Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 62

Morgunblaðið - 28.06.2018, Síða 62
62 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Lífið er gott í Frakklandi; við fjölskyldan erum núna í 30 stigahita í Marseille og njótum lífsins. Förum í gönguferðir umborgina, skoðum mannlífið og svo eru hér góð veitingahús,“ segir Ólafur Grétar Kristjánsson, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu, sem er sextugur í dag. Ólafur Grétar las m.a. félagsfræði, hagsögu og íslensku í háskóla. Aflaði sér seinna kennsluréttinda og nam opinbera stjórnsýslu, eftir að hafa lært stálsmíði og unnið við það sem og sinnt kennslu í fram- haldsskóla. Hann hóf störf í ráðuneyti menntamála árið 1996 og hefur þar einkum sinnt málum sem snúa að starfsmenntun og iðnnámi. „Ég er innfæddur Reykvíkingur en á ættir að rekja austur í Flóa, norður á Tjörnes og í Húnavatnssýslur þar sem ég var í sveit. Mér finnst alltaf gaman að vita hver er hvaðan og hverjar rætur fólks eru. Hef einfaldlega áhuga á fólki og finnst gaman að velta mannlífinu og blæbrigðum þess fyrir mér. Einnig að lesa bækur; ég tek lykilbækur Laxness reglulega fyrir og núna er það Sjálfstætt fólk. Þá var ég ný- lega að lesa Brekkukotsannál, þar sem segir meðal annars frá for- móður minni, Finnbjörgu Finnsdóttur,“ segir Ólafur Grétar, sem er fastagestur í Vesturbæjarlauginni og skrifari og félagi í Hlaupa- samtökum lýðveldisins. – Eiginkona Ólafs er Íris Arnardóttir, leik- skólastjóri á Vesturborg. Börn þeirra eru tvö, Hildur danskennari og Gunnar verkfræðingur. Sambýlismaður Hildar er Neil John Smith, grafískur hönnuður. Börn hans eru Sóley og Jón Kári. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykvíkingur Ólafur Grétar Kristjánsson á rölti við Lækjartorg. Með fjölskyldunni í Frakklandsferð Ólafur Grétar Kristjánsson er sextugur í dag H aukur Snorrason fæddist 28. júní 1968 í Reykjavík. Hann sleit barnsskónum í Kópavogi og bjó svo í Garðabæ fram á tvítugsaldur. Síðan hefur hann búið í Reykjavík. Hvert sumar frá sjö ára til 18 ára aldurs fór hann í sveit á Hnappavelli í Öræfum og vann svo sumarstörf við áburðarflug í Gunnarsholti 1988 og 1989. Haukur rekur nú ferðaþjón- ustu fyrir ljósmyndara og á sama tíma sveitahótel í Hrífunesi, Skaft- ártungu. Haukur var í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ og svo nemi í ljós- myndun hjá Skyggnu Myndverki 1989-1993. Það var ljósmynda- vinnsla og stúdíó sem Einar Er- lendsson og Kristján Pétur Guðna- son ráku. Hann tók einkaflug- mannspróf árið 1990 og hefur verið Haukur Snorrason, ljósmyndari og leiðsögumaður – 50 ára Afmælisbarnið Haukur Snorrason mundar ljósmyndavélina, verkfærið sem fylgir honum flest sem hann fer. Á ferð og einkum á flugi Fjölskylda flugmanna Haukur og bróðir hans Jón Karl með börnin, Heiði Helgu Jónsdóttur og Sigurð Snorra Hauksson, á Fagurhólsmýri í Öræfum. Sunna Dís Þórðardóttir og Hrafnhildur Kara Halldórsdóttir söfnuðu dósum á Akureyri og gáfu Rauða krossinum við Eyjafjörð. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.