Breiðfirðingur - 01.04.1956, Qupperneq 5
^ÍÆm l^LzifkkóHa
Ég veit, að þér er kærkomið að fá til birtingar allt það,
sem breiðfirzkt er og einkanlega sé það þess eðlis að varð-
veita minningu um eitthvað af því, sem hinn nýrri hefur
breytt og er að breyta, en þar á meðal eru hin fornu fjöl-
mennu heimili. Þess vegna sendi ég þér nú hjálagða mynd,
hún er af heimilisfólkinu á Reykhólum sumarið 1902 eða
1903, tekin af Jóni Guðmundssyni í Ljárskógum. A mynd-
inni eru 38 manns, þar af er þrennt sumarlangt, hitt allt
ársfólk. Aftur vantar á myndina 5 af því fólki, sem átti
þar heima á sama tíma. Eg býst við, að þetta þyki allmargt
fólk á einu heimili, en þó vil ég geta þess að þetta er engan
veginn, þegar flest var á bænum, t. d. hafði árið áður eða
sama vorið flutzt þaðan Oddur læknir Jónsson, en honum
fylgdu a.m.k. 7 manns. Hann hafði að sjálfsögðu sér mötu-
neyti á heimilinu.
Það lætur að líkum, að mikið hafi þurft til að brauð-
fæða allan þennan hóp af fólki; létti þar mikið undir, hvað
jörðin var í þá daga hlunnindagjöful, enda var þá allt nýlt
til hins ýtrasta, sem nú verður ekki við komið, sökum fólks-
fæðar og dýrleika. Matvælaforði sá, er fékkst með öflun
hinna margvíslegu hlunninda var efnaríkur og heilsusam-
legur, enda fengu unglingar, sem ólust upp á Reykhólum
oftast bráðan og mikinn þroska.
Spillti það ekki fyrir, að almannarómur var, að hús-
freyjan hefði jafnan móðurhendur og aðeins þær við út-