Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 19

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 19
BREIÐFIRÐINGUR 17 eru enibættisbækur hans taldar bera þessum þætti skapgerð- ar hans fagurt vitni. Hann var hin mesta hetja í ferðalög- um bæði á sjó og landi og þess var honum þörf í hinu víð- lenda prestakalli, en hann þjónaði lengi öllum vesturhluta Dalasýslu ásamt Garpsdal í Barðastrandasýslu og var auk prestsstarfsins prófastur allra Dala í nær aldarfjórðung. En prestur var hann í Hvammi frá 1905 til 1914, en var þó eitt ár í Stykkishólmi. Sr. Ásgeir varð Stúdent aldamótavorið, en lauk embætt- isprófi við Prestaskólann árið 1903. Stundaði hann kennslu við Isafjarðardjúp og á ísafirði fyrstu ár starfs síns eða unz hann tók prestvígslu. En þar í „Djúpinu“ voru hans bernskustöðvar, því að hann fæddist á Arngerðareyri hinn 22. sept. 1878, sonur Ásgeirs Guðmundssonar hreppstjóra þar og Margrétar Jónsdóttur fyrri konu hans. Og við „Djúpið“ kvæntist sr. Ásgeir eftirlifandi konu sinni, frú Ragnhildi Bjarnadóttur. Hún var frá Ármúla. Þau giftust á afmælisdegi hans aldamótaárið. Þóttu þau ætíð hin glæsi- legustu hjón og var prúðmennsku þeirra og höfðinglegri framkomu hvarvetna viðbrugðið. Kurteisi þeirra og hátt- prýði var í senn sönn og fögur. Frú Ragnhildur hefur verið heilsutæp um áratugi, og hvergi munu mannkostir sr. Ásgeirs betur hafa komið í ljós en á heimili lians og var hann þó alls staðar velkominn og vinsæll. Nærgætni hans, umhyggja og ástúð í þrautum og vanda húsfreyjunnar bar vitni tryggð hans, festu og drenglund. Hið sama mun og fósturdóttirin vitna, hin prúða, gáfaða og glæsilega prestdóttir frá Hvammi, Ragn- hildur Ásgeirsdóttir, skriftarkennari í Reykjavík. Sr. Ásgeir var góður félagi, fórnfús, hugsjónaríkur, fram- sýnn og duglegur. Þar hefur Breiðfirðingafélagið í Reykja- vík mikið að þakka. Enginn einn maður mun hafa átt rík- ari þátt en hann í þeirri ráðstöfun, að það varð fyrsta ált-

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.