leik,“ segir
Sindri.
Sala jókst mikið í
kringum leiki Íslands
Grill- og lúxusvörur afar vinsælar meðan á HM stendur
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Stema kerrurCompair loftpressur
Breitt úrval atvinnutækjaBreit úrval atvinnut kja
Stema kerrurCompair loftpressur
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
Heimagistingarvakt sýslumannins á
höfuðborgarsvæðinu verður efld til
muna í kjölfar þess að embættið gerði
samning við atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið sem tryggir 64 millj-
óna króna fjárframlag til átaksverk-
efnis þar um. Sýslumaðurinn á
höfuðborgarsvæðinu heldur úti
heimagistingarvakt, sem hefur með
höndum eftirlit með heimagistingu á
öllu landinu.
Með verkefninu er ætlunin að öðl-
ast yfirsýn yfir raunverulegt umfang
heimagistingar, tryggja rétt skattskil
einstaklinga og að lögaðilar sem
stunda gististarfsemi afli sér rekstr-
arleyfis og að starfsemin fari þar með
að lögum sem um hana gilda.
Lagt er upp með að átaksverkefnið
verði til eins árs og er markmiðið að
það hafi hvetjandi áhrif á einstaklinga
til að skrá skammtímaútleiguna sína
en frá 2017 hefur verið í gildi svoköll-
uð 90 daga regla sem felst í því að ein-
staklingum er heimilt að leigja út lög-
heimili sín eða eina aðra fasteign sem
er í þeirra eigu til allt að 90 daga á
hverju almanaksári án þess að lúta
sömu reglum um leyfi og gjöld og
gilda um atvinnurekstur. Þá er gert
ráð fyrir að starsfmönnum í heima-
gistingarvaktinni verði fjölgað úr
þremur í ellefu og koma þeir til með
að framkvæma vettvangsrannsóknir í
kjölfar ábendinga frá almenningi eða
á grundvelli upplýsinga sem fram
koma í frumkvæðiseftirliti.
Efla eftirlit með
heimagistingu
64 milljóna fjárveiting til sýslumanns
Undirritun Þórdís Kolbrún R. Gylfa-
dóttir og Þórólfur Halldórsson und-
irrita samkomulagið.
„Það er mjög erfitt að segja
til um hversu mikinn hluta
breytingarinnar má rekja til
HM,“ segir Sveinn Víkingur
Árnason, framkvæmdastjóri
ÁTVR, um sölu á áfengi í
kringum leiki Íslands á HM í
sumar.
Líkur eru á því að sala hafi
aukist vegna leikja Íslands á
HM en Sveinn Víkingur segir
að það geti líka verið vegna
annarra tilefna. Þar spili
inn í fjöldi hátíðarhalda af
ýmsu tagi í mánuðinum.
„Það er erfitt að fullyrða
eitthvað um sölu fyrir
svona stutt tímabil. Þá er
líka erfitt að bera saman
tímabil sem inniheldur
þjóðhátíðardaginn og há-
skólaútskriftir,“ segir
Sveinn Víkingur.
Hugsanleg
HM-áhrif
ÁFENGISSALA Í JÚNÍ
„Með þessari breytingu er verið að
færa reglurnar í fyrra horf,“ segir
Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrif-
stofustjóri skrifstofu ferðamála í
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu.
Í gær var kynnt á vef ráðuneyt-
isins að ekki sé lengur gerð krafa
um að allir gististaðir utan heima-
gistingar skuli vera starfræktir í
atvinnuhúsnæði. Krafan þótti of
takmarkandi út frá ráðstöfunar-
rétti fasteigna í eigu einstaklinga
og lögaðila, segir á vef ráðuneyt-
isins.
Sigrún Brynja staðfestir að
ábendingar hafi borist um að reglu-
gerð frá 2016 hafi getað orkað tví-
mælis og brugðist hafi verið við því.
Eftir sem áður mun leyfisveit-
andi enn afla umsagna við umsókn
um rekstrarleyfi hjá eftirtöldum
aðilum; sveitarstjórn, heilbrigð-
isnefnd, byggingarfulltrúa, slökkvi-
liði, Vinnueftirlitinu og lögreglu.
Jafnframt er gerð krafa um að
gististað skuli aðeins starfrækja í
húsnæði sem byggingaryfirvöld
hafa samþykkt og skuli vera í sam-
ræmi við gildandi skipulag á við-
komandi svæði en ekki verður leng-
ur gerð ófrávíkjanleg krafa um
skilgreiningu viðkomandi húsnæðis
sem atvinnuhúsnæðis. hdm@mbl.is
Taka upp
fyrri reglur