Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Ég kalla mig alltaf GDRN [gé dé
err enn] en svo er fólk að fatta að
þetta er Guðrún og finnst það mjög
merkileg uppgötvun, þannig að ég
leyfi fólki svolítið að ráða,“ segir hin
22 ára söng- og tónlistarkona Guð-
rún Ýr Eyfjörð um listamannsnafnið
sitt GDRN. „Sagan á bak við nafnið
er sú að við vorum að fá fyrsta lagið
okkar úr masteringu frá Styrmi sem
sér um það fyrir okkur og hann
sendi skrána til baka undir nafninu
„mix gdrn“ og okkur fannst það bara
svo flott,“ segir GDRN og hlær.
Guðrún hefur verið viðloðandi
tónlist frá blautu barnsbeini, hóf
klassískt fiðlunám þegar hún var
fimm ára og var lengi í því. Þegar
hún byrjaði í menntaskóla hættu
fiðlan og klassíkin að höfða til henn-
ar. „Ég fékk ekki mitt frelsi í klass-
íkinni. Hún er skrifuð á ákveðinn
máta og þú átt ekki að fara mikið út
fyrir það. Þannig að ég byrjaði í
djasssöngnámi þar sem má frekar
brjóta reglurnar,“ segir GDRN. „Ég
kynntist svo strák þegar ég var í MR
sem heitir Teitur og hann var að
gera tónlist með öðrum strák sem
heitir Bjarki undir nafninu ratio. Við
vorum svo bara eitthvað að prófa og
leika okkur og ákváðum að gefa út
lag sem heitir Ein. Í kjölfarið á því
hefur útgáfufyrirtækið Alda sam-
band við okkur og býður okkur
plötusamning,“ segir GDRN sem
hefur á rúmu ári farið á mikið flug á
íslensku tónlistarsenunni. „Við erum
búin að vera rosa dugleg undanfarið
og erum klár með plötu sem kemur
út á næstunni,“ segir GDRN en nýj-
asta smáskífan af plötunni kom út í
síðustu viku, lagið Lætur mig, sem
hún gerir ásamt hinum vinsæla
rappara Flóna. „Við Flóni höfum
þekkst í svolítinn tíma og talað lengi
um að gera lag saman en svo gerðist
ekkert,“ segir GDRN sem sendi svo
loks grunninn að Lætur mig til hans
og hann sló til og lagið varð til á einu
kvöldi. GDRN og félagar gerðu
einnig mjög metnaðarfullt mynd-
band við lagið leikstýrt af Ágúst Elí
Ásgeirssyni sem útheimti alls konar
vesen. „Það sést ekki í myndbandinu
en við erum að labba á hlaupabretti
allt myndbandið. Ég var búin að
græja hlaupabretti en þegar ég fór
að sækja það kom í ljós að þetta var
stigvél. Þannig að ég var komin á
fullt á brask og brall og allar face-
bookgrúppurnar að leita að hlaupa-
bretti sem ég mætti taka í sundur og
mála grænt,“ segir GDRN og hlær
en á endanum fannst hlaupabretti
sem þau gátu notað og útkoman varð
glæsileg.
GDRN segist stefna að því að vera
búin að leggja lokahönd á plötuna
sína fyrir 1. júlí en platan kemur svo
út síðar á árinu. Hægt er að fylgjast
með GDRN á Facebook og Insta-
gram undir nafninu @gdrnmusic.
Tónlistina hennar er að finna á
Spotify. Sjáðu allt viðtalið við
GDRN á k100.is.
Hún skaust fram á sjónarsviðið í fyrra með lagið Ein og hefur síðan
þá m.a. komið fram á Iceland Airwaves og Secret Solstice. Nú er hún
búin að senda frá sér nýtt lag og metnaðarfullt myndband þar sem
grænt hlaupabretti gerði gæfumuninn.
Grænt hlaupabretti
gerði gæfumuninn
Hiti GDRN ásamt
Flóna í myndband-
inu við Lætur mig.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
rikka@mbl.is
„Þetta var eins og að fara úr
Lödu í Lexus,“ sagði Rúnar Freyr
við komuna til Rostov eftir rúmlega
ellefu klukkustunda rútuferðalag
frá Volgograd. „Það er ansi strangt
hérna eftirlitið og stoppaði lög-
reglan rútuna þrisvar sinnum á
leiðinni í fjörutíu mínútur í senn
þar sem allir þurftu að afhenda
FAN ID sem fóru í hrúgu til lög-
reglumannanna sem þarna stóðu
með stóra hatta og handskrifuðu
svo nöfnin niður til að kortleggja
þetta allt saman.“
Rúnar Freyr var orðinn hás eftir
öll lætin þegar við heyrðum í hon-
um í gær í morgunþættinum Ísland
vaknar á K100 þar sem hann lýsti
magnaðri stemningu á leik Íslands
og Króata. Á ferðalaginu var margt
að sjá og upplifa en Rúnar Freyr
tók nokkrar myndir sem lýsa
stemningunni á ferðalaginu.
Stuðningsmenn Á leikdag í Volgograd var tiltölulega fátt um Nígeríumenn en
þessi fríði flokkur sló þó rækilega í gegn með hrífandi hljóðfæraslætti, sérstaklega
kokkurinn til vinstri, en skýringin á bak við kokkagervið er ennþá hulin ráðgáta.
Rúnar Freyr var okkar maður í Rússlandi og fór bæði á Ísland-Nígería
sem og leik Íslendinga við Króata. Hann segir landið fjölbreytt og muninn
á borgunum Rostov og Volgograd mikinn.
Ísland vaknaði
í Rússlandi
Skemmtanastjórar Jón
Jónsson og Friðrik Dór
voru skemmtanastjórar í
ferðinni og stóðu sig vel.
Jónsmessuhappdrætti
Sjálfsbjargar
Dregið var þann 24. júní 2018
1. Skemmtisigling á vegum Úrval Útsýn að verðmæti
kr. 1.500.000,-. 13089
2. - 6. Draumaferð að eigin vali hjá Úrval Útsýn hver að verðmæti
kr. 500.000,-
10309 21907 24888 26241 29019
7. - 14. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu hver að verðmæti kr. 250.000,-
2678 8641 11740 13294
17078 18714 22201 23672
15. - 39. Ferð að eigin vali hjá Úrval Útsýn hver að verðmæti kr. 150.000.-
1098 1383 3062 4386 4730
5382 8473 9674 11354 11785
12803 14165 14188 15323 15489
15529 18644 18944 20458 22035
25960 25987 27834 28450 29787
40. - 59. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu hver að verðmæti kr. 100.000.-
737 810 1732 1852 1920
2116 2479 2591 2633 2702
2996 3509 4578 4661 4885
6046 8073 8775 8984 9013
60. - 100. Vöruúttekt hjá Samsungsetrinu hver að verðmæti kr. 75.000.-
9160 9256 9890 10255 10557
10910 11884 11886 12349 12391
12583 12629 14938 14955 15008
15029 15191 15615 15827 15843
16233 16853 16907 16971 17164
17756 18299 19302 19394 19857
20720 21173 21307 22818 22876
23162 24479 24640 25782 28103 29319
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12,
Reykjavík, 3ja hæð, opið milli kl. 10.00 – 15.00 - sími: 5500-360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 12. júlí 2018.
Vinningaskrá er einnig birt á vefsíðu samtakanna, www.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra þakkar landsmönnum veittan
stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer (birt án ábyrgðar):