Morgunblaðið - 28.06.2018, Page 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2018
Af sveppum, fuglum og gömlum buxum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kunnuglegt Eva Ísleifsdóttir hittir naglann á höfuðið í verkinu „Exiting...“ sem er kunnuglegt ljósaskilti í yfir-
stærð, manneskja á hlaupum og ör sem vísar útgönguleið, nema að í þessu tilfelli er hluti skiltisins grafinn í jörðu.
úr grágrýti sem á hafa verið grafn-
ar fundnar setningar af internet-
inu. Þar er um að ræða annan hluta
skúlptúrs Steingríms Eyfjörð og
Unnars Arnar, „Vöktun“, sem unn-
inn er í samstarfi við steinsmiðju,
en hinn hlutinn er á göngustíg á
milli Grensásvegar og Háaleitis-
brautar. Í verkinu vísa þeir til ann-
ars konar rýmis internetsins sem er
á mörkum þess að vera persónulegt
og opinbert rými, og skilin þar á
milli eru alls ekki skýr. Hvar, hver
og hvenær er verið að fylgjast með
þér? Brotin raðast hér hvert ofan á
annað líkt og rústum framtíðar hafi
lostið niður í jaðri leikvallar í miðri
íbúðarbyggð á táknrænan hátt.
Smáíbúðahverfið sem byggðist
upp á sjötta áratugnum ber með sér
ýmis einkenni þess tímabils, stærð
húsanna tók mið af byggingar- og
húsnæðislánareglum þess tíma og í
dag má sjá hvar framkvæmdir og
ýmiss konar viðbyggingar hafa
breytt ásýnd húsanna, stundum
með misjöfnum árangri, að minnsta
kosti út frá fagurfræðilegu sjón-
armiði. Verk Steinunnar Önnudótt-
ur, „Casablanca“, tengist hverfinu
bæði á formrænan og hugmynda-
fræðilegan hátt. Hún beinir sjónum
sínum að formeinkennum húsanna
sem eru smám saman að hverfa
sjónum og raðar saman í skúlptúr
úr galvaníseruðu járni sem rís eins
og eins konar öndvegissúla á litlu
grænu svæði ofan við Háagerði.
Alls eiga tólf listamenn verk á
sýningunni, þar á meðal er danski
listamaðurinn Søren Engsted sem
sýndi á Feneyjatvíæringnum í
fyrra. Leikgleði ræður ríkjum í
fjórum skúlptúrum hans sem kall-
ast „Big Love“. Hann notar gamlar
buxur frá félagsmönnum Mynd-
höggvarafélagsins og mótar síðan
vinnufatnaðinn, fyllir hann með pó-
lýúretanfroðu og kemur fyrir á
marmarastöplum á malarbletti við
Grensásveg. Á grasbletti á bak við
Grensáskirkju má svo sjá hvar tím-
inn hefur stöðvast þegar gengið er
fram á heiðbláan plastfugl sem
liggur á hliðinni og ryðgaðir hlekk-
ir með kólfum á endanum minna á
gangverk gauksklukku í verkinu
„Kúkú tímar“ eftir Þór Sigurþórs-
son. Verk Dagnýjar Guðmunds-
dóttur „Eitthvað til að bíta í“ er
vistræktarskúlptúr, eða hraukabeð
gert úr lífrænum efnum. Hola hefur
verið grafin í jörðina og síðan fyllt
með tjábolum, greinum og mold
sem matjurtum hefur verið plantað
í. Hægt niðurbrot á sér stað í
haugnum sem gefur beðinu nær-
ingu og hita svo það er sjálfbært og
þarf ekki að vökva. Um leið og
plönturnar vaxa og dafna geta íbú-
ar sótt sér kryddjurtir í matreiðsl-
una og tekið þátt í að viðhalda lif-
andi skúlptúr í nærumhverfi sínu.
Sæki hungur að listhneigðum
göngugörpum er hægt að bragða á
Fungiland-sveppaborgara á Le
Kock í Ármúla og skoða stutt víd-
eóbrot á meðan ætum skúlptúr er
sporðrennt. Á sunnudögum frá kl.
12-14 og 20-22 er síðan hægt að
bregða sér í sunnudagsbíó í tveim-
ur gámum við Álftamýri, en þar er
á ferðinni einn hluti af innsetningu
listamannatvíeykisins Kristinn-
Peter (Kristins Guðmundssonar og
Peter Sattler) „Fungiland“. Í gám-
unum fer einnig fram ostrusveppa-
rækt í kaffikorgi. Dimmt og rakt er
í öðrum gámnum þar sem svepp-
urinn hefur kjöraðstæður til að
byrja að vaxa áður en hann er færð-
ur í birtuna í hinum gámnum. Lista-
mennirnir hafa búið til tvo sveppa-
karaktera sem eru að reyna að
skilgreina sjálfa sig og tilverurétt
sinn í vídeóverkinu „Whiter Shades
of Pale“. Sveppur er ófrumbjarga
lífvera sem lifir alltaf í samlífi við
aðrar lífverur, hann er kynlaus og
háður ákveðnum skilyrðum til að
dafna. Verk KristinnPeter býður
upp á ýmsar áhugaverðar hugleið-
ingar um samtímann, þeir velta fyr-
ir sér hvernig það er að taka sér
bólfestu í framandi umhverfi og
setja í samhengi við eftir-nýlendu-
fræði. Völd yfir landsvæðum hafa
færst yfir til fyrirtækja sem kaupa
upp svæði og neita jafnvel íbúum
um aðgang að lífsnauðsynlegum
auðlindum eins og vatni. Sveppur
er lífvera sem dafnar vel í einhvers
konar rústum og getur gætt dauð
svæði lífi á ný en getur líka tekið
sér bólfestu í öðrum lífverum og
tekið þær yfir.
