Morgunblaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Jemen Elín Oddsdóttir á vettvangi.
sett hvað varðar mannúðarmál í
heiminum.“
Ástandið hefur áhrif á alla þætti
fólksins í landinu. „Heilbrigðis-
kerfið hefur farið mjög illa síðast-
liðin ár vegna stöðugra átaka, allur
varningur og heilbrigðisþjónusta er
takmörkuð og eins er með
drykkjarvatn og hreinlætis-
aðstöðu,“ segir Elín.
Staðan er grafalvarleg. Elín
bendir á að frá upphafi átakanna
hafi ICRC dreift til fólks í landinu
mat, hreinu vatni og nauðsynlegum
hlutum til heimilishalds. Einnig sé
lögð mikil áhersla á heilsugæslu, að
koma í veg fyrir útbreiðslu kóleru,
mislinga og barnaveiki og að með-
höndla þessa sjúkdóma. Auk þess
útvegi Alþjóða Rauði krossinn
sjúkrahúsum og heilsugæslu-
stöðvum í landinu nauðsynleg tæki
og ákveðinn útbúnað til að sinna
særðum, lyfjum og öðrum nauð-
synjum til að reka heilsugæslu og
eða sjúkrahús. „Með þessu er hægt
að sinna særðum og almennum
borgurum auk þess sem skurðteymi
vinna við að gera lífsnauðsynlegar
aðgerðir á þeim sem særast í átök-
unum,“ áréttar hún.
„Yfir 80% þjóðarinnar skortir
mat, eldsneyti, drykkjarvatn og að-
gang að heilbrigðisþjónustu,“ held-
ur Elín áfram. „Þar af leiðandi eru
almennir borgarar sérstaklega við-
kvæmir fyrir sjúkdómum sem al-
mennt er auðvelt að meðhöndla eða
jafnvel útrýma annars staðar í
heiminum. Í desember sem leið
kom upp kólerufaraldur í Jemen,
um ein milljón manns smitaðist og
þrátt fyrir að kólera sé læknanleg-
ur sjúkdómur dóu þúsundir manns
hér vegna aðstæðna.“
Átökin bitna mest á almennum
borgurum í Jemen. „Í byrjun maí
síðastliðins voru mjög öflugar loft-
árásir hér í Sanaa, höfuðborg Jem-
en, á þéttbyggt hverfi þar sem dóu
að minnsta kosti fimm almennir
borgarar, þar af eitt barn, og fjöldi
manns særðist,“ segir Elín og legg-
ur áherslu á að Alþjóða Rauði
krossinn hvetji stöðugt stríðandi
fylkingar til að virða þau lög sem
gilda í stríði og sjá til þess að al-
mennum borgurum sé hlíft.
Strangar öryggisreglur
Elín segir að starfsfólk ICRC
þurfi að fylgja mjög ströngum ör-
yggisreglum. „Við höldum okkur
innan veggja þar sem við búum eða
höfum skrifstofuaðstöðu. Við erum
aldrei úti við nema í bílum þegar
farið er til skrifstofu eða á sjúkra-
hús frá þeim stað sem við búum.
Stundum fáum við leyfi til að fara á
markaðinn, ef öryggisaðstæður
leyfa, í stutta stund og þá sér-
staklega á stöðum fyrir utan höfuð-
borgina.
Hér eru sendifulltrúar alls staðar
að úr heiminum og einnig vinnum
við með Jemenum og óhætt er að
segja að hér er hópur af góðu
fólki.“
Elín segir mikilvægt að vekja
stöðugt athygli á ástandinu í Jemen
í þeirri von að það lagist. „Þegar
átök eins og þessi hafa staðið í
langan tíma virðast þau gleymast,
almenningur verður hálf ónæmur
fyrir síendurteknum fréttum frá
þessum átakastöðum og jafnvel
verður þetta ekki fréttnæmt efni
lengur, eitthvað annað tekur við.
En það skiptir miklu máli að
gleyma ekki öllu því fólki, konum,
börnum og mönnum, sem þjáist og
deyr, sem er í sjálfheldu mitt í
þessum átökum og hefur enga
möguleika á að komast í burtu.
Börn lifa í stöðugri ógn, án öryggis
og matar, hafa ekki möguleika á
skólagöngu, deyja úr sjúkdómum
sem vel er hægt að meðhöndla ef
lyf eru við höndina. Allt þetta fólk
lifir við þessar aðstæður sem það
ræður ekkert við.“
Yfir 80% íbúa Jemen búa við neyð
Elín Jakobína Oddsdóttir er skurðhjúkrunarfræðingur hjá ICRC í Jemen Erfitt að tryggja ör-
yggi hjálparstarfsmanna og heilbrigðiskerfið í rúst vegna stöðugra átaka Íbúarnir í sjálfheldu
AFP
Aðstoð í Jemen Margir íbúar Hodeida hafa flúið heimkynni sín og hafast nú við í búðum í Abs-héraði í norðurhluta
Jemen. Þeir treysta á utanaðkomandi hjálp. Þá kemur til kasta Alþjóða Rauða krossins og annarra hjálparsamtaka.
