Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 43

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 43
BREIÐFIRÐINGUR 41 hafði verið að „dauða“ kominn. En algengt kvað vera að sjá dauðadrukkna menn — mest unglingspilta, og stundum jafnvel stúlkur — veltast um úti og inni í lok skemmtan- anna. Þetta var líka fremur fámenn samkoma. Ekki mun það þó hafa stafað af því að unga fólkið hafi setið heima, heldur munu aðrir skemmtistaðir hafa dregið það til sín. Það er ekki ósjaldan um það talað, að tóbaksnautn og vínnautn og siðleysi fari vaxandi hjá æskulýðnum og seilist stöðugt eins og lengra og lengra niðureftir aldursstiganum — jafnvel alla leið niður til barna á fermingaraldri. Um þetta mun vera hægt að fá ýmsar tölur, naktar staðrevndir, sem ekki verður á móti mælt. Og fólkið stendur svo og hristir höfuðið yfir spillingunni og skilur ekkert í, hvaðan þessi óheilla alda geti verið runnin. Sumir vilja helzt reyna að koma þessu öllu á aumingja kanann suður á Keflavíkur- flugvelli. 0, já, „þurrkaðu ekki á þér, ef annar stendur hjá þér.“ En gætum við ekki fyrst reynt að líta okkur nær. Auðvitað eru margar orsakir hér að verki. En mætti ekki liggja í augum uppi, að það, sem einna öflugast lyftir undir ölduna, séu þessar skemmtisamkomur, sem almenningur sjálfur stofnar til. Ut um allar sveitir landsins eru nú á hverju sumri um allar helgar efnt til dansskemmtana, sem í framkvæmdinni eru hreinustu námskeið í drykkjuskap og siðleysi. Því enda þótt fjölmargt fólk sæki þær, sem hagar sér að öllu leyti prúðmannlega, blettar þó drykkjuskapur og aðrir siðlitlir skemmtanasiðir svo þær flestar, að í heild mega þær undantekningarlítið heita mannskemmandi — eins og einn þekktur skólamaður hefur komizt að orði. En hverjir stofna til þeirra? Er það ekki oftast nokkurn veginn fullorðið fólk, jafnvel fólk, sem stendur fyrir félögum og félagasamtökum, er hafa ýms góð menningarmál á stefnu sinni? Og hverjir eru svo fjölmennustu þátttakendurnir? Æskufólk um og innan við tvítugsaldur, nýfermdir ungl-

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.