Á sýningunni takast listamenn
á við ýmsar aðkallandi spurningar
um samtímann sem tekur stöðugum
breytingum, og um skilning og
samlíf mannsins á og með jörðinni,
hvernig er hægt að hugsa hlutina
uppá nýtt. Auk verka listamanna
eru þrír staðir á korti sýning-
arinnar sem eru ekki eiginleg lista-
verk heldur valdir staðir sýning-
arstjóra sem hann kallar „Mögu-
leiki lífs í rústum kapítalismans“.
Einn þeirra er yfirgefin gróðr-
arstöð sem má muna fífil sinn feg-
urri. Gróðrarstöðin Grænahlíð
þjónaði hlutverki sínu frá 1944 til
2002. Það er kannski lýsandi fyrir
samtímann að það hentar ekki
lengur að vera með gróðrarstöð í
miðju íbúðarhverfi, reiturinn bíður
framkvæmda þar sem væntanlega
munu rísa byggingar sem fylla út í
leyfilegt byggingamagn lóðar-
innar. Þrír gamalgrónir versl-
unarkjarnar eru einnig nýttir sem
sýningarrými; Austurver, Miðbær
og Grímsbær. Það skýtur einhvern
veginn skökku við að labba með
nauðsynjar í plastpoka út úr hverf-
isversluninni og ganga fram á ljós-
myndaseríu Guðrúnar Nielsen, sem
sýnir íslensk plastfjöll, „landslags-
“myndaröð sem tekin er í miðri
borginni. Verkin bera táknræna
titla eins og „Plastfjall“ og „Við
rætur plastfjallsins“ og eru áminn-
ing um það sem bíður komandi kyn-
slóða. Á hvaða leið er samtíminn?
Eva Ísleifsdóttir hittir einmitt nagl-
ann á höfuðið í verkinu „Exiting...“
sem er kunnuglegt ljósaskilti í yfir-
stærð, manneskja á hlaupum og ör
sem vísar útgönguleið, nema að í
þessu tilfelli er hluti skiltisins graf-
inn í jörðu líkt og það hafi lent fyrir
tilviljun innan um stórar hótelbygg-
ingar og verslanir. Örin vísar niður
og verk Evu ber með sér sterka ír-
óníu en um leið er undirtónninn
grafalvarlegur.
» Sæki hungur aðlisthneigðum göngu-
görpum er hægt að
bragða á Fungiland-
sveppaborgara á Le
Kock í Ármúla og skoða
stutt vídeóbrot á meðan
ætum skúlptúr er sporð-
rennt.
Casablanca Verk Steinunnar
Önnudóttur er ofan við Hágerði.
Plastfjöll Hluti ljósmyndainnsetningar Guðrúnar Nielsen í Grímsbæ. Á ljós-
myndunum má sjá fjöll af plasti sem eru áminning um það sem koma skal.
AF MYNDLIST
Aldís Arnardóttir
aldisarn@internet.is
Einn af viðburðum í þéttskip-aðri dagskrá Listahátíðar íReykjavík er útisýningin
Fallvelti heimsins sem haldin er á
vegum Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík sem stendur yfir til 18.
ágúst. Sýningin er sú fyrsta í röð
fimm sýninga sem nefnast Hjólið og
fyrirhugað er að setja upp árlega
til ársins 2022 þegar Myndhöggv-
arafélagið mun fagna 50 ára af-
mæli. Sýningarstjórn í ár er í hönd-
um Heiðars Kára Rannverssonar,
sem valdi henni stað í blandaðri
íbúðarbyggð og á atvinnusvæði
borgarinnar þar sem alla jafna er
ekki mikið af listaverkum að sjá.
Sýningin þræðir sig eftir hjólastíg-
um Háaleitis-, Múla- og Kringlu-
hverfis, Leitin og Gerðin auk Bú-
staða- og Smáíbúðahverfisins.
Heiti sýningarinnar Fallvelti
heimsins vísar í örlaga- eða ham-
ingjuhjólið Rota Fortunae frá mið-
öldum sem á rætur í forlagahyggju
mannsins þegar gæfa manna var í
höndum gyðjunnar Fortúna, sem
sneri hjóli sem menn voru fastir á
og aðeins sumum auðnaðist gæfa
og gengi í lífinu. Hjólið er tákn um
framvindu og hringrás en vísar
einnig til heimsins, þar sem jarð-
arhvelið er á eilífum snúningi. Í
samtímanum hefur hugtakið mann-
öld verið notað til að lýsa skeiði þar
sem maðurinn hefur sífellt meiri
áhrif á heiminn og er mótandi afl í
umbreytingum jarðar með áður
óþekktum hætti.
Það er skemmtilegur göngutúr
að labba um svæðið með kort í leit
að list, það getur verið djúpt á sum-
um verkunum enda teygja þau sig
yfir svæði, almannarými, sem fáir
aðrir en íbúar þess hverfis eiga er-
indi til alla jafna. Undirrituð minn-
ist þess ekki að hafa komið fyrr í
Grundargerðisgarð, en þar er að
finna skúlptúr Guðrúnar Nielsen,
„Hofið“, þar sem fimm píramídar á
hvolfi með álímdum myndum frá
endurvinnslu sorps í Gufunesi
mynda rými fyrir fólk til íhugunar
eða jafnvel til að létta á sálinni. Við
enda Skálagerðis er að finna brot
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Rétta
þjálfunin
sem veitir vellíðan!
Haustkortið á sérstökum
sumarafslætti 43.900 kr.
Tilboð gildir dagana 20. - 29. júní!