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Alþjóða Rauði krossinn, ICRC,
flutti 71 starfmann frá Jemen um
miðjan mánuðinn vegna ótryggs
ástands í landinu. „Vegna endurtek-
inna atvika og ógna hefur verið
mjög erfitt að tryggja öryggi
starfsmanna,“ segir Elín Jakobína
Oddsdóttir, skurðhjúkrunarfræð-
ingur hjá ICRC.
„Vegna þessa ástands hefur verið
erfitt að veita þá aðstoð sem nauð-
synleg er, eins og að gera skurð-
aðgerðir á særðum, sinna þeim sem
eru í haldi í fangelsum og útdeila
hreinu vatni og mat til þeirra sem
eru í neyð.“ Hún bætir við að ICRC
taki það fram að ekki sé hægt að
una við þá ógn sem nú beinist að
starfsmönnum og þess vegna sé
gripið til þessara ráðstafanna.
Elín tók nýlega við stöðu hjá
ICRC sem sérfræðingur á heil-
brigðissviði (e. Regional Health
Specialist) fyrir Norður-Afríku og
Mið-Austurlönd, níu lönd samtals,
með búsetu í Kaíró í Egyptalandi
næstu tvö árin. Hún starfar sem
skurðhjúkrunarfræðingur í fimm
manna teymi sem gerir meðal ann-
ars aðgerðir á þeim sem særast í
átökunum í níu löndum, en auk
hennar eru í teyminu skurðlæknir,
almennur hjúkrunarfræðingur,
svæfingalæknir og verkefnisstjóri.
Hún fór fyrst sem skurðhjúkr-
unarfræðingur og verkefnisstjóri til
Jemen 2015 og í fyrstu tveimur
ferðunum var hún lengur í landinu í
hvort skipti en í núverandi stöðu,
sem kallar á fleiri en styttri ferðir.
Ástandið hvergi verra
„Átökin í Jemen, einu fátækasta
landi heims, hafa staðið í á fjórða
ár. Það segir allt sem segja þarf,“
segir hún um stöðuna og breyting-
arnar frá því að átökin hófust. „Með
meira en 20 milljón manns í sárri
neyð fyrir aðstoð er óhætt að segja
að Jemen er það land sem er verst
Eva Hlín Dereksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Raftákns verk-
fræðistofu, hlaut hæstu meðal-
einkunn í MBA-námi í Háskóla
Íslands frá upphafi en námið hófst
árið 2000. Egill Jóhannsson, for-
stjóri Brimborgar, hafði hlotið
hæstu einkunn MBA-námsins frá
upphafi árið 2017. Einnig hlaut
Þórhallur Gunnarsson, dagskrár-
gerðarmaður og framleiðslustjóri
hjá Sagafilm, viðurkenningu fyrir
hæstu einkunn í kennslumati en
hann kennir námskeiðið Miðlun
upplýsinga í MBA-náminu ásamt
Andrési Jónssyni almannatengli.
Fjöldi annarra viðurkenninga
var afhentur við útskrift MBA-
námsins.
MBA Eva Hlín Dereksdóttir varð hæst.
Eva Hlín með hæstu
einkunn í MBA-námi
Björg Ágústs-
dóttir verður nýr
bæjarstjóri
Grundarfjarðar-
bæjar. Gengið
var frá þessu á
fyrsta fundi ný-
kjörinnar bæjar-
stjórnar og var
tillaga um ráðn-
inguna samþykkt
samhljóða.
Björg er Grundfirðingur, lög-
fræðingur að mennt, með mast-
ersgráðu í verkefnastjórnun, MPM,
og diplóma í opinberri stjórnsýslu
og stjórnun. Björg var bæjarstjóri í
Grundarfirði á árunum 1995-2006.
Björg bæjarstjóri í
Grundarfirði á ný
Björg
Ágústsdóttir
Vottar Jehóva á Íslandi halda sitt
árlega landsmót helgina 29. júní til
1. júlí. Að þessu sinni er mótið hald-
ið í Háskólabíói. Í fréttatilkynningu
segir að dagskráin sé sú sama og
flutt sé á sams konar mótum í 180
löndum.
Yfirskrift landsmótsins í ár er
„Verum hugrökk“. Dagskráin er að
mestu sett fram í stuttum ræðum
þar sem nokkrar ræður mynda
ræðusyrpu undir einu meginstefi. Í
flestum ræðunum er brugðið upp
stuttum myndskeiðum til útskýr-
ingar og áherslu.
Vottar Jehóva með
árlegt landsmót
STUTT
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
RayBan 3016 sólgleraugu
kr. 22.900,-
Sumarið er hér
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!